Endurskoðandi ætlar að kæra hagfræðiprófessor til siðanefndar HÍ

Birkir Leósson end­ur­skoð­andi og Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor hafa und­an­farnar tvær vikur tek­ist á um starfs­að­ferðir end­ur­skoð­enda sjáv­ar­út­vegs­fé­laga á síðum Frétta­blaðs­ins. Birkir hefur ákveðið að kæra Þórólf til siða­nefndar Háskóla Íslands.

Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Aðsend

Birkir Leósson end­ur­skoð­andi hefur ákveðið að kæra Þórólf Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands til siða­nefndar HÍ, í kjöl­far rit­deilu þeirra á milli sem átt hefur sér stað á síðum Frétta­blaðs­ins. Þetta má lesa í grein Birkis í Frétta­blað­inu í dag.

Í grein sinni ritar Birkir að hann hafi ákveðið að kæra Þórólf til siða­nefnd­ar­innar þar sem það sé „ó­líð­andi að pró­fessor á háum launum af skatt­fé saki aðra opin­ber­lega að til­efnis­lausu um fjár­svik, önnur lög­brot, van­hæfni, geri mönnum upp skoð­anir, hafi rangt eftir mönnum, haldi í­trekað fram ó­sann­indum o.s.frv.“ og segir Birkir að með slíkri fram­göngu skaði Þórólfur orð­spor há­skól­ans.

Þórólfur gagnrýnir ársreikning Vísis hf.

Ritdeila þeirra Þórólfs og Birkis hefur snú­ist um gagn­rýni pró­fess­ors­ins á reikn­ings­skil og end­ur­skoðun árs­reikn­ings sjáv­ar­út­vegs­fé­lags­ins Vísis, sem Birkir hefur haft aðkomu að í sínum störfum. Skeyti hafa gengið þeirra á milli á síðum blaðs­ins und­an­farnar tvær vikur, eða frá því að Þórólfur hóf upp raust sína með grein þann 15. júlí. Þeirri grein svar­aði Birkir þann 21. júlí.

[adspot]

Í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu núna á þriðju­dag svar­aði Þórólfur Birki á ný og gagn­rýndi starfs­hætti end­ur­skoð­enda Vísis og ann­arra sjáv­ar­út­vegs­fé­laga nokkuð harð­lega. Hann sagði meðal ann­ars að þeir örfáu ein­stak­lingar sem bæru ábyrgð á end­ur­skoðun reikn­inga íslenskra útgerð­ar­fyr­ir­tækja hefðu „skapað þá venju að hunsa skýr fyrir­mæli í 5. gr. árs­reikn­ings­lag­anna og hanga eins og hundar á roði á þröngri túlkun á á­kvæðum 26. greinar bók­halds­lag­anna“.

Þórólfur vill meina að þetta fyr­ir­komu­lag leiði til þess að óefn­is­leg rétt­indi, þar með talið afla­heim­ildir, séu ekki metin með gagn­sæjum hætti í árs­reikn­ingum útgerða. Í grein hans á þriðju­dag­inn sagði að miðað við að „varan­legur kvóti sé seldur á 4.000 krónur þorsk­í­gildið er verð­mæti kvóta sem Vísir ráð­stafar milli 50 og 60 millj­arðar króna, en ekki um 14 millj­arðar króna eins og bók­fært er í árs­reikn­ingi“ og segir pró­fess­or­inn að þar sé „dá­lag­leg dulin „eign““ á ferð­inni.

„Ég skal ekki ganga svo langt að full­yrða að um lög­brot sé að ræða, en get ekki séð betur en að gengið sé með skýrum hætti gegn inn­taki og grunn­hugsun árs­reikn­ings­lag­anna. Það getur ekki talist gott vega­nesti í endur­skoðun!“ skrif­aði Þórólfur meðal ann­ars í grein sinni.

Skorar á Þórólf um að leita til yfirvalda og fá niðurstöðu

Í grein Birkis í dag skorar hann á Þórólf um „að senda erindi til árs­reikn­inga­skrár varð­andi inni­hald ein­stakra árs­reikn­inga sem hann telur ekki gerða á réttum for­sendum og til endur­skoð­enda­ráðs hafi hann at­huga­semdir við vinnu­brögð endur­skoð­enda,“ vilji hann fá nið­ur­stöðu í málið.

„Það eru réttir aðilar til að taka á því ef um slíka á­galla er að ræða sem pró­fess­or­inn heldur fram. Geri pró­fess­or­inn það ekki verður að líta á orð hans um árs­reikn­inga sjávar­út­vegs­fé­laga og endur­skoð­endur þeirra sem þá mark­leysu sem þau eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár