Oddný: Óvirðingin himinhrópandi í ræðu þingmannsins

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýnir orð þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um atvinnu­lausa sem hann lét falla í ræðu­stól Alþingis í gær.

Oddný Harðardóttir og Ásmundur Friðriksson
Oddný Harð­ar­dóttir og Ásmundur Frið­riks­son Mynd: Bára Huld Beck

Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir á Facebook-síðu sinni í dag að óvirð­ingin gagn­vart því fólki sem hefur mátt taka á sig mesta skell­inn í heims­far­aldri hafi verið him­in­hróp­andi í ræðu Ásmundar Frið­riks­sonar þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Alþingi í gær. Þar sagði hann meðal ann­ars að fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni fengi ekki fólk í vinnu því að það vildi taka sum­ar­fríið fyrst á bótum.

Oddný og Ásmundur eru bæði þing­menn Suð­ur­kjör­dæmis og bendir Oddný á í færslu sinni að á því svæði sem þing­mað­ur­inn byggi gengi fjórði hver maður atvinnu­laus.

[adspot]

[links]Jafn­framt vísar Oddný í ályktun sem mið­stjórn ASÍ sendi frá sér í gær en í henni segir að stjórnin hvetji atvinnu­rek­endur og fjöl­miðla til að láta af nei­kvæðri og bein­línis for­dóma­fullri umfjöllun um atvinnu­leit­endur. „Góðar og gildar ástæður geta verið fyrir því að atvinnu­leit­andi geti ekki þegið til­tekið starf. Með því að ein­blína á und­an­tekn­ingar sem kunna að eiga við færri en 2 pró­sent atvinnu­leit­enda er dregin upp röng og meið­andi mynd af þeim þús­undum manna sem leita vinnu á Íslandi og hafa loks fengið von um að brátt taki við betri tíð,” segir í álykt­un­inni.

„Vandinn miklu útbreiddari og alvarlegri en ferðaþjónustan átti von á“

Ásmundur hélt ræðu undir liðnum störf þings­ins í gær en þar sagði hann að fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu gengi illa að fá fólk af atvinnu­leys­is­skrá aftur til starfa. „Fjöldi atvinnu­lausra hafnar vinnu, lætur ekki ná í sig og mætir ekki í við­töl. Ég hafði sam­band við Samtök fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu sem segja frá reynslu sinni frá síð­asta sumri þegar erf­ið­lega gekk að manna ferða­þjón­ust­una og að það sé að end­ur­taka sig. Vandinn er hins vegar miklu útbreidd­ari og alvar­legri en ferða­þjón­ustan átti von á.“

Taldi hann upp nokkur dæmi sem hann hefði fengið upp­lýs­ingar um. „Fyr­ir­tæki sem starfar um allt land hringdi í 60 fyrr­ver­andi starfs­menn sína og eng­inn þeirra vildi koma aftur til vinnu. Sumir Íslend­ingar eru erlendis og aðrir eru farnir til síns heima og vilja vera þar á atvinnu­leys­is­bótum á Íslandi enda eru bætur þar hærri en laun. Fyr­ir­tæki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fékk ekki Íslend­inga í vinnu því að þeir vildu ekki vinna um helgar. Fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni fær ekki fólk í vinnu því að það vill taka sum­ar­fríið fyrst á bótum. Fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni sem eru í veru­legum vanda við að fá fólk. Fyr­ir­tæki á Norð­vest­ur­landi, sem þyrfti að vera með 25 til 30 stöðu­gildi í gist­ingu- og veit­inga­þjón­ustu, nær t.d. bara að manna 12 stöður.“

Ásmundur sagði að sam­kvæmt hans heim­ildum hefði Vinnu­mála­stofnun tekið 350 manns út af bóta­skrá vegna svona mála síð­ustu daga. „Það veldur fyr­ir­tækjum tjóni að þurfa að þjálfa upp nýtt starfs­fólk og þá nýt­ast ekki úrræðin sem boðið er upp á. Fyr­ir­tækin fá ekki ráðn­ing­ar­styrki með nýju fólki sem ekki er ráðið af atvinnu­leys­is­skrá. Nið­ur­staðan er að ef sama ástand heldur áfram hamlar það við­spyrnu grein­ar­innar veru­lega með til­heyr­andi auknum og óþörfum kostn­aði rík­is­ins við atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið auk þess sem verð­mæta­sköpun fer hægar af stað.“

Spurði hann að lokum hvort þetta ástand væri laun­unum eða bóta­upp­hæð­unum um að kenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár