18 þúsund störf töpuðust í faraldrinum en 16.700 ný hafa orðið til

Seðla­bank­inn segir óvíst að hve miklu leyti ráðn­ing­ar­sam­böndum sem byggj­ast á ráðn­ing­ar­styrkjum verði við­haldið, en þeir renna flestir út nú undir lok árs. Kannanir bendi þó til þess að störfum muni halda áfram að fjölga.

Á meðal þeirra geira sem þurfa á mörgum starfsmönnum að halda er byggingageirinn.
Á meðal þeirra geira sem þurfa á mörgum starfs­mönnum að halda er bygg­inga­geir­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst hafa um 18 þús­und störf tap­ast sam­kvæmt tölum úr stað­greiðslu­skrá. Í ágúst síð­ast­liðnum höfðu hins vegar 16.700 störf orðið til á ný. Þetta er meðal þess sem kemur fram í rit­inu Pen­inga­mál sem Seðla­banki Íslands gaf nýverið út.

Þar segir að flest störfin sem orðið hafi til séu í ferða­þjón­ustu og að greinin hafi nú end­ur­heimt um helm­ing þeirra starfa sem töp­uð­ust í far­aldr­inum. Þá hafi störf í atvinnu­greinum sem að mestu end­ur­spegla opin­bera þjón­ustu verið tæp­lega sjö þús­und fleiri í ágúst síð­ast­liðnum en þau voru á árinu 2019.

Í Pen­inga­málum segir að bat­inn á vinnu­mark­aði hafi að hluta til verið studdur af vinnu­mark­aðs­að­gerðum stjórn­valda, sér­stak­lega í sumar þegar boðið var upp á lið­lega 2.600 störf fyrir náms­menn og fjöldi fólks var á ráðn­ing­ar­styrk. Áætlað sé að skráð atvinnu­leysi í októ­ber, sem var 4,9 pró­sent, hefði verið um 2,5 pró­sentu­stigum meira ef afskrán­ingum vegna ráðn­ing­ar­styrkja væri bætt við. Seðla­bank­inn telur að það séu þó senni­lega efri mörk áhrifa styrkj­anna því að ein­hver hluti fólks hefði eflaust hafið störf án þeirra.

Óvíst hversu margir á ráðningarstyrk fái áfram vinnu

Sem stendur eru enn í gildi svo­­­kall­aðir ráðn­­­inga­­­styrkir, sem greiddir eru út í tengslum við atvinn­u­átakið Hefjum störf. Það snýst um að rík­­­is­­­sjóður greiði þorra launa nýrra starfs­­­manna fyr­ir­tækja tíma­bund­ið, en þeir renna flestir út á næstu vik­­­um. Í síð­­­asta mán­uði voru 79 pró­­­sent aug­lýstra starfa átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­­­ingar og mörg þús­und manns eru ráðin á þessum ráðn­­­ing­­­ar­­­styrkj­u­m.

[adspot]Sam­­kvæmt mæla­­borði Vinn­u­­mála­­stofn­unar hafa 7.204 ráðn­­ingar átt sér stað á grund­velli átaks­ins frá 1. mars, en tæp­lega 300 ráðn­ingar voru gerðar undir hatti þess í októ­ber. Því má rekja um 70 pró­sent af þeirri fækkun sem varð á atvinnu­leys­is­skrá í síð­asta mán­uði til átaks­ins. Vinnu­mála­stofnun spáði því í síð­ustu birtu skýrslu sinni um vinnu­mark­að­inn að atvinnu­leysi gæti auk­ist að nýju undir lok árs 2021.

Mikill fjöldi ráðn­ing­ar­styrkja rennur út á síð­asta fjórð­ungi árs­ins. Í frétt sem birt­ist á vef RÚV á mið­viku­dag kom fram að þeim sem þegar hafa runnið út á samn­ingi hafi aðeins um tutt­ugu til þrjá­tíu pró­sent snúið aftur á atvinnu­leys­is­skrá. Haft var eftir Unni Sverr­is­dóttur, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, að það væri betri árangur en búist hafði verið við.

Í Pen­inga­málum segir að óvíst sé að hve miklu leyti ráðn­ing­ar­sam­böndum sem byggj­ast á styrkjum verði við­haldið en á móti vegi mikil ráðn­ing­ar­á­form fyr­ir­tækja og skortur á starfs­fólki. „Það gæti hægt á hjöðnun atvinnu­leysis eða það jafn­vel auk­ist tíma­bundið ef margir koma aftur inn á skrá þar sem pörun leit­enda og nýrra starfa getur tekið tíma.“

Ráðningaráform hafa tekið kipp

Það dregur úr sjálf­virkt úr stuðn­ingi stjórn­valda sam­hliða minnk­andi atvinnu­leysi en sér­stöku átaks­verk­efni er sjálf­hætt þegar atvinnu­leysi á lands­vísu eða á ein­stöku land­svæði mælist sex pró­sent eða minna. Í átaks­verk­efn­inu fel­ast mild­ari skil­yrði og meiri fjár­stuðn­ingur en hefð­bundnir ráðn­ing­ar­styrkir veita. Í októ­ber voru ein­ungis Suð­ur­nesin, þar sem atvinnu­leysi mæld­ist 9,2 pró­sent, yfir þeim mörkum. Höf­uð­borg­ar­svæðið, þar sem lang­flestir atvinnu­leit­endur eru, fóru undir þau í sept­em­ber. Atvinnu­leysi þar mæld­ist 5,2 pró­sent í októ­ber.

Í Pen­inga­málum segir að ráðn­ing­ar­á­form fyr­ir­tækja hafi tekið mik­inn kipp á öðrum fjórð­ungi árs­ins og reynd­ust áfram kröftug á þeim þriðja. „Samkvæmt fyr­ir­tækja­könnun Hag­stof­unnar voru tæp­lega 8.400 laus störf á þriðja árs­fjórð­ungi og því um 5.400 fleiri en á sama tíma í fyrra og lið­lega 3.700 fleiri en á sama fjórð­ungi árið 2019. Þá var árs­tíð­ar­leið­réttur munur á hlut­falli fyr­ir­tækja sem vilja fjölga starfs­fólki og þeirra sem vilja fækka jákvæður um 28 pró­sentur í haust­könnun Gallup meðal 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. Kann­an­irnar benda því til þess að störfum muni áfram fjölga næsta miss­erið.“

Óvissa sé þó um að hvaða leyti mik­ill vilji til að ráða starfs­fólk end­ur­spegli nið­ur­greiðslu launa­kostn­aðar í gegnum ráðn­ing­ar­styrki fremur en raun­veru­legan bata í vinnu­afls­eft­ir­spurn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár