Færri atvinnulausir en fleiri fastir í langtímaatvinnuleysi

Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­lífið var enn að glíma við afleið­ingar af gjald­þroti WOW air og loðnu­brest, voru 21 pró­sent allra atvinnu­lausra flokk­aðir lang­tíma­at­vinnu­lausir. Nú er það hlut­fall 38 pró­sent.

Flest þeirra starfa sem orðið hafa til síðustu mánuði eru í ferðaþjónustu.
Flest þeirra starfa sem orðið hafa til síð­ustu mán­uði eru í ferða­þjón­ustu. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Í lok síð­asta mán­aðar voru 6.279 manns atvinnu­lausir á Íslandi. Það eru 2.883 færri en voru skráðir á atvinnu­leys­is­skrá í febr­úar 2020, í síð­asta mán­uð­inum áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Hlut­falls­lega var atvinnu­leysið þá fimm pró­sent en er í dag 3,2 pró­sent. Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð mæld­ist atvinnu­leysið mest í jan­úar 2021, 11,6 pró­sent, og heild­ar­at­vinnu­leysi að með­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­sent.

Það þýddi að alls 26.403 voru annað hvort atvinnu­lausir að öllu leyti eða í minnk­uðu starfs­hlut­falli á þeim tíma, eða rúm­lega 20 þús­und fleiri en um síð­ustu mán­aða­mót.

Atvinnu­leysið hefur því, sam­an­dregið, skroppið gríð­ar­lega saman á síð­ustu mán­uðum sam­hliða því að tak­mörk­unum sem settar voru á vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var aflétt. Hlut­falls­lega hefur það ekki verið lægra síðan í apríl 2019.

Fjöldi langtímaatvinnulausra mun meiri

Það segir þó ekki alla sög­una. Í síð­ustu mán­aða­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að 2.387 manns hefðu verið atvinnu­lausir í meira en tólf mán­uði í lok júlí. Það eru mun fleiri en glímdu við slíkt atvinnu­leysi fyrir far­ald­ur­inn. Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­leysi var hlut­falls­lega meira en það er núna, höfðu 1.893 verið án atvinnu í ár eða lengur.

[adspot]Fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er því 26 pró­sent meiri nú en hann var þá, í minna atvinnu­leysi. Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­lífið var enn að glíma við afleið­ingar af gjald­þroti WOW air og loðnu­brest, voru 21 pró­sent allra atvinnu­lausra flokk­aðir lang­tíma­at­vinnu­lausir en nú er það hlut­fall 38 pró­sent.

Svipuð staða hjá erlendum ríkisborgurum

Atvinnu­leysi hjá erlendum rík­is­borg­urum nú er á svip­uðum stað og fyrir far­ald­ur­inn ef horft er á það hlut­falls­lega. Um síð­ustu mán­aða­mót mæld­ist það 7,3 pró­sent hjá erlendum atvinnu­leit­endum á sama tíma og atvinnu­leysi heilt yfir mæld­ist, líkt og áður sagði, 3,2 pró­sent. Það þýðir að 2.842 erlendir atvinnu­leit­endur voru án atvinnu í lok júlí, sem gerir þá að 43 pró­sent allra atvinnu­lausra. Það er sama hlut­fall atvinnu­lausra og erlendir atvinnu­leit­endur voru í febr­úar 2020.

Alls bjuggu 59.490 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi um mitt þetta ár. Þeir eru 15,6 pró­sent allra íbúa. Því liggur fyrir að atvinnu­leysi er mun meira á meðal þeirra en íslenskra rík­is­borg­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár