Vísir og Þorbjörn hætta við sameiningu

Tvö stór sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í Grinda­vík, sem saman halda á 8,4 pró­sent af öllum úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta, eru hætt við að sam­ein­ast. Þess í stað ætla þau að halda góðu sam­starfi áfram.

Höfuðstöðvar Vísis í Grindavík.
Höf­uð­stöðvar Vísis í Grinda­vík. Mynd: Vísir

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Vísir og Þorbjörn í Grinda­vík hafa ákveðið að form­lega hætta við­ræðum um áður fyr­ir­huhug­aða sam­ein­ingu.

Við­ræð­urnar hafa staðið yfir frá því í sept­em­ber í fyrra og til stóð að sam­einað fyr­ir­tæki myndi taka til starfa um síð­ustu ára­mót. Nú er ljóst að af því verður ekki.

Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tækj­unum kemur fram að eftir yfir­ferð á til­lögum, sem vinnu­hópar skil­uðu af sér í sam­ein­ing­ar­við­ræð­unum, sé nið­ur­staðan sú að „fara ekki með sam­ein­ing­ar­mál lengra að sinni, en halda þess í stað góðu sam­starfi Þor­bjarnar hf. og Vísis hf. áfram og nýta nið­ur­stöðu vinnu­hópanna til að styrkja það sam­starf enn frekar.“

[adspot]Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu nú telja eig­endur fyr­ir­tækj­anna tveggja að hún úti­loki ekki aðra mögu­leika í fram­tíð­inni.

Vísir og Þor­­björn eru á meðal stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins. Samtals halda þau á 8,4 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta, eða alls um 44 þús­und tonn. Yfir 600 manns starfa hjá fyr­ir­tækj­unum tveimur.

Vísir og Þorbjörn hafa í gegnum árin unnið tals­vert saman, enda bæði með meg­in­starf­semi sína í Grinda­vík. Þau eiga meðal ann­ars félög saman á borð við Haustak, Codland og sölu­fyr­ir­tæki á Grikk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár