Þýskt fyrirtæki vill grafa eftir íslenskum vikri til sementsframleiðslu í Evrópu

Áformuð vinnsla þýsks fyr­ir­tækis á vikri sem til varð í Kötlu­gosum myndi skapa störf í námunni á Mýr­dals­sandi og við flutn­inga. En efnið yrði allt flutt beint úr landi. Land­vernd telur ástæðu til að ótt­ast að fórn­ar­kostn­aður yrði mun meiri en ávinn­ingur.

Austurhlíðar Hafurseyjar þar sem hún rís upp úr sandinum.
Aust­ur­hlíðar Haf­urs­eyjar þar sem hún rís upp úr sand­inum. Mynd: Úr tillögu að matsáætlun

Þýska fyr­ir­tækið STEAG Power Minerals (SPM) hyggur á efn­is­töku á vikri á Mýr­dals­sandi austan og suð­austan við Hafursey, svo­kall­aðri Háöldu. Vikurinn yrði fluttur á bílum til Þor­láks­hafnar og í skip til Evrópu, og mögu­lega Norður-Ameríku, þar sem hann yrði not­aður sem íblönd­un­ar­efni í fram­leiðslu á sem­enti.

SPM er hluti af þýsku STEAG-sam­steyp­unni, einum stærsta orku­fram­leið­anda Þýska­lands sem sér­hæfir sig í kola­verum og end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Utan Þýska­lands er fyr­ir­tækið með starf­semi í Frakk­landi, Tyrk­landi, Kólumbíu og Fil­ipps­eyjum.

[adspot]

SPM hefur stofnað fyr­ir­tækið Power Minerals Iceland ehf. og festi það kaup á jörð­inni Hjör­leifs­höfða ásamt Íslend­ingum. SPM á 90 pró­sent í jörð­inni og Íslend­ing­arnir 10 í gegnum félag sitt Lása­stígur ehf. Leitin að hinum full­komna vikri var löng og kannað var efni úr 31 námu, jafnt á Íslandi sem Azor-eyjum. „Til að gera langa sögu stutta þá er engin önnur vik­ur­náma í Evrópu sam­bæri­leg vikrinum í Háöldu á Mýr­dals­sandi,“ segir í til­lögu að mats­á­ætlun SPM. Þegar horft sé til gæða vik­urs­ins, þess magns sem sé til staðar og stað­setn­ingu námunnar sé „fyr­ir­huguð vik­ur­náma á Mýr­dals­sandi algjör­lega ein­stök og á engan sinn líkan í Evrópu“.

Vikurinn er gjall sem mynd­að­ist í eld­gosum í Kötlu og barst fram á Mýr­dals­sand í jök­ul­hlaupi. Honum er ætlað að koma í stað kola­ösku (e. coal fly ash) úr kola­verum sem notuð hefur verið sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent í áraraðir. „Með auk­inni umhverf­is­vit­und hefur kola­verum í Vestur-Evrópu fækkað mikið og fram­boð á kola­ösku dreg­ist saman,“ segir í til­lögu að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar. „Í Þýska­landi er jafn­framt stefnt að því að árið 2038 verði búið að loka öllum kola­verum. Í stað þess að útvega kola­ösku ann­ars staðar frá ætlar SPM sér að nota vikur til að bjóða við­skipta­vinum sínum umhverf­is­vænt hrá­efni.“

Vinnslan yrði um milljón tonn á ári

Fyr­ir­hugað efn­is­töku­svæði er 15,5 fer­kíló­metrar að flat­ar­máli. Í skýrsl­unni segir að jarð­fræði­rann­sóknir bendi til að auð­vinn­an­legur vikur innan svæð­is­ins sé um 146 millj­ónir rúmmetra (m3). Fyr­ir­hugað er að taka 286 þús­und rúmmetra af efni fyrsta árið en að fimm árum liðnum verði búið að auka efn­is­tök­una upp í 1,43 milljón rúmmetra, eina milljón tonna, á ári og er stefnt að því að halda þeim afköstum eftir það.

Einungis yrði unnið í litlum hluta fram­kvæmda­svæð­is­ins hverju sinni. Teknir yrðu um átta metrar ofan af vik­ur­lag­inu og því yrði virkt efn­is­töku­svæði á hverju ári um 20-40 hekt­arar, miðað við full afköst. Fyr­ir­tækið telur að vik­ur­lagið á Mýr­dals­sandi austan Haf­urs­eyjar ætti að duga til efn­is­töku í rúm­lega 100 ár.

Hug­myndir um vik­ur­nám á þessu svæði eru ekki nýjar af nál­inni og hefur efn­is­töku­svæðið verið á gild­andi aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps í tæpa tvo ára­tugi. Árið 2002 var unnið mat á umhverf­is­á­hrifum fyrir vik­ur­nám á sama svæði og lauk því ferli með því að Skipu­lags­stofnun heim­il­aði efn­is­tök­una. Helsta breyt­ingin frá þeim tíma er hins vegar sú að þá var gert ráð fyrir verk­smiðju í Vík sem myndi vinna vik­ur­inn áður en hann væri fluttur úr landi. Nú stendur til að flytja vik­ur­inn óunn­inn beint út.

Farið verður í frek­ari rann­sóknir á gróðri, dýra­lífi og fleiru við áfram­hald­andi mat á umhverf­is­á­hrifum námu­vinnsl­unnar en gera þarf frá grunni nýja skýrslu um sam­fé­lags­leg áhrif þar sem margt hefur breyst í því sam­bandi á und­an­förnum árum. Á Suð­ur­landi er nú miklu meiri ferða­mennska, m.a. í óbyggðum svæðum Mýr­dals­hrepps. Til að mynda er vin­sælt að ganga á Hafursey og virða fyrir sér lands­lagið sem jöklar og eld­fjöll hafa mótað.

[adspot]

SPM áætlar að vinnslan skapi um 22 tíma­bundin störf á ýmsum stigum und­ir­bún­ings og 24 var­an­leg störf þegar hún hefst. Störfum muni svo fjölga upp í allt að 135 þegar starf­semin hefur náð fullum afköstum. Auk þess megi búast við afleiddum störfum.

„Fyr­ir­huguð fram­kvæmd er ekki flókin og í eðli sínu mjög ein­föld, gröfur moka upp vikri á vöru­bíla sem keyra til Þor­láks­hafnar þar sem vik­ur­inn er settur um borð í skip,“ segir mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar.

Í umsögn Heil­brigð­is­eft­ir­lits Suð­ur­lands, sem hefur það hlut­verk að gefa út starfs­leyfi fyrir fram­kvæmd sem þess­ari, er m.a. fjallað sér­stak­lega um flutn­ing­ana af Mýr­dals­sandi og til Þor­láks­hafnar. „Þessi vega­lengd hljómar eflaust stutt í eyrum þeirra erlendu aðila sem eru vanir hrað­brautum heima fyrir, en öðru máli gegnir með að leggja þessa flutn­inga á þá vegi sem hér eru til staðar.“ Leiðin liggi í gegnum mörg sveit­ar­fé­lög og um þétt­býli þriggja. „Slíkir flutn­ingar koma til með að valda ónæði og auka hættu á meng­un­ar­slysum.“

Heil­brigð­is­eft­ir­litið telur æski­legt að reiknað verði út kolefn­is­spor sem hlýst af þessum flutn­ingi „fremur en að fjalla um kolefn­is­spor við rekstur hjúkr­un­ar­heim­ilis á Selfossi,“ líkt og gert er í til­lögu að mats­á­ætlun. Hvetur eft­ir­litið til þess að kannað verði hvort að hægt sé að fara með vik­ur­inn styttri leið til skips, t.d. við Hjör­leifs­höfða.

Í svip­aðan streng er tekið í athuga­semdum Land­verndar. Verk­efnið sé kynnt sem „afar gagn­legt í bar­átt­unni gegn hættu­legum lofts­lags­breyt­ingum“ en að rök­stuðn­ingur sé ekki vel und­ir­byggður. Það komi á óvart að Land­eyj­ar­höfn skuli ekki til­tekin sem val­kostur fyrir útskipun því akst­ursleið þangað er mun styttri en til Þor­láks­hafnar.

„Þá verður ekki séð að raun­veru­leg verð­mæta­sköpun á Íslandi verði mikil þó að auð­lindin sé íslensk,“ segir enn­fremur í athuga­semdum Land­verndar. „Erlendir aðilar eiga bæði verk­smiðju og 90 pró­sent af land­inu þannig að arður eig­enda, auð­lind­arentan, mun leita úr landi. Þá bendir reynslan til þess að þau störf sem myndu skap­ast geti alveg eins fallið í skaut erlendra vinnu­miðl­unar og skili sér því illa inn í sam­fé­lagið. Það er því að mati Land­verndar nauð­syn­legt að greina sam­fé­lags­á­hrif af mik­illi vand­virkni til að koma megi í veg fyrir rangar álykt­anir og í kjöl­farið ranga nið­ur­stöðu.

Land­vernd telur að skjót­virkasta leiðin til að draga úr losun frá sem­enti sé að draga úr notkun þess með því að byggja minni mann­virki og leggja í hönn­un­ar­ferli áherslu á að draga úr sem­ents­notkun sem og end­ur­nýta gamla steypu sem íblönd­un­ar­efni.

Land­vernd minnir svo á að Mýrdalur sé þekktur fyrir mat­væla­fram­leiðslu og nátt­úru­feg­urð sem dragi fjölda ferða­manna að árlega. Samtökin telja ástæðu til að ótt­ast að fórn­ar­kostn­aður vegna áform­aðrar vinnslu yrði mun meiri en hugs­an­legur ávinn­ingur.„Þegar öll kurl koma til grafar verða meiri hags­munir og lang­tíma­hags­munir að vega þyngra en sam­tíma­sjón­ar­mið og minni hags­munir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár