Tekjur vegna fiskeldisgjalda aukast um mörg hundruð milljónir vegna breytinga á lögum

Þegar frum­varp var lagt fram um að leggja gjald á þá sem stunda sjó­kvía­eldi á Íslandi átti gjald­takan að taka mið af alm­an­aks­ár­inu. Því var breytt í með­förum nefndar með þeim afleið­ingum að gjaldið lækk­aði. Nú á að snúa þeirri ákvörðun.

Svandís Svavarsdóttir er matvælaráðherra og fer með málefni sjávarútvegs.
Svandís Svav­ars­dóttir er mat­væla­ráð­herra og fer með mál­efni sjáv­ar­út­vegs. Mynd: Eyþór Árnason

Breyt­ingar á lögum um fisk­eld­is­gjald sem lagðar eru til í tekju­band­ormi sem fylgir fjár­laga­frum­varpi næsta árs munu gera það að verkum að það mun skila rík­is­sjóði mörg hund­ruð millj­ónum króna í auknar tekjur á næstu árum. Breyt­ing­arnar eru tvenns konar og gera báðar það að verkum að gjaldið hækkar upp í alls 1,5 millj­arð króna á næsta ári. Ef þær verða ekki inn­leiddar myndi gjaldið vera rétt rúmur millj­arður króna.

Önnur breyt­ingin, sú sem snýr að við­mið­un­ar­tíma sem á að liggja til grund­vallar gjald­tök­unnar, er ekki alveg ný. Raunar var hún til staðar í upp­runa­legu frum­varpi sem sam­þykkt var sum­arið 2019 og varð til þess að rík­is­sjóður fór að inn­heimta gjald vegna sjó­kvía­eldis. Við­mið­un­ar­tím­anum var hins vegar breytt af meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar við með­ferð máls­ins, með þeim afleið­ingum að gjaldið lækk­aði. Nú á að snúa þeirri ákvörðun við.

Viðmiðunartímabilið sem hvarf

Þegar frum­varp til laga um töku gjalds vegna fisk­eldis í sjó og fisk­eld­is­sjóðs var lagt fram í mars 2019 af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, var skrifað að fjár­hæð gjalds­ins ætti að vera 3,5 pró­sent af nýjasta 12 mán­aða með­al­tali alþjóð­legs mark­aðs­verðs á Atl­ants­haf­s­laxi fyrir ákvörð­un­ar­dag.

[adspot]Þegar meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar skil­aði nefnd­ar­á­liti sínu um frum­varpið lagði hann til breyt­ing­ar­til­lögu sem í fólst að við­mið­un­ar­tími gjalds­ins ætti ekki lengur að vera nýj­ustu 12 mán­aða með­al­tal alþjóð­legs mark­aðs­verð, heldur að hann ætti að vera „frá ágúst til októ­ber“.

Í nefnd­ar­á­lit­inu er þessi breyt­ing ekk­ert útskýrð, en heims­mark­aðs­verð á eld­is­fiski er að jafn­aði lágt á því tíma­bili sem not­ast var við til að ákvarða gjaldið sem greiða átti í rík­is­sjóð. Breyt­ingin sem atvinnu­vega­nefnd lagði til lækk­aði því greiðslur þeirra fyr­ir­tækja sem stunda sjó­kvía­eldi í rík­is­sjóð.

Meiri­hlut­ann í nefnd­inni mynd­uðu þing­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja ásamt þing­mönnum Mið­flokks­ins.

Gjaldtakan dugaði ekki fyrir kostnaði

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) lögð­ust hart gegn sam­þykkt frum­varps­ins. Í umsögn þeirra sagði meðal ann­ars að hug­myndir um skatt­lagn­ingu væru ótíma­bærar og að ætla mætti „að mark­mið stjórn­valda um auknar tekjur af lax­eldi náist fyrst og fremst með því að gæta að svig­rúmi grein­ar­innar til fjár­fest­ingar svo hún geti haldið áfram að vaxa og verði arð­bær. Það er eina rétt­láta og skyn­sam­lega leiðin að settu marki. Van­hugsuð laga­setn­ing sem hér er boðuð getur haft mjög nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér - sér í lagi þegar um er að ræða atvinnu­grein á við­kvæmu stigi upp­bygg­ingar.“

Frum­varpið var samt sem áður sam­þykkt og álagn­ingin lagð­ist á frá 1. jan­úar 2020. Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi þess árs var reiknað með að gjaldið myndi skila 134 millj­ónum króna í rík­is­sjóð á árinu 2020. Þar kom einnig fram að til stæði að leggja 175 millj­ónir króna í að bæta stjórn­sýslu, eft­ir­lit og heil­brigðis­kröfur í fisk­eldi á því ári, eða 41 millj­ónum króna minna en lög­fest gjald­taka vegna fisk­eldis átti að skila í rík­is­kass­ann.

Mun skila mörg hundruð milljónum í viðbótartekjur

Gjaldið leggst á þá rekstr­ar­að­ila sem stunda sjó­kvía­eldi. Aðrir sem stunda fisk­eldi, t.d. á landi, eru und­an­þegnir gjald­inu. Þegar lögin um gjald­tök­una voru sett var sam­þykkt að veita þessum aðilum aðlögun að því að greiða fullt gjald. Á næsta ári munu sjó­eld­is­fyr­ir­tækin greiða 4/7 af því hlut­falli reikni­stofns­ins sem þeim mun frá árinu 2026 vera gert að greiða að fullu.

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2023, sem lagt var fram fyrr í þessum mán­uði, eru til­teknar breyt­ingar á verð­mæta­gjaldi vegna sjó­kvía­eldis. Annars vegar er gjald­hlut­fallið hækkað úr 3,5 í fimm pró­sent og hins vegar er við­mið­un­ar­tíma­bil gjalds­ins fært nær í tíma. Nánar til­tekið er því breytt þannig að nú er miðað við alm­an­aks­árið, en ekki ágúst, sept­em­ber og októ­ber. Báðar breyt­ing­arnar munu gera það að verkum að inn­heimt gjald mun hækka.

Nú er búist við að gjaldið skili 1,5 millj­arði króna á næsta ári. Það er um 450 millj­ónum krónum meira en sjó­eld­is­fyr­ir­tækin hefðu ann­ars greitt í rík­is­sjóð á næsta ári. Tekju­auki rík­is­sjóðs verður 650 millj­ónir króna á árinu 2024 og 760 millj­ónir króna árið 2025. Þegar aðlögun fyr­ir­tækj­anna að gjald­tök­unni verður lokið árið 2026 mun fisk­eld­is­gjaldið verða um 800 millj­ónum krónum hærra en ef gjald­hlut­fallið hefði ekki verið hækkað og við­mið­un­ar­tíma­bil­inu ekki verið breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár