„Þetta er bara mjög ómerkileg framganga“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vill að atvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar um 14.000 krónur, eða 4,6 pró­sent, eins og gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun fyrir árið 2022. Hann skorar á félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra að fylgja for­sendum áætl­un­ar­innar.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar biðlar til þing­manna í meiri­hlut­anum „að banka“ í Guðmund Inga Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og skora á hann að hækka atvinnu­leys­is­bætur um 4,6 pró­sent, eins og gert var ráð fyrir í fjár­mála­áæltun fyrir árið 2022, með reglu­gerð­ar­breyt­ingu og helst áður en þing fer heim.

Þetta kom fram hjá þing­mann­inum undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hann benti á að í grein­ar­gerð með fjár­laga­frum­varp­inu hefði skýrt komið fram að atvinnu­leys­is­bætur yrðu hækk­aðar um 4,6 pró­sent, um sömu pró­sentu­tölu og greiðslur almanna­trygg­inga.

Atvinnuleytendur skildir eftir

„Við hér á Alþingi gerðum ráð fyrir þessu þegar fjár­lögin voru afgreidd,“ sagði Jóhann Páll og bætti því við hann honum hefði ekki dottið annað í hug en að Guð­mundur Ingi myndi haga reglu­gerð­ar­breyt­ingum um fjár­hæð atvinnu­leys­is­trygg­inga til sam­ræmis við það.

„Hvað gerð­ist svo? Jú, án þess að mikið bæri á því, og án þess að nokkur umræða færi fram um það hér á Alþingi eða í sam­fé­lag­inu, þá hækk­aði hæst­virtur félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra grunnatvinnu­leys­is­bætur miklu minna, ekki um 14.000 krónur eins og Alþingi ætl­að­ist til heldur um 6.300 krónur. Síðan hafa bæt­urnar fengið að rýrna að raun­virði eftir því sem verð­bólgan hefur rokið upp.

Hvað gerð­ist svo þegar rík­is­stjórnin lét loks­ins undan þrýst­ingi stjórn­ar­and­stöð­unnar og kynnti mót­væg­is­að­gerðir vegna verð­bólg­unnar? Jú, þá var aftur ákveðið að skilja atvinnu­leit­endur eftir, hóp sem er með lægstu tekj­urnar á Íslandi og er þannig sér­stak­lega ber­skjald­aður fyrir hækk­andi mat­væla-, elds­neytis- og hús­næð­is­kostn­aði,“ sagði þing­mað­ur­inn.

„Þetta er alveg ótrú­lega ómerki­legt, þetta er bara mjög ómerki­leg fram­ganga,“ sagði hann. „Gerið það nú, þing­menn meiri­hlut­ans, bankið í hæst­virtan félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Sam­ein­umst um að leið­rétta þetta og fylgja for­sendum fjár­laga­árs­ins 2022. Þó það nú væri,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár