Fjöldi atvinnulausra hefur næstum helmingast frá því í mars

Ráðn­inga­styrkir og árs­tíða­bundin sveifla eru meg­in­á­stæða þess að atvinnu­leysi hefur dreg­ist veru­lega saman síð­ustu mán­uði. Lang­tíma­at­vinnu­lausir eru þó enn yfir fimm þús­und tals­ins.

Endurkoma ferðamanna hefur skapað umtalsvert magn starfa í sumar.
End­ur­koma ferða­manna hefur skapað umtals­vert magn starfa í sumar. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­lausum fækk­aði enn í síð­asta mán­uði og skráð atvinnu­leysi fór úr 6,1 í 5,5 pró­sent milli mán­aða. Alls fækk­aði þeim sem voru ekki með vinnu um 1.010 í ágúst. Atvinnu­leysi hefur næstum helm­ing­ast frá því mars þegar það mæld­ist ell­efu pró­sent og alls 21.019 voru atvinnu­lausir að öllu leyti. Þeir eru nú 11.499 tals­ins.

Atvinnu­leysið er mest á Suð­ur­nesjum, eða 9,7 pró­sent. Þar á eftir er mesta atvinnu­leysið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 6,1 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi sem birt var í dag.

Lang­tíma­at­vinnu­leysi er þó enn mikið og alls 5.038 manns höfðu verið atvinnu­lausir í eitt ár eða lengur í lok síð­asta mán­aðar. Til sam­an­burðar þá höfðu 3.051 manns verið atvinnu­lausir í tólf mán­uði eða lengur í ágúst í fyrra.

Ráðningastyrkir ráðandi

Ástæður þess að atvinnu­leysið hefur minnkað svona hratt eru aðal­lega tví­þættar. Annars vegar er um árs­tíða­bundna sveiflu að ræða, en störfum fjölgar mikið á sumrin á Íslandi þegar háanna­tíma mann­afls­frekasta atvinnu­vegar þjóð­ar­innar, ferða­þjón­ustu, gengur í garð. Þegar ferða­mönnum fer að fækka á ný með haustinu má ætla, miðað við þróun fyrri ára, að störfum í ferða­þjón­ustu­geir­anum fækki sam­hliða.

[adspot]Hins vegar hafa svo­kall­aðir ráðn­inga­styrkir verið greiddir út í tengslum við atvinnu­átakið Hefjum störf sem var sett af stað í mars á þessu ári. Þá var mark­miðið að skapa allt að sjö þús­und tíma­bundin störf í sam­vinnu við atvinnu­lífið, opin­berar stofn­anir, sveit­ar­fé­lög og félaga­sam­tök. Ráðgert var að kostn­að­ur­inn myndi nema 4,5 til fimm millj­örðum króna þegar átakið var kynnt.

Kjarninn greindi frá því í frétt um miðjan júlí að um fimm þús­und umsóknir um ráðn­inga­styrki hefðu verið afgreiddar og að heild­ar­greiðslur í tengslum við átakið á þeim tíma hefðu numið 1,4 millj­arði króna.

Alls komu inn 908 ný störf sem aug­lýst voru í vinnu­miðlun hjá Vinnu­mála­stofnun í ágúst. Um fjöl­breytt störf var að ræða, flest störfin voru störf verka­fólks í ýmiss konar þjón­ustu eða 306 störf. Í skýrslu stofn­un­ar­innar fyrir síð­ast mán­uði segir að flest aug­lýstra starfa séu átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­ingar eða um 73 pró­sent. Af þeim 1.038 sem fækk­aði um á atvinnu­leys­is­skrá fór um 500 á ráðn­inga­styrk.

Ráðningastyrkir renna út í haust

Nokkrar teg­undir styrkja eru í boði. Samkvæmt yfir­liti yfir styrk­ina á heima­síðu Vinnu­mála­stofn­unar geta fyr­ir­tæki fengið styrk sem nemur allt að 307.430 krónum á mán­uði að við­bættu mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, sam­tals tæp­lega 343 þús­und krónur, í sex mán­uði ef fyr­ir­tækið ræður starfs­mann sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti einn mánuð. Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki með færri en 70 starfs­menn geta fengið enn hærri styrk. Ef slíkt fyr­ir­tæki ræður atvinnu­leit­anda sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti ár fær það styrk sem nemur fullum mán­að­ar­launum að hámarki tæp­lega 473 þús­und krónum að við­bættu mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, sam­tals rúm­lega 527 þús­und krónur.

Til að setja umfang þessa átaks í ein­hvers­konar sam­hengi þá greindi Vinnu­mála­stofnun frá því í nýj­ustu skýrslu sinni um vinnu­mark­að­inn að 89 pró­sent allra aug­lýstra starfa í júlí­mán­uði hafi verið átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­ingar.

Ráðn­inga­styrkir þeirra sem voru ráðnir á slíkum strax í upp­hafi renna út í októ­ber, skömmu eftir kom­andi kosn­ingar. Þá á eftir að koma í ljós hversu mörgum þeirra sem hafa verið ráðnir á slíkum styrkjum verði haldið í vinnu þegar atvinnu­rek­endur þurfa að fara að greiða laun þeirra í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár