Atvinnuleysi óvænt óbreytt milli mánaða en langtímaatvinnuleysi enn mikið

Fjöldi þeirra sem hafa verið án vinnu í ár eða meira er 116 pró­sent hærri nú en hann var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, þrátt fyrir að atvinnu­leysið sé nú nán­ast það sama. Rúmlega 40 pró­sent atvinnu­lausra eru erlendir atvinnu­leit­endur.

Ferðaþjónusta hefur end­ur­heimt um helm­ing þeirra starfa sem töp­uð­ust í kórónuveirufaraldrinum samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands.
Ferða­þjón­usta hefur end­ur­heimt um helm­ing þeirra starfa sem töp­uð­ust í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum sam­kvæmt tölum frá Seðla­banka Íslands. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Skráð atvinnu­leysi mæld­ist 4,9 pró­sent í nóv­em­ber mán­uði sem er sama hlut­fall og í mán­uð­inum á undan. Það þykir heldur óvænt þar sem hefð­bundnar árs­tíða­sveiflur leiða yfir­leitt til þess að atvinnu­leysi auk­ist milli októ­ber og nóv­em­ber og Vinnu­mála­stofnun hafði spáð því að það myndi aukast lít­il­lega undir lok árs.

Í nýbirtri mán­aða­skýrslu stofn­un­ar­innar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi kemur fram að aukin eft­ir­spurn eftir starfs­fólki úr mörgum geirum skýri þessa þróun meðal ann­ars. „Þannig er fjölgun atvinnu­lausra í bygg­ing­ar­greinum minni í nóv­em­ber en áður auk þess sem fækkun atvinnu­lausra í verslun er í stað fjölg­unar almennt í nóv­em­ber Einnig eru breyt­ingar á fjölda atvinnu­lausra í ferða­þjón­ustu­greinum nú í nóv­em­ber yfir­leitt til fækk­unar í stað fjölg­unar almennt í mán­uð­inum.“

Þrátt fyrir að atvinnu­leysið hafi mælst á svip­uðum slóðum og það var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á síð­ustu þrjá mán­uði þá er vert að minna á að atvinnu­leysi var sögu­lega nokkuð hátt í byrjun síð­asta árs. Í febr­úar 2020 var atvinnu­leysið komið í fimm pró­sent og hafði ekki mælst hærra síðan í apríl 2012.

Yfir fjögur þúsund manns án atvinnu í meira en ár

Lang­tíma­at­vinnu­lausum fækkað lítið milli mán­aða og alls höfðu 4.083 verið án atvinnu í ár eða lengur í lok nóv­em­ber. Það þýðir að af þeim 10.155 sem voru atvinnu­lausir á þeim tíma höfðu 40 pró­sent verið það í meira en tólf mán­uði. Það hlut­fall var 21 pró­sent í febr­úar á síð­asta ári. Fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er því 116 pró­sent meiri en hann var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

[adspot]Alls voru 4.175 erlendir atvinnu­leit­endur án atvinnu í lok nóv­em­ber og þeim fjölgað um 106 milli mán­aða. Það þýðir að 41 pró­sent allra atvinnu­lausra voru erlendir atvinnu­leit­end­ur, sem er nán­ast sama hlut­fall og var í febr­úar 2020.

Atvinnu­leysið er mest á Suð­ur­nesjum nú, eða 9,5 pró­sent, en atvinnustigið þar er mjög háð því að mikið sé að gera í ferða­þjón­ustu vegna nálægðar við Kefla­vík­ur­flug­völl. Atvinnu­leysið hefur hríð­fallið þar frá því í byrjun árs þegar það var 23,3 pró­sent og er nú hlut­falls­lega það sama og það var fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Ráðningastyrkir að renna út

Sem stendur eru enn í gildi svo­­­­kall­aðir ráðn­­­­inga­­­­styrkir, sem greiddir eru út í tengslum við atvinn­u­átakið Hefjum störf. Það snýst um að rík­­­­is­­­­sjóður greiði þorra launa nýrra starfs­­­­manna fyr­ir­tækja tíma­bund­ið, en þeir renna flestir út á næstu vik­­­­um.

[links]Sam­­kvæmt mæla­­­borði Vinn­u­­­mála­­­stofn­unar hafa 7.393 ráðn­­­ingar átt sér stað á grund­velli átaks­ins frá 1. mars, en um 250 ráðn­­ingar voru gerðar undir hatti þess í nóv­em­ber.

Mik­ill fjöldi ráðn­ing­ar­styrkja rennur út á síð­asta fjórð­ungi árs­ins. Í frétt sem birt­ist á vef RÚV í síð­asta mán­uði kom fram að þeim sem þegar hafa runnið út á samn­ingi hafi aðeins um tutt­ugu til þrjá­tíu pró­sent snúið aftur á atvinnu­leys­is­skrá. Haft var eftir Unni Sverr­is­dótt­ur, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­un­ar, að það væri betri árangur en búist hafði verið við.

Í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands, sem birt voru undir lok síð­asta mán­aðar, sagði að óvíst væri að hve miklu leyti ráðn­ing­ar­sam­böndum sem byggj­ast á styrkjum verði við­haldið en á móti vegi mikil ráðn­ing­ar­á­form fyr­ir­tækja og skortur á starfs­fólki. „Það gæti hægt á hjöðnun atvinnu­leysis eða það jafn­vel auk­ist tíma­bundið ef margir koma aftur inn á skrá þar sem pörun leit­enda og nýrra starfa getur tekið tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár