Miðstjórn ASÍ krefst þess að ferðaþjónusta verði ekki endurreist á grundvelli lakari kjara

Allt tal um að atvinnu­leys­is­bætur séu óhóf­lega háar stand­ast ekki skoðun að mati mið­stjórnar ASÍ. Mið­stjórnin hvetur bæði atvinnu­rek­endur og fjöl­miðla til að láta af „nei­kvæðri og bein­línis for­dóma­fullri umfjöllun um atvinnu­leit­endur.“

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Skýr merki er um að ein­stakir atvinnu­rek­endur hygg­ist hefja rekstur á ný með því að þrýsta niður launum starfs­fólks. Þetta kemur fram í nýrri ályktun frá mið­stjórn ASÍ og krefst mið­stjórnin að ferða­þjón­ustan verði ekki end­ur­reist á grund­velli lak­ari kjara og starfs­um­hverfis en áður.

Mið­stjórnin harmar þá „sleggju­dóma“ sem birt­ast í opin­berri umræðu um mál­efni atvinnu­leit­enda. „Sú umræða er ekki studd gögnum og er úr hófi fram nei­kvæð og ein­hliða. Mið­stjórn varar við því að ýtt sé undir for­dóma í umfjöllun um vanda þeirra sem glíma við atvinnu­leysi,“ segir í álykt­un­inni. Mið­stjórnin hvetur bæði atvinnu­rek­endur og fjöl­miðla til að láta af „nei­kvæðri og bein­línis for­dóma­fullri umfjöllun um atvinnu­leit­endur.“

Mið­stjórnin vísar þar til full­yrð­inga nokk­urra atvinnu­rek­enda sem birst hafa í fjöl­miðlum síð­ustu daga. Meðal ann­ars sagði Stein­grímur Birg­is­son, for­stjóri bíla­leig­unnar Höldurs, það í við­tali í Bítinu á Bylgj­unni að hvat­inn til að vinna væri orð­inn lít­ill því atvinnu­leys­is­bætur væru orðnar of háar.

Tal um óhóflega háar bætur standist ekki skoðun

„Þau dæmi sem hafa verið nefnd og fjöl­miðlar hafa gert að frétta­efni heyra til und­an­tekn­inga og ekki hafa komið fram full­nægj­andi skýr­ingar á þeim, hvorki af hálfu atvinnu­rek­enda né Vinnu­mála­stofn­unar,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­innar sem minnir á að atvinnu­leysi sé í sögu­legu hámarki. Nú þegar hafi átakið Hefjum störf engu að síður skilað miklum árangri að mati mið­stjórn­ar­innar.

Hlutfall grunn­bóta af lág­marks­tekju­trygg­ingu er nú lægra en það var á árunum 2006 til 2010 og segir í álykt­un­inni að allt tal um að atvinnu­leys­is­bætur séu fram úr hófi háar stand­ist ekki skoðun. „Grunn­bætur nema 88% af lág­marks­tekju­trygg­ingu en á árunum 2006–2010 var það hlut­fall á bil­inu 90–100%. Tekju­fall atvinnu­lausra í COVID-krepp­unni er að jafn­aði 37% og því aug­ljós að fólk gerir það ekki að gamni sínu að hafna vinnu.“

Varar við fordómum í garð aðflutts verkafólks

Mið­stjórnin vekur athygli á því að aðflutt verka­fólk sé í meiri­hluta þeirra sem eru án atvinnu og varar við for­dómum í garð þessa hóps, „sem auð­veld­lega má lesa úr orðum þeirra atvinnu­rek­enda sem fram hafa komið í fjöl­miðlum.“ Samkvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar er almennt atvinnu­leysi meðal erlendra rík­is­borg­ara hér á landi 23 pró­sent en það er 10,4 pró­sent í heild.

Þá segir mið­stjórnin almenn­ing hafa haldið fyr­ir­tækjum á lífi að und­an­förnu, „Mið­stjórn ASÍ minnir á að þeir atvinnu­rek­endur sem nú veit­ast að atvinnu­leit­endum hafa um margra mán­aða skeið notið marg­vís­legra opin­berra styrkja. Þeir hinir sömu geta nú að auki ráðið starfs­fólk með beinum stuðn­ingi. Með öðrum orðum er það almenn­ingur á Íslandi sem haldið hefur fyr­ir­tækjum atvinnu­rek­enda á lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár