„Vandfundin“ sé sú atvinnugrein sem búi við meira eftirlit á Íslandi en fiskeldi

Vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók til varna fyrir fisk­eldi í opnum sjó­kvíum á Alþingi í dag og sagði hags­muna­öfl fara með stað­lausa stafi um umhverf­is­á­hrif grein­ar­innar. Hann minnt­ist ekk­ert á nýlega slysa­slepp­ingu frá Arn­ar­laxi í ræðu sinni.

Teitur Björn Einarsson er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks, auk þess að starfa sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, þar sem hann fæst m.a. við verkefni á sviði sjálfbærni.
Teitur Björn Ein­ars­son er vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, auk þess að starfa sem aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem hann fæst m.a. við verk­efni á sviði sjálf­bærni. Mynd: Aðsend

Teitur Björn Ein­ars­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar, tók upp hansk­ann fyrir fisk­eldi í opnum sjó­kvíum á Alþingi í dag, undir liðnum störf þings­ins og sagði að sú atvinnu­grein væri „vand­fundin á Íslandi“ sem sætti meira eft­ir­liti hins opin­bera.

Í ræðu sinni vék Teitur að því að ýmis fyr­ir­tæki og óskráð hags­muna­sam­tök hefðu nýlega skorað á mat­væla­ráð­herra um að stöðva fisk­eldi í opnum sjó­kvíum, og taldi ástæðu til að áretta í ræðu­stól Alþingis að það væri „Alþingi, ekki ráð­herra, sem hefur sett grein­inni lagaum­gjörð sem hún starfar eftir og auð­vitað er það Alþingi en ekki ráð­herra sem getur breytt því“.[links]

„Hún er vand­fundin sú atvinnu­grein á Íslandi sem starfar við meira eft­ir­lit, tak­mark­anir, kvaðir og gjald­töku en fisk­eld­is­greinin. Markmið lag­anna er að stuðla að upp­bygg­ingu fisk­eldis af ábyrgð þar sem sjálf­bær þróun og vernd líf­ríkis er höfð að leið­ar­ljósi á grund­velli vís­inda og rann­sókna. Þetta er sú stefna sem mín góða rík­is­stjórn er að starfa eftir,“ sagði Teitur Björn um atvinnu­grein­ina í ræðu sinni.

Hann bætti því við að þau „hags­muna­öfl“ sem sent hefðu ákallið til ráð­herra fyrir skemmstu héldu því fram að „umhverfi og þeirra hags­munum stafi veru­leg ógn af fisk­eldi“.

„Þetta er ein­fald­lega rangt, herra for­seti,“ sagði Teitur Björn, sem í ræðu sinni minnt­ist ekk­ert á eina helstu ástæðu þess að fyr­ir­tæki og hags­muna­að­ilar sendu ákallið til ráð­herra, nýlegar fréttir af 120 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sem lögð var á fyr­ir­tækið Arnarlax í kjöl­far þess að það gat ekki gert grein fyrir örlögum ríf­lega 80 þús­und lax­fiska sem sluppu úr sjó­kví fyr­ir­tæk­is­ins í Arn­ar­firði.

Meint „bakteríumotta“ í Dýrafirðinum

Hann tók hins vegar annað dæmi af rann­sóknum, úttektum, mæl­ingum og vökt­unum fisk­eld­is­grein­ar­innar og sagði að full­trúi einna sam­tak­anna sem nú beittu sér gegn sjó­kvía­eld­inu hefði full­yrt að hafs­botn­inn í Dýra­firði undir eld­iskvíum væri „ein stór bakt­er­íumotta þar sem ekk­ert annað þrífst“.

[adspot]

Vísaði Teitur Björn þarna til ummæla sem Elvar Örn Frið­riks­son fram­kvæmda­stjóri Vernd­ar­sjóðs villtra laxa lét eftir sér hafa í nýlegu við­tali á Hring­braut, en í rit­stjórn­ar­grein í vest­firska vef­miðl­inum Bæjarins besta sem birt­ist í morgun voru full­yrð­ingar Elvars Arnar bornar til baka með vísan í eft­ir­lits­skýrslur Umhverf­is­stofn­unar.

„En hvað segja rann­sóknir og athug­anir óháðra eft­ir­lits­að­ila? Jú, fjörð­ur­inn fær fyrstu ein­kunn, ástand fjarð­ar­ins er gott. Hverju ætlar fólk að trúa hér, upp­hróp­unum og áróðri eða óháðu eft­ir­liti og úttektum sem eru birtar opin­ber­lega?“ sagði Teitur Björn.

„Það er mjög miður að þessi hags­muna­öfl virð­ast engu skeyta um afkomu og vel­ferð fjölda fólks í byggðum lands­ins og tefla því til að mynda fram að hags­munir eig­enda eyði­býla á Horn­ströndum eigi frekar að ráða för, svæði sem fór einmitt í eyði af því að efna­hags­legur grund­völlur þess brast. Það skal ekki henda aftur á Vest­fjörðum,“ sagði Teitur Björn í ræðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár