Laxinn 60 prósentum dýrari eftir innrásina í Úkraínu

Verðið á ýmissi mat­vöru hefur tekið miklum hækk­unum á alþjóða­mörk­uðum í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu í lok febr­úar. Lax er þar engin und­an­tekn­ing, en kíló­verð á fisknum hefur hækkað um tæp 60 pró­sent síðan þá.

Verðið á laxi hefur hækkað um tæp sex prósent á milli vikna síðustu tvo mánuðina.
Verðið á laxi hefur hækkað um tæp sex pró­sent á milli vikna síð­ustu tvo mán­uð­ina. Mynd: Arnarlax

Evrópska mark­aðs­verðið fyrir eitt kíló af laxi nemur nú tæpum 1.600 íslenskum krónum og hefur það ekki verið hærra í að minnsta kosti fimm ár. Fisk­ur­inn, sem kost­aði undir þús­und krónur kílóið í byrjun árs, hefur hækkað um rúm 60 pró­sent í verði frá febr­ú­ar­lokum. Þetta kemur fram í tölum frá evr­ópska fisk­mark­aðnum Fishpool, sem nálg­ast má hér.

Hæg og stöðug hækkun fyrri árin

Samkvæmt töl­unum hefur mark­aðs­verðið á laxi hækkað nokkuð á síð­ustu árum, en þó með til­tölu­lega stöð­ugum hætti. Árið 2018 var það komið upp í tæpar 700 krónur kílóið, en ári seinna mæld­ist það í rúmum 800 krónum.[adspot]

Þróunina má sjá á mynd hér að neðan, sem er unnin út frá gögnum Fishpool og geng­is­skrán­ingum Seðla­bank­ans. Líkt og sést á henni nam kíló­verðið um 900 krónum árið 2020, en var svo komið upp í um 940 krónur í byrjun árs 2021. Um síð­ustu ára­mót var lax­inn svo orð­inn átta pró­sentum dýr­ari og kost­aði kílóið af honum rúm­lega þús­und krónur.

Samhliða þess­ari verð­hækkun högn­uð­ust ýmis lax­eld­is­fyr­ir­tæki tölu­vert. Þeirra á meðal var Icelandic Salmon, móð­ur­fé­lag Arnarlax á Vest­fjörðum, en hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins jókst um tæpan helm­ing á milli áranna 2020 og 2021, úr 407 millj­ónum í 563 millj­ónir íslenskra króna. Í frétta­til­kynn­ingu sam­hliða birt­ingu árs­reikn­ings fyrr í vik­unni sagði félagið aukn­ing­una meðal ann­ars vera til­komna vegna hag­stæðra mark­aðs­að­stæðna fyrir laxa­af­urðir.

Sprenging eftir innrásina

Í byrjun þessa árs hélst kíló­verðið á laxi á Fishpool nær óbreytt í nær tvo mán­uði. Á síð­ustu dögum febr­ú­ar­mán­aðar, skömmu eftir inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu, tók það svo að hækka hratt. Frá mars­byrjun hefur verðið svo að með­al­talið hækkað um sex pró­sent á viku og er það nú komið í um 1.600 krónur kílóið.

Björn Hembre, for­stjóri Icelandic Seafood, sagð­ist ekki búast við að yfir­stand­andi verð­hækk­anir myndu halda lengi áfram. Líklegt væri að verðið myndi jafna sig og jafn­vel lækka eitt­hvað þegar líður á árið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár