Þrjátíu úkraínskir flóttamenn þegar komnir með vinnu

Um 150 atvinnu­rek­endur hér á landi hafa sýnt því áhuga að ráða flótta­fólk til starfa. Þegar hafa verið gefin út þrjá­tíu atvinnu­leyfi til fólks frá Úkraínu og sífellt fleiri bæt­ast við.

Fjölskylda á flótta frá Maríupol. Þúsundir borgarbúar hafa verið þar innlyksa síðustu vikur.
Fjöl­skylda á flótta frá Maríupol. Þúsundir borg­ar­búar hafa verið þar inn­lyksa síð­ustu vikur. Mynd: EPA

Íslenskir atvinnu­rek­endur hafa tekið ákalli Vinnu­mála­stofn­unar um að ráða flótta­fólk til starfa vel. Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri stofn­un­ar­innar, segir að þegar hafi um 150 atvinnu­rek­endur lýst yfir áhuga á að ráða flótta­fólk í vinnu og að 120 störf hafi verið skráð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þrjátíu atvinnu­leyfi hafa verið gefin út til Úkra­ínu­manna síð­asta mán­uð­inn. „Dreifing starf­anna er allt frá ræst­ingu upp í sér­fræð­inga í tækni­geir­anum og ráð­gjafa í félags­þjón­ustu,“ segir Unnur.

Umsóknum um atvinnu­leyfi Úkra­ínu­manna fjölgar sífellt. Í gær voru fjórar umsóknir til afgreiðslu og um hádegið bætt­ust við 20 umsóknir sem fóru til afgreiðslu síð­degis í gær eða í morgun. „Þetta eru störf í ferða­þjón­ustu, bygg­ing­ar­iðn­aði, mat­væla­vinnslu og öldr­un­ar­þjón­ustu,“ segir Unnur. Flest leyfin hafa farið á suð­vest­ur­hornið en einnig til Akur­eyrar, Dalvíkur, í Borg­ar­fjörð, Reyð­ar­fjörð og á fleiri staði. „Búist er við að álagið auk­ist jafnt og þétt næstu vik­urnar, að minnsta kosti hvað atvinnu­leyfin varðar.“

[adspot]

Spurð hvort að Úkra­ínu­menn­irnir séu að fá störf við sitt hæfi miðað við sína starfs­reynslu og menntun segir Unnur of snemmt að meta það. Fólkið sé nýkomið til lands­ins og mjög mis­jafnt hvort það sé að leita að starfi til skamms tíma eða setji strax stefn­una á fram­tíð­ar­starf. „Okkur sýn­ist að sem stendur sé áherslan á það fyrra,“ segir hún. „Þá er þessum ein­stak­lingum frjálst að skipta um eða bæta við sig vinnu kjósi þeir það.“

Fyrir helgi höfðu 872 mann­eskjur frá Úkraínu sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi vegna inn­rásar Rússa í land þeirra. Í hópnum er 461 kona, 242 börn og 168 karlar. Að með­al­tali koma um fimm Úkra­ínu­menn hingað til lands á dag og má því búast við að fjöldi þeirra sem hér hafa sótt um hæli nálgist nú 900.

Um 5,5 millj­ónir manna hafa flúið Úkraínu og til nágranna­ríkj­anna í Evrópu frá því að inn­rásin hófst 24. febr­úar.

Flótta­menn frá Úkraínu þurfa að fá útgefið atvinnu­leyfi til að mega starfa á Íslandi þar sem þeir fá útgefið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjóð­ar­miða. Atvinnu­rek­andi sem ætlar að ráða flótta­mann frá Úkraínu til starfa þarf því að sækja um atvinnu­leyfi og leyfið sam­þykkt áður en starfs­maður má hefja störf.

Er þetta ferli ekki of flókið og frá­hrind­andi?

Afgreiðslu­tím­inn er milli 1-3 dagar sem stendur og helst von­andi þannig, svarar Unnur. „Ekki hefur orðið vart við sér­stakar óánægju­raddir með afgreiðslu­fer­il­inn í okkar sam­skiptum við atvinnu­rek­endur. Þetta eru tvö blöð sem þarf að fylla út, umsókn og ráðn­ing­ar­samn­ingur og við­kvæðið á síma­tím­anum hefur frekar verið að þetta sé ein­fald­ara en búist hafi verið við.“

Hún telur jafn­framt vert að halda því til haga að við útgáfu atvinnu­leyfa gef­ist kostur á að gæta að launum fólks­ins og fleiru sem lýtur að rétt­indum starfs­fólks.

Viltu ráða flótta­fólk til starfa? Hér getur þú fundið allar upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár