Minni atvinnuþátttaka meðal múslima ekki rakin til viðhorfa þeirra sjálfra

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar véfengja algengt við­horf um að hærra atvinnu­leysi meðal múslima í Bret­landi sé hægt að rekja til við­horfa þeirra sjálfra. Þvert á móti benda þær til þess að það megi rekja til við­horfa sam­fé­lags­ins gagn­vart múslimum.

Lægri atvinnu­þátt­taka múslima á breskum vinnu­mark­aði verður ekki útskýrð með félags- og menn­ing­ar­legu við­horfi múslima eða fast­heldni þeirra við trú­ar­lega siði. Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar breskrar rann­sóknar, sem sagðar eru stað­festa að hængur sé á atvinnu­þátt­töku múslima í Bret­landi, en véfengja nið­ur­stöður eldri rann­sókna sem bent hafa til þess að slíkt sé til­komið vegna menn­ingar- og trú­ar­hátta múslima.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar nýju sýna að bæði múslim­skir karlar og konur eru mun lík­legri til þess að vera án atvinnu en hvítir, kristnir sam­borg­arar þeirra þegar búið var að leið­rétta fyrir aldri, búsetu, menntun og barn­eignum. Þá voru nið­ur­stöð­urnar einnig skoð­aðar með til­liti til trúar, kynja­við­horfum og borg­ara­legri þátt­töku, en höf­undar rann­sókn­ar­innar komust að því að þessir þættir hefðu tak­mörkuð áhrif á atvinnu­þátt­töku.

Hins vegar benda nið­ur­stöð­urnar til þess að nei­kvæð við­horf gagn­vart múslimum, sem og þeim sem séu „álitnir“ múslimar vegna lit­ar­háttar eða upp­runa, sé ein helsta fyr­ir­staða múslima er þeir sæk­ast eftir atvinnu.

Að því er fram kemur í umfjöllun Guardian er rann­sóknin unnin upp úr gögnum sem safnað var á 10 árum með lang­tíma­rann­sókn á bresku heim­il­is­haldi, UK Household Longitu­dinal study, sem fram­kvæmd er á 100 þús­und manns frá 40 þús­und breskum heim­ilum ár hvert, með per­sónu­legum við­tölum þar sem þátt­tak­endur eru spurðir út í félags­hag­fræði­lega stöðu sína. Meðal þess sem þátt­tak­endur eru spurðir um eru trú­ar­legar skoð­anir og hve sterkar þær eru, hvort þeir taki þátt í félags­starfi og hvort þeir séu sam­mála full­yrð­ingum á borð við að eig­in­maður eigi að sjá fjár­hags­lega fyrir heim­il­inu á meðan eig­in­konan sinni störfum innan veggja heim­il­is­ins.

Þannig gátu rann­sak­endur skoðað hvort ákveðin við­horf hefðu áhrif á atvinnu­þátt­töku, og komust að því að þau hefðu tak­mörkuð áhrif og ekki nægi­lega mikil til að útskýra þann mikla mun sem mælist á atvinnu­þátt­töku meðal múslima ann­ars vegar og hvítra og krist­inna hins vegar.

Annað sem nið­ur­stöð­urnar benda til er að útlit hafi tals­verð áhrif á aðgengi­leika að vinnu­mark­aðnum. Þannig sé atvinnu­þátt­taka hvítra múslima á pari við þátt­töku ann­arra þjóð­fé­lags­hópa, en trú­ar­lausir arab­ískir menn hins vegar lík­legri til þess að vera án atvinnu. Höfundar rann­sókn­ar­innar telja því að útlit hafi meira að segja en trú­ar­iðkun.

Nið­ur­stöð­urnar benda því til þess að íslamó­fóbía sé marg­þætt og snúi ekki ein­ungis að trúnni sjálfri heldur einnig að lit­ar­hætti, menn­ingu og upp­runa­landi. Þannig sé bæði trú og lit­ar­háttur for­spár­gildi þegar kemur að atvinnu­þátt­töku karla. Trú sé þó enn helsta for­spár­gildi í tengslum við atvinnu­þátt­töku kvenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár