Fallið frá því að hækka gjöld á sjókvíaeldi um mörg hundruð milljónir á ári

Til stóð að auka gjald­töku á þau fyr­ir­tæki sem stunda sjó­kvía­eldi á Íslandi strax á næsta ári. Þegar gjald­takan yrði að fullu komin til áhrifa átti hún að skila 800 millj­ónum á ári í nýjar tekjur. SFS mót­mælti hækk­un­inni og nú hefur verið hætt við hana.

Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og mun mæla fyrir nefndaráliti meirihluta hennar.
Guðrún Haf­steins­dóttir er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og mun mæla fyrir nefnd­ar­á­liti meiri­hluta hennar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, hefur ákveðið að fresta auk­inni gjald­töku á fisk­eldi í sjó­kvíum um ótil­greindan tíma. Gjaldið, eftir hækk­un­ina, átti að skila rík­is­sjóði 1,5 millj­arði króna í tekjur á næsta ári, sem er um 450 millj­ónum krónum meira en sjó­eld­is­­fyr­ir­tækin hefðu ann­­ars greitt í rík­­is­­sjóð 2021. Tekju­­auki rík­­is­­sjóðs átti að verða 650 millj­­ónir króna á árinu 2024 og 760 millj­­ónir króna árið 2025. Þegar aðlögun fyr­ir­tækj­anna að gjald­tök­unni átti að vera lokið árið 2026 átti fisk­eld­is­gjaldið að verða um 800 millj­­ónum krónum hærra en ef gjald­hlut­­fallið hefði ekki verið hækkað og við­mið­un­­ar­­tíma­bil­inu ekki verið breytt.

[links]Nú er ljóst að hækkun á gjald­inu verður hið minnsta ekki inn­heimt að óbreyttu á næsta ári, sem sparar þá sjó­eld­is­fyr­ir­tækjum 450 millj­ónir króna á því ári frá því sem áður stóð til að inn­heimta.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans um breyt­ingar á tekju­­band­ormi sem fylgir fjár­­laga­frum­varpi næsta árs er þessi ákvörðun rök­studd með því að þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mælti fyrir hækkun af gjald­töku af fisk­eldi í sept­em­ber síð­ast­liðnum hefði verið gert ráð fyrir því að stefnu­mótun um fisk­eldi yrði lengra á veg komin. „Gert var ráð fyrir að skýrsla Boston Consulting Group um fram­tíð­ar­mögu­leika í lagar­eldi og skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um fram­kvæmd laga­setn­ingar og fram­kvæmd laga um fisk­eldi myndu liggja fyrir áður en frum­varpið yrði afgreitt. Í skýrslu­gerð Boston Consulting Group var við­haft víð­tækt sam­ráð við grein­ina og aðra hag­hafa. Þar sem þessar skýrslur hafa ekki borist telur meiri hlut­inn rétt­ara að fresta þeirri breyt­ingu á gjald­tök­unni sem er lögð til. Þannig fæst gleggri mynd af gjald­töku hér­lendis og í sam­an­burð­ar­löndum. Þannig gef­ist einnig frekara ráð­rúm til að ákvarða rétt­látt gjald fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind.“

Í samræmi við aðfinnslur SFS

Rök­semdir meiri­hlut­ans eru í takti við aðfinnslur Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem gæta hags­muna fisk­eld­is­fyr­ir­tækja, sem settar voru fram í umsögn þess um band­orm­inn.

[adspot]Sam­tök sögðu að gjald­hækk­unin væri bæði ótíma­bær og óhóf­leg og vís­uðu í að yfir stæði ýmis konar vinna og stefnu­mótum um fisk­eldi, meðal ann­ars hjá Boston Consulting Group. Afurð þeirrar vinnu væri óljós á þessu stigi. „Ljóst er þó að ekki er loku fyrir það skotið að ráð­ist verði í viða­miklar breyt­ingar á lagaum­hverfi fisk­eldis með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum fyrir rekstr­ar­um­hverfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækja. Að mati sam­tak­anna er veru­lega óábyrgt og ótíma­bært að boða áform um veru­lega gjald­hækkun á sama tíma og atvinnu­greinin stendur frammi fyrir heild­stæðri úttekt og stefnu­mót­un­ar­vinn­u.“

Þau gerðu einnig athuga­semd við að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við SFS við und­ir­bún­ing skatta­hækk­un­ar­inn­ar. „Til þess að sátt geti ríkt um gjald­töku af fisk­eldi er mik­il­vægt að sam­ráð sé haft við hag­að­ila í við­kom­andi atvinnu­grein áður en áform af þessu tagi eru kynnt opin­ber­lega.“

Nefndin breytti líka síðast án útskýringar

Gjalda­hækk­unin átti sér nokk­urra ára aðdrag­anda. Kjarn­inn greindi frá því í sept­em­ber að þegar frum­varp til laga um töku gjalds vegna fisk­eldis í sjó og fisk­eld­is­­sjóðs var lagt fram í mars 2019 af Krist­jáni Þór Júl­í­us­­syni, þáver­andi sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra, var skrifað að fjár­­hæð gjalds­ins ætti að vera 3,5 pró­­sent af nýjasta 12 mán­aða með­­al­tali alþjóð­­legs mark­aðs­verðs á Atl­ants­haf­s­­laxi fyrir ákvörð­un­­ar­dag.

Þegar meiri­hluti atvinn­u­­vega­­nefndar skil­aði nefnd­­ar­á­liti sínu um frum­varpið lagði hann til breyt­ing­­ar­til­lögu sem í fólst að við­mið­un­­ar­­tími gjalds­ins ætti ekki lengur að vera nýj­­ustu 12 mán­aða með­­al­­tal alþjóð­­legs mark­aðs­verð, heldur að hann ætti að vera „frá ágúst til októ­ber“.

Í nefnd­­ar­á­lit­inu er þessi breyt­ing ekk­ert útskýrð, en heims­­mark­aðs­verð á eld­is­­fiski er að jafn­­aði lágt á því tíma­bili sem not­­ast var við til að ákvarða gjaldið sem greiða átti í rík­­is­­sjóð. Breyt­ingin sem atvinn­u­­vega­­nefnd lagði til lækk­­aði því greiðslur þeirra fyr­ir­tækja sem stunda sjó­kví­a­eldi í rík­­is­­sjóð.

Meiri­hlut­ann í nefnd­inni mynd­uðu þing­­menn stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja ásamt þing­­mönnum Mið­­flokks­ins.

Dugaði ekki fyrir útgjöldum

SFS lögð­ust líka hart gegn sam­þykkt frum­varps­ins árið 2019. Í umsögn þeirra sagði meðal ann­ars að hug­myndir um skatt­lagn­ingu væru ótíma­bærar og að ætla mætti „að mark­mið stjórn­valda um auknar tekjur af lax­eldi náist fyrst og fremst með því að gæta að svig­rúmi grein­ar­innar til fjár­fest­ingar svo hún geti haldið áfram að vaxa og verði arð­bær. Það er eina rétt­láta og skyn­sam­lega leiðin að settu marki. Van­hugsuð laga­setn­ing sem hér er boðuð getur haft mjög nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér - sér í lagi þegar um er að ræða atvinnu­grein á við­kvæmu stigi upp­bygg­ing­ar.“

Frum­varpið var samt sem áður sam­þykkt og álagn­ingin lagð­ist á frá 1. jan­úar 2020. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi þess árs var reiknað með að gjaldið myndi skila 134 millj­ónum króna í rík­is­sjóð á árinu 2020. Þar kom einnig fram að til stæði að leggja 175 millj­ónir króna í að bæta stjórn­­­sýslu, eft­ir­lit og heil­brigð­is­­kröfur í fisk­eldi á því ári, eða 41 millj­ónum króna minna en lög­fest gjald­taka vegna fisk­eldis átti að skila í rík­is­kass­ann.

Tvenns konar breytingar sem átti að innleiða

Gjaldið sem um ræðir leggst á þá rekstr­ar­að­ila sem stunda sjó­kvía­eldi. Aðrir sem stunda fisk­eldi, t.d. á landi, eru und­an­þegnir gjald­inu. Þegar lögin um gjald­tök­una voru sett var sam­þykkt að veita þessum aðilum aðlögun að því að greiða fullt gjald. Á næsta ári munu sjó­eld­is­fyr­ir­tækin greiða 4/7 af því hlut­falli reikni­stofns­ins sem þeim mun frá árinu 2026 vera gert að greiða að fullu.

[adspot]Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2023, sem lagt var fram í sept­em­ber, voru til­teknar tvær megin breyt­ingar á verð­mæta­gjaldi vegna sjó­kvía­eld­is. Ann­ars vegar er gjald­hlut­fallið hækkað úr 3,5 í fimm pró­sent og hins vegar var við­mið­un­ar­tíma­bil gjalds­ins fært nær í tíma. Nánar til­tekið var því breytt þannig að nú er miðað við alm­an­aks­árið, en ekki ágúst, sept­em­ber og októ­ber. Báðar breyt­ing­arnar áttu að gera það að verkum að inn­heimt gjald myndi hækk­a og þegar þær væru að fullu inn­leiddar árið 2026 myndu tekjur rík­is­sjóðs aukast um 800 millj­ónir króna á ári.

Nú hefur meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar fallið frá þessum breyt­ingum.

Kostar mikið í Noregi en er frítt á Íslandi

Á Íslandi er eng­inn auð­linda­skattur lagður á eldi. Hér á landi kosta fram­leiðslu­leyfi og lax­eld­isk­vóti sem fram­leið­endur fá frá íslenska rík­inu ekk­ert. Í nýlegri umfjöllun Stund­ar­innar er rifjað upp að árið norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki, sem hafa fram­leiðslu­leyfi fyrir 65 þús­und tonnum hér á landi, hefðu þurft að greiða 169 millj­arða króna fyrir þau leyfi í Nor­egi.

Rík­is­stjórn Nor­egs til­kynnti 28. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að hún ætli að leggja auð­linda­skatt á eld­is­fisk. Sam­kvæmt til­lögum á hann að vera 40 pró­sent af tekjum að frá­dregnum útgjöldum við að afla tekn­anna, sem er til að mynda fjár­fest­inga­kostn­að­ur. Búist er við að skatt­tekjur vegna þessa verði um 50 millj­arðar íslenskra króna á næsta ári en um er að ræða við­bót­ar­tekjur fyrir norska rík­is­sjóð­inn, þar sem um nýjan skatt­stofn er að ræða.

Í annarri frétt Stund­ar­innar sem birt var nýverið var haft eftir Kjartan Ólafs­soni, stjórn­ar­for­manni Arn­ar­lax, að afleið­ingar skatt­heimtu á eld­is­laxi í Nor­egi minntu á upp­haf Íslands­byggð­ar. Þar átti hann við að norsk lax­eld­is­­fyr­ir­tæki séu að flýja skatt­heimt­una þar í landi og komi til Ís­lands í leit að hag­­stæð­­ara skattaum­hverfi fyri iðn­­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár