Arðgreiðslur úr sjávarútvegi 18,5 milljarðar í fyrra

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki högn­uð­ust sam­an­lagt um 65 millj­arða króna í fyrra. Þar af voru 18,5 millj­arðar króna greiddir út í arð til eig­enda fyr­ir­tækj­anna. Bókfært eigin fé sjáv­ar­út­vegs­fé­laga nam 353 millj­örðum undir lok síð­asta árs.

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki högnuðust samanlagt um 65 milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt því sem fram kemur í nýjum Sjávarútvegsgagnagrunni Deloitte.
Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki högn­uð­ust sam­an­lagt um 65 millj­arða króna á síð­asta ári, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýjum Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte. Mynd: Úr safni.

Arð­greiðslur til eig­enda íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja námu sam­an­lagt um 18,5 millj­örðum króna á árinu, en sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiddu 22,3 millj­arða króna í bein opin­ber gjöld árið 2021. Þar af greiddu fyr­ir­tækin í grein­inni 7,9 millj­arða í veiði­gjöld, 9,2 millj­arða í tekju­skatt og 5,2 millj­arða í áætlað trygg­inga­gjald.

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki högn­uð­ust sam­an­lagt um 65 millj­arða króna á síð­asta ári. Heild­ar­tekjur félag­anna sem starfa í grein­inni voru 309 millj­arðar króna og juk­ust um 25 millj­arða frá fyrra ári, eða sem nemur 8,8 pró­sentum.

Bókfært eigið fé félaga í grein­inni jókst um 28 millj­arða króna á milli ára og nam 353 millj­örðum króna við árs­lok. Þá er um að ræða hreinar eignir fyr­ir­tækj­anna þegar búið er að greiða út arð og gera upp öll opin­bergjöld. Bókfært fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefur auk­ist um alls 132 millj­arða króna frá árinu 2014.

Þetta er á meðal þess sem kom fram í kynn­ingu Jónasar Gests Jón­as­sonar end­ur­skoð­anda hjá Deloitte, en hann kynnti hinn árlega Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunn Deloitte á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2022, sem fram fór í morgun á Hilton Nordica.

[adspot]

Gagna­grunnur Deloitte nær á þessu ári utan um rekstur 94 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi en fjár­hæð­irnar hafa verið upp­reikn­aðar upp í 100 pró­sent til að end­ur­spegla öll fyr­ir­tækin í grein­inni.

Miklar gengissveiflur

Framlegð í sjáv­ar­út­vegi er mikil um þessar mundir í sögu­legu sam­hengi, sagði Jónas Gestur í kynn­ingu sinni, en EBITDA fram­legðin var 25 pró­sent á síð­asta ári.

Mikil sveifla varð á milli ára í geng­is­af­komu sjáv­ar­út­vegs­fé­laga, en eftir að hafa tapað 19 millj­örðum vegna geng­is­mis­munar árið 2020 högn­uð­ust íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um 7 millj­arða króna vegna geng­is­breyt­inga á síð­asta ári.

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja hélt tölu í kjöl­far þess að Jónas Gestur fór yfir töl­urnar út gagna­grunni Deloitte og velti því þar upp að greina mætti þessar geng­is­sveiflur grein­ar­innar betur, enda mun­ur­inn á afkomu 26 millj­arðar króna á milli ára.

Heild­ar­skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja voru 457 millj­arðar króna við lok síð­asta árs og bættu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki við sig 21 millj­arði króna af nýjum lang­tíma­skuldum árið 2021, umfram afborg­anir. Heild­ar­skuldir geirans lækka þó á milli ára, í fyrsta sinn frá árinu 2017. Fjár­fest­ingar í var­an­legum fasta­fjár­munum námu 25 millj­örðum króna á síð­asta ári.

Veiðigjöld frá 2016 undir helmingi af arðgreiðslum

Árið 2020 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki 21,5 millj­arða króna í arð, sem var hæsta upp­hæð sem greidd hafði verið út í arð úr grein­inni á einu ári. Inni í þeirri tölu voru rúm­lega 10 millj­arðar króna sem dótt­ur­fé­lög Samherji greiddu til móð­ur­fé­lags sam­stæð­unnar.

Arð­greiðsl­urnar á síð­asta ári voru sem áður segir 18,5 millj­arðar króna á síð­asta ára og lækka þannig um þrjá millj­arða króna á milli ára, en arð­greiðslur Síld­ar­vinnsl­unar í kjöl­far þess að félagið var skráð á hluta­bréfa­markað og seldi hlut sinn í Sjóvá spila þar stærstan þátt.

Heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út síð­asta árs nema um 89 millj­örðum króna. Á sama tíma hafa fyr­ir­tækin í geir­anum greitt 43,8 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða sem nemur rétt innan við helm­ingi þess fjár sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa greitt í arð­greiðslur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár