Dregur úr atvinnuleysi á landinu öllu

Atvinnu­leysi á Íslandi helst áfram að drag­ast saman og mælist nú 3,9 pró­sent. Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir að atvinnu­leysi muni drag­ast enn frekar saman í júní.

Á höfuðborgarsvæðinu mælist atvinnuleysi 4,2 prósent samanborið við 3,4 prósent á landsbyggðinni.
Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist atvinnu­leysi 4,2 pró­sent sam­an­borið við 3,4 pró­sent á lands­byggð­inni. Mynd: Bára Huld Beck

Skráð atvinnu­leysi var 3,9 pró­sent í maí og lækkar um 0,6 pró­sentu­stig frá fyrri mán­uði. Að með­al­tali voru 7.717 atvinnu­lausir í mán­uð­inum, 4.233 karlar og 3.484 konur og fækkar atvinnu­lausum að með­al­tali um 812 frá því í apríl. Atvinnu­leysi hefur dreg­ist tölu­vert saman frá því í fyrra, almennt atvinnu­leysi var skráð 9,1 pró­sent í maí 2021. Til við­bótar mæld­ist 0,9 pró­sent atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls í þeim mán­uði svo heild­ar­at­vinnu­leysi í maí í fyrra var tíu pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi.

Í mán­að­ar­skýrsl­unni segir að alls staðar á land­inu hafi dregið úr atvinnu­leysi í mán­uð­inum, hlut­falls­lega mest á Norð­ur­landi vestra og á Vest­fjörðum. Þar mælist nú minnst atvinnu­leysi eða 1,2 pró­sent á Norð­ur­landi vestra og 1,9 pró­sent á Vest­fjörðum en hlut­fallið er það sama á Vest­ur­landi. [adspot]

Mest er atvinnu­leysið aftur á móti á Suð­ur­nesjum og hefur verið í þónokkurn tíma. Þar mælist atvinnu­leysi nú 6,6 pró­sent en það lækkar um eitt pró­sentu­stig á milli mán­aða. Næst mest er atvinnu­leysið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 4,2 pró­sent og lækkar um hálft pró­sentu­stig á milli mán­aða.

Í skýrsl­unni segir að atvinnu­leysi hafi minnkað meira á lands­byggð­inni sem heild en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um 0,6 pró­sentu­stig. Atvinnu­leysi á lands­byggð­inni sem heild mælist 3,4 pró­sent.

Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir því að atvinnu­leysi muni minnka í júní og vera á bil­inu 3,5 til 3,8 pró­sent. Árs­tíða­sveiflur á vinnu­mark­aði gera það að verkum að alla jafna mælist minna atvinnu­leysi á Íslandi á sumrin en á vetrum.

Verulega hefur dregið úr langtímaatvinnuleysi

Við lok síð­asta mán­aðar höfðu 2.713 verið án atvinnu í meira en tólf mán­uði, sam­an­borið við 6.430 í lok maí í fyrra. Fjöldi þeirra sem hefur verið atvinnu­laus í sex til tólf mán­uði fækkar um 77 á milli mán­aða og telur sá hópur nú 1.722 manns. Á sama tíma í fyrra höfðu 6.089 verið atvinnu­laus í sex til tólf mán­uði.

Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara án atvinnu í lok maí var 3.331 og fækkar um 526 frá fyrri mán­uði. Það þýðir að meðal erlendra rík­is­borg­ara mælist nú um 8,5 pró­sent atvinnu­leysi. Hlutfall erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá er nú 43 pró­sent en það var um 40 pró­sent sum­arið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár