Allir græða á friðun: Túnfiskur dafnar og veiðar á honum líka

Það borgar sig að friða stór haf­svæði sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar rann­sóknar þar sem rýnt var í gögn frá tíu ára tíma­bili.

Lífríkið hefur tekið miklum og jákvæðum breytingum eftir að Papahānaumokuākea-verndarsvæðið var stofnað og svo stækkað.
Lífríkið hefur tekið miklum og jákvæðum breyt­ingum eftir að Papa­hānaumokuākea-vernd­ar­svæðið var stofnað og svo stækkað. Mynd: James Watt

Stór svæði sem vernduð eru fyrir veiðum geta flýtt fyrir bata verð­mætra fiski­stofna. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar þar sem rýnt var í gögn á tíu ára tíma­bili. Samkvæmt rann­sókn­inni jókst afli tveggja tún­fisk­teg­unda umtals­vert í nágrenni svæðis sem friðað var fyrir veiðum undan ströndum Hawaii-eyj­anna.

„Þetta er gott fyrir fisk­inn og þetta er gott fyrir fiski­menn­ina,“ hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir Jennifer Raynor, hag­fræð­ingi við Wisconsin-háskóla. Raynor er einn höf­unda rann­sókn­ar­innar sem birt var í októ­ber­hefti Nature.

Nið­ur­stöð­urnar sýna fram á verð­mæti þess að friða stór haf­svæði. Slíkt hefur verið gert í sífellt meira mæli síð­ustu árin, aðal­lega í Kyrra­haf­inu. Þjóðir heims hafa skuld­bundið sig til, með alþjóða­samn­ingum, að friða 30 pró­sent af landi sínu og haf­svæðum fyrir árið 2030.

[adspot]

Fyrri rann­sóknir á áhrifum frið­unar fyrir veiðum hafa sýnt að slíkar ákvarð­anir geta hjálpað vexti og bata stað­bund­inna sjáv­ar­líf­vera, s.s. kór­alla og humra. Reynor og félagar vildu hins vegar kanna hvort að friðun svæða gæti líka haft jákvæð áhrif á far­teg­undir, þ.e. á sjáv­ar­dýr sem fara um stór svæði og á milli svæða eftir t.d. árs­tíma og hvort að slíkt gagn­ist þá sjáv­ar­út­veg­inum.

Vís­inda­menn­irnir völdu að gera rann­sókn sína í og við eitt stærsta vernd­ar­svæði hafs­ins, Papa­hānaumokuākea, nátt­úru­vætti sem þekur 1,5 milljón fer­kíló­metra við strendur Hawaii-eyja. Friðlandið var stofnað árið 2006 og stækkað árið 2016. Meg­in­til­gangur frið­un­ar­innar er að vernda nátt­úru svæð­is­ins og menn­ingu. Vís­inda­hóp­ur­inn ein­beitti sér að áhrifum frið­un­ar­innar á veiðar á tveimur tún­fisk­teg­undum. Safnað var gögnum um afla á tíu ára tíma­bili, frá 2010-2019, með áherslu á veiðar í allt að 600 sjó­mílna fjar­lægð út frá mörkum vernd­ar­svæð­is­ins.

Nið­ur­staðan var sú að eftir að vernd­ar­svæðið var stækkað jókst afli, þ.e. hversu margir tún­fiskar komu á hverja þús­und króka línu. Aflinn varð meiri eftir því sem veitt var nær vernd­ar­svæð­inu. Í innan við 100 sjó­mílna fjar­lægð frá mörkum svæð­is­ins jókst afli ann­arrar tún­fisk­teg­und­ar­innar um 54 pró­sent eftir að það var stækkað árið 2016. Afli af hinni teg­und­inni jókst um 12 pró­sent á sama tíma­bili og sömu­leiðis jókst afli af öðrum fiski­teg­undum.

Reynor segir að tún­fisk­teg­undin yellowfin, sú sem virð­ist hafa bragg­ast mikið eftir að vernd­ar­svæðið var stofnað, hrygni innan þess. Það skýri hvers vegna afli á teg­und­inni auk­ist – þegar hrygn­ing­ar­slóðir séu frið­aðar skili það árangri. „Það er áhuga­vert að sjá að sjáv­ar­út­veg­ur­inn nýtur góðs af þessu frið­aða haf­svæði,“ hefur Nature eftir David Kroodsma, for­svars­manni Alþjóð­legu sjáv­ar­vakt­ar­innar, banda­rískrar rann­sóknar- og nýsköp­un­ar­mið­stöðvar.

Þekking heimamanna og vísindin vinna saman

Hann segir hins vegar að hafa verði í huga að nið­ur­stöð­urnar snerti rann­sókn á einu haf­svæði og að þær sé ekki hægt að yfir­færa án frek­ari rann­sókna á önnur haf­svæði heims­ins. Hins vegar styrki nið­ur­stöð­urnar þær kenn­ingar að friðun skili árangri, ekki aðeins fyrir heil­brigði sjávar heldur hafi einnig jákvæð efna­hags­leg áhrif til lengri tíma.

Stjórn­völd í Hawaii-ríki og banda­ríska alrík­is­stjórnin unnu saman að stofnun Papa­hānaumokuākea-vernd­ar­svæð­is­ins. Nature hefur eftir Kekuewa Kikiloi, menn­ing­ar­fræð­ingi við Mānoa-háskóla á Hawaii, segir nátt­úru­vættið gott dæmi um sam­starf sem byggi á þekk­ingu heima­manna og nútíma vís­indum. Hann segir þessa nálgun vel geta gagn­ast ann­ars staðar í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár