Umfangsmikið rask yrði á varpsvæðum kríu og hettumáfs

Líkur eru á að varp hettu­máfs legg­ist af og að kríur færi sitt varp ef af mik­illi upp­bygg­ingu fisk­eld­is­stöðvar verður syðst á Röndinni á Kópa­skeri. Á svæð­inu er áformað að ala laxa­seiði og flytja þau svo í sjó­kvíar á Aust­ur­landi.

Afmörkun lóðamarka fiskeldisins (svört lína) og náttúruverndarsvæði (hvít brotalína).
Afmörkun lóða­marka fisk­eld­is­ins (svört lína) og nátt­úru­vernd­ar­svæði (hvít brota­lína). Mynd: Úr umhverfisskýrslu

Umhverf­is­á­hrif fram­kvæmda við áform­aða upp­bygg­ingu fisk­eldis á svo­nefndri Rönd á Kópa­skeri gætu orðið tals­vert nei­kvæð. Ljóst er að umfangs­mikið rask yrði á tals­vert stórum varp­svæðum kríu og hettu­máfs og líkur á að hettu­máfsvarpið legg­ist af. Mögulegt er hins vegar að krían færi sig til.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í áliti Skipu­lags­stofn­unar á umhverf­is­mats­skýrslu Rifóss hf. um fram­kvæmd­ina. Rifós áformar land­eldi á laxa­seiðum, eld­is­stöð sem gerir ráð fyrir 8.800 tonna fram­leiðslu­getu á lax­fiskum á ári. Gert er ráð fyrir allt að fjórum ker­apöllum sem hver er með allt að átta úti­kerum, alls 32 ker. Seiðin yrðu alin í volgum jarð­sjó þar til þau verða 300-1.000 grömm að þyngd en þá yrðu þau flutt með tank­skipi í sjó­kvíar Fisk­eldis Aust­fjarða í Berufirði og Fáskrúðs­firði.

[adspot]

Eldinu myndi fylgja mikil vatns­notkun, um 980 l/s á ári, en vatns­taka úr bor­holum yrði mest 2.160 l/sek. Borholur á svæð­inu þyrftu að vera 24 tals­ins. Rifós er nú þegar með fisk­eld­is­stöð í rekstri á svæð­inu sem er með starfs­leyfi fyrir 400 tonna hámarks­lífmassa á hverjum tíma.

Fiskeldi Aust­fjarða, sem á Rifós hf., lagði inn fyr­ir­spurn um mats­skyldu fyrir einum kerja­palli með 2.000 tonna fram­leiðslu­getu lax­fiska í júní árið 2020. Nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar var að upp­bygg­ing á einum palli væri ekki lík­legt til að hafa í för með sér umtals­verð umhverf­is­á­hrif og hófst lax­eldi á honum í apríl 2021. Hin nýju áform fel­ast í frek­ari upp­bygg­ingu syðst á Röndinni, við Ósa Snart­ar­staðalækjar.

Fram­kvæmda­svæðið fyr­ir­hug­aða er á nátt­úru­minja­skrá; Röndin: Sjáv­ar­bakkar frá Kópa­skeri suður að Snart­ar­staðalæk. Jarð­myndun er frá lokum ísaldar (Kópa­skers­skeið) og þar er að finna sjáv­ar­set með skeljum og jök­ul­ruðn­ingi, minjar um hop­un­ar­sögu ísald­ar­jök­uls.

Í umhverf­is­skýrslu Rifóss sagði að suð­ur­hluti jarð­mynd­un­ar­innar yrði innan fram­kvæmda­svæð­is­ins en bygg­ing­ar­reitir kerja­palla austan við hana. Fyr­ir­hug­aður aðkomu­vegur liggi að hluta til ofan á jarð­mynd­un­inni og raski yfir­borði hennar. Afmörkun svæð­is­ins á nátt­úru­minja­skrá, sam­kvæmt aðal­skipu­lagi Norð­ur­þings, nær lengra til aust­urs en jarð­mynd­unin sjálf.

Svæðið austan við Röndina er flatur og upp­gró­inn sandur, segir í skýrslu Rifóss, en lík­legt sé að það sé innan afmörk­unar sem svæði á nátt­úru­minja­skrá vegna ríks fugla­lífs. Fram­kvæmda­að­ili mat það svo að áhrif fram­kvæmd­anna á nátt­úru­vernd­ar­svæði yrðu óveru­leg en var­an­leg.

Skipu­lags­stofnun tekur undir með Umhverf­is­stofnun og Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands að mik­il­vægt sé að raski á jarð­mynd­un­inni verði haldið í lág­marki. Þar sem nú þegar hafi orðið tölu­vert rask á svæð­inu auki það mik­il­vægi þess að að vernda þann hluta mynd­un­ar­innar sem minnst er rask­aður.

[adspot]

Helstu umhverf­is­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar og fyr­ir­hug­aðrar starf­semi kunna að mati Skipu­lags­stofn­unar að verða vegna vatns­vinnslu auk áhrifa á fugla. Óvissa ríki um áhrif dæl­ingar og vatns­töku á grunn­vatns­stöðu sem og á stöðu yfir­borðs­vatns í nálægu vot­lendi, m.a. í ljósi þessa stutta tíma sem dæl­ing­ar­próf­anir fram­kvæmda­að­ila fóru fram og þess tak­mark­aða vatns­magns sem dælt var upp í próf­un­unum. Áhrif fram­kvæmd­anna í heild gætu orðið tals­vert nei­kvæð og leggur Skipu­lags­stofnun því áherslu á mik­il­vægi vökt­unar og að áfanga­skipta þurfi fyr­ir­hug­aðri upp­bygg­ingu eld­is­ins til þess að unnt sé að fylgj­ast með og meta betur áhrif á seltu, nið­ur­drátt og grunn­vatns- og yfir­borðs­vatns­stöðu með hlið­sjón af vöktun.

Varðandi áhrif á aðra umhverf­is­þætti þá er „ljóst að umfangs­mikið rask verður á tals­vert stórum varp­svæðum kríu og hettu­máfs við fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir og líkur á að hettu­máfsvarp legg­ist af en mögu­leiki er á að krían færi sig til,“ segir í áliti stofn­un­ar­innar. Mik­il­vægt sé því að útbúa ný varp­svæði fyrir kríur norðan og norð­vestan við núver­andi varp­svæði þeirra og að ekki verði um fram­kvæmdir að ræða á varp­tíma.

Skipu­lags­stofnun telur í ljósi aðstæðna að áhrif á fugla­líf muni verða tals­vert nei­kvæð en með fyrr­nefndum mót­væg­is­að­gerðum megi draga úr áhrif­unum að ein­hverju marki.

Skipu­lags­stofnun leggur í áliti sínu áherslu á vand­aða hönnun mann­virkja, umhverf­is­mótun og góðan frá­gang lóðar til að draga úr ásýnd­ar­á­hrifum og að öllu raski verði haldið í lág­marki innan sem utan lóð­ar­marka þar sem fram­kvæmda­svæðið er á nátt­úru­vernd­ar­svæði.

Stofn­unin telur að nauð­syn­legt sé að stað­setn­ing bor­hola liggi skýrt fyrir í umsókn um nýt­ing­ar­leyfi Orku­stofn­unar og að í nýt­ing­ar­leyfi þurfi að setja skil­yrði um áfanga­skipta upp­bygg­ingu eld­is­ins sem og vöktun og við­brögð ef vöktun leiðir í ljós að vafi leiki á hvort svæðið þoli þá vatns­vinnslu sem fyr­ir­huguð er. Þá þarf að setja skil­yrði í starfs­leyfi um reglu­bundið eft­ir­lit með virkni hreinsi­bún­aðar, losun meng­un­ar­efna og með ástandi við­taka til þess að ganga úr skugga um að við­taki, líf­ríki fjöru og grunn­sævis verði ekki fyrir nei­kvæðum áhrifum af völdum frá­rennslis frá eld­is­stöð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár