Undirmönnun á stofnunum hafi flækt fyrir styttingu vinnuvikunnar

Stytting vinnu­vik­unnar hjá rík­is­starfs­mönnum í vakta­vinnu var inn­leidd 1. maí síð­ast­lið­inn en enn hefur ekki verið gengið frá fjár­mögnun kostn­að­ar­auka allra stofn­ana. Eðlilegt sé að ferlið taki sinn tíma að mati for­manns BSRB.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir er for­maður BSRB. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki er búið að ganga frá fjár­mögnun vegna stytt­ingar vinnu­vik­unnar hjá mörgum rík­is­stofn­unum en inn­leið­ing stytt­ingar vinnu­vik­unnar tók gildi þann 1. maí síð­ast­lið­inn. Í sam­tali við Kjarnann segir Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, eðli­legt að ferlið taki tíma. Búist hafi verið við ein­hverju yfir­vinnu­skoti á fyrstu vik­unum eftir inn­leið­ing­una en sam­talið þok­ast áfram, það sé til að mynda á loka­metr­unum hjá heil­brigð­is­stofn­unum.

„Það hefur svo­lítið verið ýjað að því að þetta sé annað hvort fagráðu­neyt­unum að kenna eða fjár­mála­ráðu­neyt­inu að kenna eða stjórn­endum við­kom­andi stofn­ana en þetta er bara svo marg­slungið, þú getur ekki fundið blóra­böggul­inn í þessu,“ segir Sonja.

Að sögn Sonju var gert ráð fyrir fjár­mögnun vegna stytt­ingar vinnu­vik­unnar þegar gengið var frá kjara­samn­ingum. „Það sem var lagt upp með var að inn­leið­ingin á öllum stofn­unum tæki auð­vitað mið af starf­sem­inni á hverjum stað og fólk færi í umbóta­sam­tal og grein­ingu á starf­sem­inni,“ segir Sonja.

Út frá þeim for­sendum sem lagt var upp með í verk­efn­inu hafi svo verið hægt að meta kostnað og mönn­un­ar­gat hverrar stofn­unar fyrir sig. Nið­ur­stöð­urnar úr und­ir­bún­ings­vinnu var svo skilað til hvers fagráðu­neytis fyrir sig, til dæmis skilar lög­reglan sínum nið­ur­stöðum til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, heil­brigð­is­stofn­anir til heil­brigð­is­ráðu­neytis og svo fram­vegis.

„Síðan fer þetta í stærra sam­tal, milli fagráðu­neyta við fjár­mála­ráðu­neytið, þar sem er einn heild­ar­pottur undir og það er verið að útdeila úr honum í sam­ræmi við þessa vinnu sem hefur farið fram á stofn­unum. Það ein­fald­lega tók tíma, það er ekki ein­hverjum einum um að kenna. Þetta er bara mjög fjöl­breytt og stórt verk­efni og margt sem að hafði áhrif,“ segir Sonja.

Árlegur kostnaður 4,2 milljarðar

Þessi heild­ar­pottur fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem um ræðir má segja að sé 4,2 millj­arðar að stærð. Sú fjár­hæð er áætl­aður árlegur kostn­aður við inn­leið­ingu stytt­ingar vinnu­vik­unnar. Þetta kom fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn um fjár­mögnun stytt­ingar vinnu­vik­unnar frá Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­manns Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs. Í svari Bjarna kom enn fremur fram að vakta­vinnu­fólk væri um þriðj­ungur rík­is­starfs­manna í um fjórð­ungi stöðu­gilda, það er um 7300 starfs­menn í 5500 stöðu­gildum.

Sonja segir að það hafi verið stór for­senda fyrir verk­efn­inu að fólk myndi hækka starfs­hlut­fall sitt. Það hafi að stærstum hluta gengið eftir. „Það sem kostar mest, og þær stofn­anir sem þurfa mest fjár­magn eru þær sem eru með starfs­fólk sem er aðal­lega í 100 pró­sent starfs­hlut­falli, eins og lög­reglu­emb­ættin og toll­verðir og fanga­verðir,“ segir Sonja. Nú þegar hefur nið­ur­staða feng­ist í fjár­mögnun kostn­að­ar­auka hjá lög­regl­unni sem til­kynnt var um í síð­ustu viku.

Áhyggjur af hlutfalli faglærðra

Samkvæmt til­kynn­ingu á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hljóðar kostn­að­ar­mat fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins upp á 900 millj­ónir króna á ári og „sú fjár­hæð er ekki véfengd af dóms­mála­ráðu­neyt­inu eða emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Með þessu er fengin mjög far­sæl lausn á þessu máli sem vakið hefur spurn­ingar um hvort lög­reglan myndi veikj­ast við þessar breyt­ingar.“

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að fjár­veit­ingar vegna næsta árs verði útfærðar í fjár­laga­frum­varpi síðar á árinu en við­bætur munu koma inn í rekstur lög­reglu­emb­ætt­anna á þessu ári „sem taka mið af raun­kostn­aði við að fylla upp í vaktir með við­bót­ar­mönnun, auk þess sem til­lit verður tekið til fjár­hags­stöðu á hverju emb­ætti,“ líkt og það er orðað í til­kynn­ing­unni.

Degi áður en til­kynnt var um þessa nið­ur­stöðu kostn­að­ar­mats og auknar fjár­veit­ingar til lög­regl­unnar vegna stytt­ingar vinnu­vik­unnar sendi stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna frá sér ályktun þar sem sam­bandið lýsti yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem lög­reglan stæði frammi fyrir. Að mati sam­bands­ins væru of fáir lög­reglu­menn við störf og hlut­fall lærðra lög­reglu­manna orðið „hættu­lega“ lágt.

„Ljóst er að eftir að stytt­ing vinnu­vik­unnar tók gildi þann 1. maí síð­ast­lið­inn hefur staða lög­gæslu á Íslandi versnað til muna,“ sagði í álykt­un­inni og kallað var eftir því að ríkið setti aukið fé í menntun lög­reglu­manna til þess að hægt væri að manna lög­regl­una með við­eig­andi hætti. Auk þess er kallað eftir fjár­magni til að ráða við­bót­ar­mann­skap vegna stytt­ingar vinnu­vik­unnar.

Viðbúið yfirvinnuskot

Þrátt fyrir að búið sé að ganga frá kostn­að­ar­mati lög­regl­unnar þá eru aðrar stéttir sem enn eiga eftir að fá sinn skerf úr pott­inum. Þangað til fjár­magn fæst er það undir hverri stofnun komið hvernig glímt er við fjár­skort­inn sem af stytt­ingu vinnu­vik­unnar hlýst, hvort stofn­an­irnar verði reknar með halla, hvort þjón­usta verði lak­ari eða hvort meira álag fær­ist ein­fald­lega á starfs­fólk.

„Það er í grunn­inn bara ákvörðun stjórn­enda hverrar stofn­unar, hvernig þau mæta þessu og við gerðum ráð fyrir, við sem stöndum að verk­efn­inu, að það þyrfti aðlög­un­ar­tíma og á þeim stofn­unum þar sem ekki tekst að ráða í mönn­un­ar­gatið gæti komið til tíma­bund­ins yfir­vinnu­skots á fyrstu vik­unum á meðan enn væri verið að átta sig á mönn­un­ar­þörf­inni.“ segir Sonja.

Hún segir að fyrstu vikur stytt­ing­ar­innar hafi verið mikið lær­dóms­ferli, og nefnir hún Land­spít­al­ann í því sam­hengi. „Land­spít­al­inn er kannski fyrst að átta sig á því núna hver mönn­un­ar­þörfin er raun­veru­lega. Það er búið að liggja alltaf eitt­hvað mat fyrir og svo hefur það upp­færst reglu­lega. Það er bara svo­lítið hluti af því að þegar þú ferð í svona risa­stóra kerf­is­breyt­ingu og ert að reka stærsta vinnu­stað lands­ins.“

Fram hefur komið, meðal ann­ars í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins, að fjár­magns­þörf Land­spít­al­ans sé um tveir millj­arðar árlega og að ráða þurfi 200 manns. Spurð að því hvort það fjár­magn sé tryggt segir Sonja að fagráðu­neytið, þ.e. heil­brigð­is­ráðu­neytið, og fjár­mála­ráðu­neytið þurfi að kom­ast að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu um mat á fjár­magns­þörf.

„Það er svo annað mál hvort það sé sam­eig­in­leg nálgun á það hjá fagráðu­neyt­inu og fjár­mála­ráðu­neyt­inu og við­kom­andi stofnun hver þörfin er. Kannski þess vegna tekur sam­talið tíma, því þau eru að kom­ast að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu um það. Síðan er aðal­upp­leggið að það sé verið að inn­leiða þetta í sam­ræmi við mark­mið og leið­ar­ljós verk­efn­is­ins,“ segir Sonja.

Ýmislegt blandast inn í umræðuna

Spurð að því hvort að nið­ur­staðan í fjár­veit­ingum til Land­spít­al­ans gæti orðið ein­hvers konar mála­miðl­un­ar­tala segir Sonja að ráðu­neytin geti ekki kom­ist að einni réttri nið­ur­stöðu við mat á kostn­aði.

„En út frá leið­ar­ljósi verk­efn­is­ins þá ættu báðir aðilar að vera sam­mála. Það sem auð­vitað flækir kannski fyrir hjá stofn­un­unum þá eru mjög margar að stríða við und­ir­mönnun nú þegar, það er að segja það fæst ekki fólk til starfa og svo kannski þriðji þátt­ur­inn sem hefur komið inn í fjöl­miðla­um­ræð­una núna, er að á sumum vinnu­stöðum þá telja þau ein­fald­lega að stöðu­gildin ættu að vera fleiri en hafa ekki fengið fjár­magn til þess.“

Sonja segir það mjög skilj­an­legt að stofn­anir vilji tryggja sem besta þjón­ustu en að margt sem ekki komi stytt­ingu vinnu­vik­unnar við bland­ist inn í umræð­una. „Þetta er að ein­hverju leyti stundum ólíkir hags­munir en samt erum við öll að vinna að því sama,“ segir hún.

Nú sé þess ekki langt að bíða að búið verði að ganga frá lausum endum hjá þeim stofn­unum sem enn eiga eftir að fá fjár­mögnun stað­festa að sögn Sonju. „Þetta er búið að vera virkt og mikið sam­tal og mér skilst að sam­talið við heil­brigð­is­stofn­an­irnar sé á loka­metr­unum þannig að það ætti ekki að vera mikið lengri tími til við­bótar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár