Samþjöppun í fiskeldi: Hættuleg eða eðlileg þróun?

Smærri fisk­eld­is­fyr­ir­tæki taka undir með þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins um að setja tak­mörk á eign­ar­hald og frek­ari sam­þjöppun í fisk­eldi. 95 pró­sent fram­leiðslu­heim­ilda í sjó­kvía­eldi eru í höndum tveggja fyr­ir­tækja sem eru í meiri­hluta­eigu Norð­manna.

Fimm fyrirtæki eru í dag með leyfi til laxeldis í sjó við Ísland.
Fimm fyr­ir­tæki eru í dag með leyfi til lax­eldis í sjó við Ísland. Mynd: Norska Hafrannsóknarstofnunin

„Sú sam­þjöppun á eign­ar­haldi sem hefur átt sér stað í fisk­eldi á sér vart hlið­stæðu hér á landi.“

Þannig kemst Halldór Gunn­laugs­son, fram­kvæmda­stjóri tveggja fisk­eld­is­fyr­ir­tækja, Hábrúnar hf. og ÍS 47 ehf. að orði í umsögn sem hann gefur við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sjö þing­manna Fram­sókn­ar­flokksins um að mat­væla­ráð­herra skipi starfs­hóp til að koma með til­lögur um hvernig tak­marka megi sam­þjöppun og eign­ar­hald á lax­eld­is­leyfum og til að skoða hvort tak­marka eigi eign­ar­hald erlendra aðila á lax­eld­is­leyfum.

Halldór bendir í umsögn sinni á að í dag séu 95 pró­sent fram­leiðslu­heim­ilda sam­kvæmt útgefnum rekstr­ar­leyfum til sjó­kvía­eldis í hönd­unum á tveimur norskum fyr­ir­tækja­sam­stæðum. Önnur þeirra, Salmar ASA, á Arnarlax sem stundar eldi í fjörðum Vest­fjarða, og hin, Ice Fish Farm, á nýsam­ein­aða starf­semi Fisk­eldis Aust­fjarða og Laxa sem elur fisk í fjörðum Aust­fjarða.

„Það er afar óheppi­legt, eins og staðan er núna, þar sem um er að ræða tvo alls­ráð­andi aðila sitt­hvoru megin á Íslandi og eru í yfir­burða­stöðu, t.d. gagn­vart ríki og sveit­ar­fé­lögum, íslenskum frum­kvöðla­fé­lögum í fisk­eldi, birgjum og starfs­mönnum,“ skrifar Halldór.

[adspot]

Sem dæmi um þessa yfir­burða­stöðu megi nefna að norsku stór­fyr­ir­tækin hafi „ekki hikað við það hingað til að harð­neita sveit­ar­fé­lögum greiðslum á afla­gjöldum og sveit­ar­fé­lög hafa í fram­hald­inu neyðst til að leita til dóm­stóla með inn­heimtu á eðli­legri gjald­töku fisk­eldis“. Að sama skapi megi spyrja þeirrar spurn­ingar hver sé raun­veru­legur arður og verð­mæta­sköpun sem verður eftir til hags­bótar íslensku sam­fé­lagi með núver­andi eign­ar­haldi og fyr­ir­komu­lagi.

Halldór rifjar í umsögn sinni upp að á vor­þingi árið 2019 hafi verið sam­þykkt end­ur­skoðuð lög um fisk­eldi. „Yfirlýst mark­mið lag­anna var að styrkja lagaum­gjörð og stjórn­sýslu fisk­eldis, en áhrifin voru hins vegar þver­öfug þar sem staða norskra stór­fyr­ir­tækja batn­aði veru­lega á kostnað íslenskra frum­kvöðla­fé­laga.“

[links]Laga­breyt­ing­arnar hafi leitt af sér veru­lega óvissu um leyf­is­veit­ingar, stuðlað að frek­ari sam­þjöppun erlends eign­ar­halds í grein­inni og órétt­mætri mis­munun milli aðila sem fyrir laga­setn­ing­una voru í sam­bæri­legri stöðu.

„Áríðandi er að Alþingi setji á tak­mark­anir gegn sam­þjöppun eld­is­heim­ilda í erlendri eigu,“ skrifar Halldór og brýnt að fullt til­lit sé tekið til lít­illa íslenskra frum­kvöðla­fé­laga „sem hafa orðið undir í bar­átt­unni við norsk stór­fyr­ir­tæki og hafa auk þess orðið fyrir barð­inu á van­hugs­uðum laga­setn­ingum í fisk­eldi sem hafa stuðlað að enn frek­ari sam­þjöppun eld­is­leyfa á liðnum árum“.

„Eign­ar­hald lax­eld­is­fyr­ir­tækja á Íslandi hefur þró­ast þannig að mikil sam­þjöppun hefur orðið, sem getur leitt til þess að fáein fyr­ir­tæki verði alls­ráð­andi,“ segir í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins. Bent er á að lög um fisk­eldi setji ekki skorður við fram­sali á rekstr­ar­leyfum í lax­eldi en fram­sal, leiga og veð­setn­ing á rekstr­ar­leyfum sé þó háð sam­þykki Mat­væla­stofn­unar. „Hugs­an­legt er að einn aðili eign­ist öll gild rekstr­ar­leyfi og stýri þannig allri fram­leiðslu á eld­is­fiski og seiða­eldi í sjó og á landi. Við það skap­ast sú hætta að einn aðili stjórni stórum land­svæðum með þeim afleið­ingum að sam­fé­lög, sveit­ar­stjórnir og stjórn­völd eigi meira undir honum en góðu hófi gegnir.“

Horft til Færeyja

Flutn­ings­menn benda jafn­framt á að í fisk­eld­is­lögum í Færeyjum sé að finna ákvæði sem banna að lög­að­ili eign­ist meira en helm­ing útgef­inna lax­eld­is­leyfa. Þar er einnig að finna ákvæði um að eng­inn lög­að­ili, sem er ekki búsettur í Færeyjum, geti átt meira en 20% af atkvæð­is­bærum hlutum í fyr­ir­tækjum sem hafa lax­eld­is­leyfi. Rætt er um það í Noregi að leiða sam­bæri­leg ákvæði í lög.

„Lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi eru í meiri­hluta­eigu útlend­inga og útlit fyrir veru­lega sam­þjöppun á því eign­ar­haldi,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Í íslenskum lögum sé ekki að finna tak­mark­anir á eign­ar­haldi erlendra aðila í fisk­eldi. „Flutn­ings­menn telja brýnt að athugað verði hvort tak­marka beri slíkt eign­ar­hald.“

Flutn­ings­mönnum þykir enn­fremur áríð­andi að tryggt verði með laga­setn­ingu að lax­eldi á Íslandi verði ekki í eigu örfárra aðila, að fjöl­breytni ríki í grein­inni og að eign­ar­hald verði stað­bundið.

Auka hagkvæmni

Í umsögn Arnarlax, stærsta fisk­eld­is­fyr­ir­tækis lands­ins, segir hins vegar að það sé vel þekkt stað­reynd, m.a. frá upp­bygg­ingu eldis í Færeyjum og í Chile að fjöldi fyr­ir­tækja á sama svæði geti haft mjög nei­kvæð áhrif á grein­ina m.a. vegna sýk­inga, sníkju­dýra og fleiri þátta. „Það er því afar eðli­legt að greinin leiti í þá átt að fækka eld­is­að­ilum til að m.a. lág­marka líf­fræði­lega áhættu og auka hag­kvæmni.“

Fimm fyr­ir­tæki eru í dag með leyfi til lax­eldis í sjó við Ísland. „Ógjörn­ingur er að geta sér til um hver staðan verður í þess­ari ungu grein að 10 árum liðnum. Enn eru þó svæði svo sem Skjálf­andi, Eyja­fjörður og Jök­ul­firðir þar sem yfir­völd gætu boðið upp leyfi til sjó­kvía­eldis.“

Arnarlax ehf. er að fullu í eigu Icelandic Salmon AS. Stærsti hlut­haf­inn er norska félagið Salmar ASA sem aftur er í eigu nokkur þús­und hlut­hafa. Fjöldi íslenskra fjár­festa eiga einnig hlut, segir í umsögn Arnarlax, m.a. Gildi líf­eyr­is­sjóður.

Laxeldið er afar fjár­magns­frekur iðn­aður og hafa vel á þriðja tug millj­arða runnið til upp­bygg­ingar þess í formi áhættu­fjár­magns síð­ustu árum. „Rétt­mætar vænt­ingar eig­enda standa til þess að félögin fá á vaxa og dafna eftir því sem árangur næst.“

Til þess að tak­marka sam­þjöppun eign­ar­halds á lax­eld­is­leyfum, þyrfti að setja frek­ari skorður á atvinnu­rétt­indi til­tek­inna fyr­ir­tækja til dæmis með því að banna þeim að sækja um ný leyfi eða auka eld­is­magn eða skerða mögu­leika á fram­sali gild­andi leyfa, segir fyr­ir­tækið í umsögn­inni. „Að mati Arnarlax er óráð­legt að grípa til slíkra tak­mark­ana með vald­boði. Þar að auki leikur veru­legur vafi á hvort slík tak­mörkun sam­ræm­ist grund­vall­ar­reglum um atvinnu­frelsi og jafn­ræði eða skuld­bind­ingum íslenska rík­is­ins sam­kvæmt EES-samn­ingnum.“

Þótt Mat­væla­stofnun sem og Umhverf­is­stofnun þurfi að leggja blessun sína yfir fram­sal starfs- og rekstr­ar­leyfa í fisk­eldi og þannig nú þegar komið í veg fyrir skil­yrð­is­laust fram­sal lax­eld­is­leyfa „er sá mögu­leiki þó vissu­lega fyrir hendi að leyfin safn­ist á fáar hendur en stjórn­völdum er þó skylt að gæta þess að leyfin fær­ist ekki á hendur aðila sem upp­fylla ekki skil­yrði laga og reglna“.

Þá er það álit Arnarlax að krafa um dreifð­ari eign­ar­að­ild myndi „ólík­lega hafa áhrif á stað­setn­ingu eld­is­stöðva hér á landi, enda eru þær ein­göngu starf­ræktar þar sem réttar aðstæður eru fyrir hendi og horfir þar bæði til nátt­úru­legra og sam­fé­lags­legra þátta. Þar að auki hefur lög­gjaf­inn búið svo um hnút­ana að ein­göngu er heim­ilt að starf­rækja sjó­kvía­eldi í til­teknum fjörðum og flóum við Íslands­strendur. Ekki er því hægt að bera fisk­eldið saman við hefð­bund­inn sjáv­ar­út­veg í þessu til­liti. Tak­mörkun á sam­þjöppun eign­ar­halds á lax­eld­is­leyfum verður því ekki rök­studd með vísan til byggða­sjón­ar­miða.“

Telur Arnarlax „enga þörf“ á því að Alþingi feli mat­væla­ráð­herra að skipa starfs­hóp um málið líkt og lagt er til með þings­á­lykt­un­inni.

Stjórn Fjórð­ungs­sam­bands Vest­firð­inga telur hins vegar mik­il­vægt að tekið verði til skoð­unar staða og þróun í eign­ar­haldi fisk­eld­is­fyr­ir­tækja með stofnun starfs­hóps. Leggur stjórn sam­bands­ins áherslu á að við skipan starfs­hóps­ins verði tryggð aðild full­trúa fisk­eld­is­sveit­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár