Ráðningastyrkir kosta ríkissjóð 15 milljarða á árunum 2021 og 2022

Hækka þarf fram­lög úr rík­is­sjóði vegna ráðn­inga­styrkja um 3,4 millj­arða króna frá því sem áætlað var í fjár­laga­frum­varpi. Samhliða Hefjum störf átaki stjórn­valda tutt­ugu­fald­að­ist ásókn atvinnu­rek­enda í hina hefð­bundnu ráðn­ing­ar­styrki Vinnu­mála­stofn­unar.

Katrín Jakobsdóttir og Ásmundur Einar Daðason kynntu átakið Hefjum störf á blaðamannafundi í mars síðastliðnum.
Katrín Jak­obs­dóttir og Ásmundur Einar Daðason kynntu átakið Hefjum störf á blaða­manna­fundi í mars síð­ast­liðnum. Mynd: Aðsend

Lagt hefur verið til að fram­lög vegna mála­flokks­ins vinnu­mark­aður og atvinnu­leysi verði aukin um fimm millj­arða króna frá því sem fjár­laga­frum­varpið sagði til um. Verði sú breyt­ing sam­þykkt munu fram­lögin verða alls 55,1 millj­arðar króna, sem er um 40 millj­örðum króna minna en fór í mála­flokk­inn á árinu 2021.

Ástæðan er minnk­andi atvinnu­leysi, en það mæld­ist 4,9 pró­sent í síð­asta mán­uði sem er svipað og atvinnu­leysi var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á snemma á síð­asta ári. Atvinnu­leysi mæld­ist 12,8 pró­sent í jan­úar síð­ast­liðnum.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar vegna fjár­laga­frum­varps­ins kemur fram að ástæða þess að hækka þurfi fram­lög til mála­flokks­ins á næsta ári sé aðal­lega út af auknu fram­lagi, alls 3,4 millj­örðum króna, vegna ráðn­inga­styrkja.

[adspot]Þar segir að tæp­lega 40 pró­sent styrkj­anna séu vegna nýrra styrkja sem tengj­ast átak­inu Hefjum störf, en atvinnu­rek­endur geta sótt um slíka styrki út þetta ár og þeir geta varað í allt að sex mán­uði. Átakið snýst um að rík­is­sjóður greiðir þorra launa nýrra starfs­manna fyr­ir­tækja á meðan að styrkja­tíma­bilið er í gildi.

Um 60 pró­sent útgjald­anna eru hins vegar vegna hefð­bund­inna ráðn­ing­ar­styrkja sem komu í kjöl­far átaks­verk­efn­is­ins.

Ráðningastyrkir kosta alls 15,1 milljarð króna

Þegar Hefjum störf átakið var kynnt í mars síð­ast­liðnum var mark­miðið sagt vera að skapa sjö þús­und tíma­bundin s​​törf hjá einka­fyr­ir­tækj­um, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætl­aður kostn­aður við þessar aðgerðir eru 4,5 til fimm millj­arðar króna.

Í álit­inu, sem þing­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja standa að, kemur hins vegar fram að útgjöld vegna allra ráðn­inga­styrkja sem veittir voru á árinu 2021 verði um 11,7 millj­arðar króna og að 3,4 millj­arðar króna fari í greiðslu þeirra á næsta ári. Samtals gera það 15,1 millj­arðar króna.

Munur á upp­haf­legu kostn­að­ar­mati og raunút­komu og áætlun árs­ins 2022 skýrist fyrst og fremst af því að ásókn í ráðn­ing­ar­styrk­ina varð tvisvar sinnum meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Sótt var um 7.900 styrki í stað fjögur þús­und, líkt og reiknað var með.

Ásókn í aðra styrki tuttugufaldaðist

Ástæðan er sú að sam­hliða Hefjum störf átaki stjórn­valda marg­fald­að­ist ásókn atvinnu­rek­enda í hina hefð­bundnu ráðn­ing­ar­styrki Vinnu­mála­stofn­unar sem kall­ast Ráðning með styrk. „Í byrjun árs 2021 höfðu aðeins 128 samn­ingar verið gerðir í gegnum það úrræði en þeir voru orðnir 2.800 í nóv. sl. Er því um tutt­ugu­falda aukn­ingu ásóknar að ræða í úrræðið. Þá sköp­uð­ust jafn­framt fleiri störf á hinum almenna mark­aði en áætlað var og kostn­aður rík­is­sjóðs á hvern samn­ing því hærri en í upp­haf­legu mati þar sem gert var ráð fyrir að fleiri störf sköp­uð­ust hjá sveit­ar­fé­lögum og félaga­sam­tökum.“

Í álit­inu kemur einnig fram að sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun sé árangur af ráðn­ing­ar­styrkjum sá að 20 til 30 pró­sent þeirra sem fari á ráðn­ing­ar­styrk fari aftur á atvinnu­leys­is­skrá þegar styrkja­tíma­bili samn­ings lýkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár