Síldarvinnslan kaupir Vísi á 31 milljarð – Fara sennilega yfir löglegt kvótaþak

Systk­inin sem eiga Vísi munu hvert og eitt verða millj­arða­mær­ingar ef kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni verða sam­þykkt. Sam­þjöppun í íslenskum sjáv­ar­út­vegi eykst enn frekar og Samherji og mögu­lega tengdir aðilar verða með um fjórð­ung kvót­ans.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Skjáskot/Youtube

Síld­ar­vinnslan hefur keypt útferð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í Grinda­vík á 31 millj­arð króna​​. Félagið greiðir 20 millj­arða króna fyrir allt hlutafé í Vísi auk þess sem það tekur yfir ell­efu millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum. Alls verður 30 pró­sent af kaup­verð­inu, sex millj­arðar króna, greiddir með reiðufé en 14 millj­arðar króna verða greiddir með nýju hlutafé í Síld­ar­vinnsl­unni. Vísir er í eigu sjö ein­stak­linga sem öll tengj­ast fjöl­skyldu­böndum. Stærstan hlut á Pétur Haf­steinn Pálsson, for­stjóri Vísis, sem mun halda áfram sem aðal­fram­kvæmda­stjóri félags­ins eftir sam­ein­ingu. Pétur á 20,14 pró­sent hlut og því fær hann rúma fjóra millj­arða króna í sinn hlut við söl­una. Fjórar systur hans eiga 15,97 pró­sent hlut hver og fá um 3,2 millj­arða króna í sinn hlut. Hjónin Guðmunda Krist­jáns­dóttir og Páll Jóhann Pálsson, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og bróðir Péturs, eiga líka sam­tals 15,97 pró­sent og fá sömu upp­hæð.

Kaupin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, því að áreið­an­leika­könnun skili full­nægj­andi nið­ur­stöðu og að hlut­hafa­fundur Síld­ar­vinnsl­unnar sam­þykki kaupin. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að höf­uð­stöðvar bol­fisk­vinnslu Síld­ar­vinnsl­unnar verði í Grinda­vík gangi áformin eftir.

Þetta eru önnur risa­við­skipti Síld­ar­vinnsl­unnar á skömmum tíma. Fyrir mán­uði síðan var til­kynnt um kaup á 34,2 pró­sent hlut í norska lax­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish Holding AS fyrir um 13,7 millj­arða króna. Það félag á allt hlutafé í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi og rekur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum þar sem félagið er með rúm­lega 27 þús­und tonna leyfi fyrir eldi í sjó.

Fara yfir löglegt kvótaþak

Bæði Síld­ar­vinnslan og Vísir eru risa­stór útgerð­ar­fyr­ir­tæki á íslenskan mæli­kvarða. Það fyrr­nefnda var skráð á markað í fyrra, velti rúm­lega 30 millj­örðum króna á árinu 2021 og hagn­að­ist um ell­efu millj­arða króna. Því er sá hluti sem Síld­ar­vinnslan greiðir í reiðufé fyrir Vísi, sex millj­arðar króna, um 55 pró­sent af hagn­aði eins árs í rekstri Síld­ar­vinnsl­unnar.

Vísir velti um tíu millj­örðum króna í fyrra og hagn­að­ist um lið­lega 800 millj­ónir króna.

Verði þessi við­skipti stað­fest af hlut­hafa­fundi Síld­ar­vinnsl­unnar hf. og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu núver­andi fisk­veiði­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­sent hámark sem hver útgerð má sam­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta. Vísir hélt á 2,16 pró­sent af úthlut­uðum kvóta þegar greint var frá því hvernig hann skipt­ist á milli útgerða í nóv­em­ber í fyrra. Síld­ar­vinnslan var þá skráð með 9,41 pró­sent af úthlut­uðum kvóta og því ljóst að annað hvort félagið, eða bæði, hafa bætt við sig kvóta síðan þá.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni segir að komi til þess að kvóta­þakið verði rofið hafi félagið sex mán­uði til að kom­ast undir það á ný. „Veiði­heim­ildir í upp­sjáv­ar­teg­undum – einkum loðnu - eru breyti­legar milli ára og hafa því óhjá­kvæmi­lega áhrif á kvóta­þak frá ári til árs. Enn ríkir óvissa um úthlut­anir í afla­heim­ildum upp­sjáv­ar­fisks á næsta ári.“

Mikil samþjöppun í geiranum

Mikil sam­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­stak­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­ar­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að það hlut­fall væri komið upp í rúm­lega 67 pró­sent. Sam­þjöpp­unin eykst enn við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

Sam­hliða þess­ari þróun hefur hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­ar­lega. Hagn­aður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út árið 2020 var alls um 665 millj­­arðar króna á umræddu tíma­bili, sam­kvæmt sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­­hæð fór undir 30 pró­­sent til íslenskra rík­­is­ins, eig­anda auð­lind­­ar­inn­­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veið­i­­gjalda. En rúm­­lega 70 pró­­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna. Gera má ráð fyrir að hagn­aður geirans hafi verið gríð­ar­legur í fyrra og að hann verði mjög mik­ill í ár líka.

Samherji og mögulega tengdir aðilar með næstum fjórðung

Miðað við nýjasta birta lista Fiski­­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­­ar­vinnslan, ásamt dótt­­ur­­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 9,41 pró­­sent hans. Þá keypti Síld­ar­vinnslan útgerð­ar­fyr­ir­tækið Berg Hug­inn á árinu 2020 en það heldur á 1,03 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

[links]Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti þá nið­­ur­­stöðu frum­­mats síns í febr­­úar 2021 að til staðar væru vís­bend­ingar um um yfir­­­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­­­leg yfir­­­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­­­ar­vinnsl­unn­i. ­Síðan að sú nið­­ur­­staða var birt hef­­ur, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, verið kallað eftir gögnum frá stjórn­­völd­um, Sam­herja, Síld­­ar­vinnsl­unni og öðrum tengdum aðilum vegna máls­ins. Sú gagna­öflun hafi gengið vel en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráð­ist verði í for­m­­lega rann­­sókn á mál­in­u.

Stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unn­ar, sem var skráð á hluta­bréfa­markað í fyrra, eru Sam­herji hf. (32,64 pró­sent) og Kjálka­nes ehf. (17,44 pró­sent), ­fé­lags í eigu Björg­­ólfs Jóhanns­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­skyld­u­­bönd­­um. Auk þess á Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­ars í eigu Sam­herja og Björg­ólfs, 3,79 pró­sent hlut. Sam­an­lagt halda því þessir þrír aðilar á um 53,9 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni og skipa þrjá af fimm stjórn­ar­mönnum þess.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með fjórðu mestu afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­sent. ­Út­­­­­­­gerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,1 pró­­­­­­­­sent kvót­ans.

Gjög­­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­­nes, heldur svo á 2,5 pró­­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­­um.

Þessir aðil­­ar: Síld­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­legt að séu tengd­ir, héldu því sam­tals á 22,14 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­em­ber í fyrra. Nú bæt­ist 2,16 pró­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Samherja og mögu­legra tengdra aðila fer upp í 24,3 pró­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár