Umfang fiskeldis nú orðið 13 prósent af öllum sjávarútveginum

Heild­ar­tekjur af fisk­eldi á Íslandi námu 48 millj­örðum króna í fyrra. Heilt yfir varð um 700 millj­óna króna tap á rekstri í grein­inni á síð­asta ári, sam­kvæmt grein­ingu frá Deloitte.

Tekjur í fisk­eldi á Íslandi hafa auk­ist jafnt og þétt á und­an­förnum árum og námu 48 millj­örðum króna á síð­asta ári, en heilt yfir varð 700 millj­óna króna tap á rekstri fisk­eldis, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr fisk­eld­is­gagna­grunni Deloitte, sem kynntar voru á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2022 sem fram fór í morgun.

Umfang fisk­eldis af íslenskum sjáv­ar­út­vegi, sem hlut­fall af heild­ar­tekjum, er nú orðið 13 pró­sent.

Samkvæmt því sem kom fram í máli Jónasar Gests Jón­as­sonar, með­eig­anda hjá Deloitte sem kynnti töl­urnar á fund­inum í morgun, má rekja tapið sem heilt yfir varð í grein­inni að mestu til tveggja fyr­ir­tækja, vegna tjóns sem rekja má til „sam­spilandi áhrifa af umhverf­is­á­hrifum, sjúk­dóma í lífmassa sem og áhrifa heims­far­ald­urs­ins“.

[adspot]

Gagna­grunn­ur­inn er þannig settur upp að horft er á rekstur fisk­eldi á Íslandi sem eina sam­stæðu. Þannig er leið­rétt fyrir áhrifum af eign­ar­haldi innan grein­ar­innar – þannig að ef félag A á félag B sem einnig er í fisk­eldi eru áhrif félags B á rekstur félags A ekki inni í grunn­inum, því þá væri um tví­taln­ingu að ræða.

Fram­leitt magn hefur auk­ist veru­lega á síð­ustu árum, en árið 2018 voru um 19.100 tonn fram­leidd en á síð­asta ári nam fram­leiðslan 53.100 tonnum.[links]

Laun­þegar í grein­inni, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingum félag­anna, voru 597 tals­ins í fyrra. Það er aukn­ing um 38 pró­sent frá árinu 2017.

Bein opinber gjöld um 788 milljónir í fyrra

Samkvæmt útreikn­ingum Deloitte greiddu fisk­eld­is­fé­lög alls um 788 millj­ónir króna í bein opin­ber gjöld á síð­asta ári, þar af 414 millj­ónir í áætlað trygg­inga­gjald, 223 millj­ónir í tekju­skatt og 151 milljón í auð­linda­gjöld, gjalda vegna fisk­eldis í sjó og fram­laga í fisk­eld­is­sjóð.

Einungis eitt félag í gagna­grunni Deloitte greiðir tekju­skatt, en önnur félög nýta upp­safnað tap fyrri ára á móti tekju­skatti eða eru enn í tap­rekstri.

Eigið fé í fisk­eldi nemur 56 millj­örðum króna og skuldir félag­anna eru sam­an­lagt 44 millj­arðar króna. Jónas Gestur sagði ljóst að hlut­hafar hefðu sett tölu­vert fé inn í grein­ina á árinu, enda hefði eigið fé verið 36 millj­arðar í lok árs 2020.

Jónas Gestur sagði efna­hags­reikn­ingur grein­ar­innar væri sterkur, og að ekki væri van­þörf á því í ungri grein sem væri í upp­bygg­ing­arfasa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár