Rúmlega 1,4 milljarðar í ráðningastyrki frá því í mars

Alls voru rúm­lega 511 millj­ónir greiddar í ráðn­inga­styrki í síð­asta mán­uði en búist er við að upp­hæðin verði enn hærri í júlí og ágúst. Hátt í fimm þús­und umsóknir um ráðn­ing­ar­styrki hafa verið afgreiddar af Vinnu­mála­stofnun frá því í mars.

Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir er for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Almannavarnir

Hátt í fimm þús­und umsóknir um ráðn­inga­styrki hafa verið afgreiddar af Vinnu­mála­stofnun frá því að átakið Hefjum störf hófst í mars á þessu ári. Heild­ar­greiðslur átaks­ins nema rétt rúmum 1,4 millj­örðum króna. Þar af námu greiðslur fyrir tíma­bilið frá mars og út júní rúmum 1,3 millj­örðum króna. „Nú er verið að vinna í reikn­ingum sem bár­ust um síð­ustu mán­aða­mót svo júlítalan á örugg­lega eftir að hækka mikið á næstu dögum,“ segir í skrif­legu svari Unnar Sverr­is­dóttur, for­stjóra Vinnu­mála­stofn­unar, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[adspot]

Í mars, fyrsta mán­uði átaks­ins, afgreiddi Vinnu­mála­stofnun alls 296 umsóknir og námu greiðslur í mán­uð­inum rúmum 114 millj­ónum króna. Fjöldi umsókna hefur síðan þá auk­ist í hverjum mán­uði en í júní nam fjöld­inn 1826 og heild­ar­greiðslur rúmum 511 millj­ónum króna. Líkt og áður segir eru tölur fyrir júlí­mánuð ekki til­búnar en Unnur telur það lík­legt að töl­urnar fyrir júlí verði stærri en fyrir und­an­farna mán­uði. Hingað til hafa um 87 millj­ónir verið greiddar í mán­uð­inum.

Óvíst hversu mörg framtíðarstörf muni skapast

Aðspurð um hvort ábend­ingar hafi borist um að úrræðið sé mis­notað á ein­hvern hátt segir Unnur að slíkar ábend­ingar séu fáar. „Við höfum ekki fengið margar ábend­ingar um að verið sé að mis­nota úrræðið. Við stundum ,,fyr­ir­fram” eft­ir­lit, þ.e. við göngum úr skugga um að ráðn­ing­ar­samn­ingar séu lög­legir og laun skv. kjara­samn­ingum. Víð stað­reynum einnig launa­greiðslur atvinnu­rek­enda til atvinnu­leit­enda áður en við greiðum styrk­inn. Þegar vís­bend­ingar ber­ast um að eitt­hvað sé í ólagi, skoðum við hvert mál sér­stak­lega og tökum svo ákvarð­anir í fram­haldi af þeirri rann­sókn.“

Unnur segir að átak sem þetta geti skapað mörg störf til fram­búðar og skili allt að 80 pró­senta árangri í venju­legu árferði. Erfitt sé að spá fyrir um hversu mörg fram­tíð­ar­störf muni skap­ast. „Við munum fylgj­ast vel með því í haust hversu mörg fram­tíð­ar­störf verða til upp úr þessu átaki. Við vonum eðli­lega að þau verði sem allra flest en eins og áður eru þetta óvissu­tímar og ekki gott að sjá fyrir þró­un­ina í far­aldr­inum í haust. Í venju­legu árferði þá hefur þetta vinnu­mark­aðsúr­ræði skilað allt upp í 80% árangri, þ.e. milli 75-80% þeirra sem hafa fengi starf með ráðn­ing­ar­styrk komu ekki aftur til okkar í atvinnu­leit. Nauð­syn­legt er að halda því til haga að þessi árangur var fyrir Covid, við sjáum hvað setur þegar fer að líða á haustið.“

Áætlaður kostnaður allt að fimm milljarðar króna

Atvinnu­átakið Hefjum störf var sett af stað í mars á þessu ári. Þá var mark­miðið að skapa allt að sjö þús­und tíma­bundin störf í sam­vinnu við atvinnu­lífið, opin­berar stofn­anir, sveit­ar­fé­lög og félaga­sam­tök. Ráðgert var að kostn­að­ur­inn myndi nema 4,5 til fimm millj­örðum króna þegar átakið var kynnt.

Nokkrar teg­undir styrkja eru í boði. Samkvæmt yfir­liti yfir styrk­ina á heima­síðu Vinnu­mála­stofn­unar geta fyr­ir­tæki fengið styrk sem nemur allt að 307.430 krónum á mán­uði að við­bættu mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, sam­tals tæp­lega 343 þús­und krónur, í sex mán­uði ef fyr­ir­tækið ræður starfs­mann sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti einn mánuð. Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki með færri en 70 starfs­menn geta fengið enn hærri styrk. Ef slíkt fyr­ir­tæki ræður atvinnu­leit­anda sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti ár fær það styrk sem nemur fullum mán­að­ar­launum að hámarki tæp­lega 473 þús­und krónum að við­bættu mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, sam­tals rúm­lega 527 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár