Þeir sem fá dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða verði heimilt að vinna

Þingmenn fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka vilja að útlend­ingar sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða vegna sér­stakra tengsla við Ísland verði und­an­þegnir kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi hér á landi.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þrettán þing­menn Pírata, Flokks fólks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar hafa lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga er varðar tíma­bundið atvinnu­leyfi. Þing­menn­irnir vilja að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega heldur verði þeim heim­ilt að vinna þegar þeir hafa fengið dval­ar­leyfi.

Fyrsti flutn­ings­maður er Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata. Með henni eru þau Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunn­ars­son, Gísli Rafn Ólafsson, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Halldóra Mogensen, Helga Vala Helga­dóttir, Jakob Frímann Magn­ús­son, Jóhann Páll Jóhanns­son, Oddný G. Harð­ar­dóttir, Sigmar Guð­munds­son, Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir.

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að með frum­varp­inu sé lagt til að útlend­ingar sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða vegna sér­stakra tengsla við landið sam­kvæmt lögum um útlend­inga verði und­an­þegnir kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi hér á landi.

Fjöldi einstaklinga með dvalarleyfi en fær ekki að vinna

„Með því er átt við að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, til dæmis vegna þess að þeir upp­fylla ekki skil­yrði þess að fá alþjóð­lega vernd, þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega heldur verði þeim heim­ilt að vinna þegar þeir hafa fengið dval­ar­leyfi.

Núver­andi fyr­ir­komu­lag leiðir til þess að hér á landi dvelur tals­verður fjöldi ein­stak­linga sem hefur fengið heim­ild til dvalar af fram­an­greindum ástæðum, án þess að hafa heim­ild til þess að sjá fyrir sér með atvinnu­þátt­töku,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá er bent á að atvinnu­leyf­is­um­sóknir ein­stak­linga með dval­ar­leyfi af þessu tagi séu jafnan sam­þykktar hjá Vinnu­mála­stofnun en ferlið feli engu að síður í sér hindr­anir sem tak­marka aðgengi þeirra að vinnu­mark­aði.

Þess er getið að breyt­ing­arnar sem lagðar eru til í frum­varp­inu hafi áður verið lagðar fram í frum­varpi dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um útlend­inga og lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga. Það frum­varp sé þó þeim ágalla haldið að þrátt fyrir þær jákvæðu breyt­ingar sem hafi verið að finna í því hefði frum­varpið að geyma aðrar breyt­ingar á lögum um útlend­inga sem ágrein­ingur sé um. Hafi þær komið í veg fyrir að þær óum­deildu breyt­ingar sem lagðar eru hér fram nái fram að ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár