SFS leggst gegn hækkunum á fiskeldisgjaldi og eru ósátt með að hafa ekki verið spurð um álit

Hags­muna­sam­tök sjáv­ar­út­vegs eru ósátt með að mat­væla­ráð­herra hafi ekki haft sam­ráð við sig áður en hún kynnti hækkun gjalda á sjó­kvía­eldi. Búist er við því að hækk­unin skili um 800 millj­ónum meira á ári í rík­is­sjóð þegar aðlögun að gjald­tök­unni er lokið.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdstjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og skrifar undir athugasemd samtakanna sem send hefur verið til nefndar Alþingis.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir er fram­kvæmd­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og skrifar undir athuga­semd sam­tak­anna sem send hefur verið til nefndar Alþingis. Mynd: Skjáskot/SFS

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) mót­mæla fyr­ir­hug­aðri gjald­hækkun rík­is­sjóðs á þau fyr­ir­tæki sem stunda sjó­kvía­eldi á þeim grunni að hún sé bæði ótíma­bær og óhóf­leg. Samtökin vísa til þess í nýrri athuga­semd sinni um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp að yfir standi ýmis konar vinna og stefnu­mótum um fisk­eldi og að afurð þeirra vinnu sé óljós á þessu stigi. „Ljóst er þó að ekki er loku fyrir það skotið að ráð­ist verði í viða­miklar breyt­ingar á lagaum­hverfi fisk­eldis með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum fyrir rekstr­ar­um­hverfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækja. Að mati sam­tak­anna er veru­lega óábyrgt og ótíma­bært að boða áform um veru­lega gjald­hækkun á sama tíma og atvinnu­greinin stendur frammi fyrir heild­stæðri úttekt og stefnu­mót­un­ar­vinnu.“

[links]Þau gera athuga­semd við að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við SFS við und­ir­bún­ing skatta­hækk­un­ar­innar. „Til þess að sátt geti ríkt um gjald­töku af fisk­eldi er mik­il­vægt að sam­ráð sé haft við hag­að­ila í við­kom­andi atvinnu­grein áður en áform af þessu tagi eru kynnt opin­ber­lega.“

Í athuga­semd þeirra segir enn fremur að auknar álögur á fisk­eldi muni mögu­lega auka tekjur rík­is­sjóðs til skamms tíma, en til lengri tíma muni að mati sam­tak­anna hægja á vexti fyr­ir­tækj­anna og draga úr þeim tekjum sem sam­fé­lagið fær frá starf­sem­inni. „Stjórn­völd verða að horfa til sam­keppn­is­stöðu íslenskra fisk­eld­is­fyr­ir­tækja og hafa að leið­ar­ljósi að ekki sé verið að leggja þyngri byrðar á þau en sam­keppn­is­fyr­ir­tæki í öðrum löndum.“

Viðmiðunartímabilinu var breytt án skýringar

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að þegar frum­varp til laga um töku gjalds vegna fisk­eldis í sjó og fisk­eld­is­sjóðs var lagt fram í mars 2019 af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, var skrifað að fjár­hæð gjalds­ins ætti að vera 3,5 pró­sent af nýjasta 12 mán­aða með­al­tali alþjóð­legs mark­aðs­verðs á Atl­ants­haf­s­laxi fyrir ákvörð­un­ar­dag.

[adspot]Þegar meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar skil­aði nefnd­ar­á­liti sínu um frum­varpið lagði hann til breyt­ing­ar­til­lögu sem í fólst að við­mið­un­ar­tími gjalds­ins ætti ekki lengur að vera nýj­ustu 12 mán­aða með­al­tal alþjóð­legs mark­aðs­verð, heldur að hann ætti að vera „frá ágúst til októ­ber“.

Í nefnd­ar­á­lit­inu er þessi breyt­ing ekk­ert útskýrð, en heims­mark­aðs­verð á eld­is­fiski er að jafn­aði lágt á því tíma­bili sem not­ast var við til að ákvarða gjaldið sem greiða átti í rík­is­sjóð. Breyt­ingin sem atvinnu­vega­nefnd lagði til lækk­aði því greiðslur þeirra fyr­ir­tækja sem stunda sjó­kvía­eldi í rík­is­sjóð.

Meiri­hlut­ann í nefnd­inni mynd­uðu þing­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja ásamt þing­mönnum Mið­flokks­ins.

Frum­varpið var sam­þykkt með þessum breyt­ingum og álagn­ingin lagð­ist á frá 1. jan­úar 2020. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi þess árs var reiknað með að gjaldið myndi skila 134 millj­ónum króna í rík­is­sjóð á árinu 2020. Þar kom einnig fram að til stæði að leggja 175 millj­ónir króna í að bæta stjórn­­­sýslu, eft­ir­lit og heil­brigð­is­­kröfur í fisk­eldi á því ári, eða 41 millj­ónum króna minna en lög­fest gjald­taka vegna fisk­eldis átti að skila í rík­is­kass­ann.

Skilar 800 milljónum í viðbót á ári árið 2026

Breyt­ing­arnar á lögum um fisk­eld­is­gjald sem SFS eru að mót­mæla voru lagðar til í tekju­band­ormi sem fylgir fjár­laga­frum­varpi næsta árs.

Ann­ars vegar er gjald­hlut­fallið hækkað úr 3,5 í fimm pró­sent og hins vegar er við­mið­un­ar­tíma­bil gjalds­ins fært nær í tíma. Nánar til­tekið er því breytt þannig að nú er miðað við alm­an­aks­árið, en ekki ágúst, sept­em­ber og októ­ber. Báðar breyt­ing­arnar munu gera það að verkum að inn­heimt gjald mun hækk­a.

Gjaldið leggst á þá rekstr­ar­að­ila sem stunda sjó­kvía­eldi. Aðrir sem stunda fisk­eldi, t.d. á landi, eru und­an­þegnir gjald­inu. Þegar lögin um gjald­tök­una voru sett var sam­þykkt að veita þessum aðilum aðlögun að því að greiða fullt gjald. Á næsta ári munu sjó­eld­is­fyr­ir­tækin greiða 4/7 af því hlut­falli reikni­stofns­ins sem þeim mun frá árinu 2026 vera gert að greiða að fullu.

Nú er búist við að gjaldið skili 1,5 millj­arði króna á næsta ári. Það er um 450 millj­ónum krónum meira en sjó­eld­is­fyr­ir­tækin hefðu ann­ars greitt í rík­is­sjóð á næsta ári. Tekju­auki rík­is­sjóðs verður 650 millj­ónir króna á árinu 2024 og 760 millj­ónir króna árið 2025. Þegar aðlögun fyr­ir­tækj­anna að gjald­tök­unni verður lokið árið 2026 mun fisk­eld­is­gjaldið verða um 800 millj­ónum krónum hærra en ef gjald­hlut­fallið hefði ekki verið hækkað og við­mið­un­ar­tíma­bil­inu ekki verið breytt.

Norðmenn að leggja á auðlindaskatt

Í athuga­semd SFS segir að hækkun gjald­hlut­falls­ins úr 3,5 í fimm pró­sent jafn­gildi 43 pró­sent hækkun á skatti sem sé nú þegar með þeim hæstu á fisk­eldi í heimi. „Samkvæmt sam­an­tekt KPMG á skatt­heimtu fisk­eldis í 16 stærstu fisk­eld­is­löndum heims er Ísland eitt af aðeins þremur ríkjum sem leggja sér­stakan auð­linda­skatt á fisk­eldi, ásamt Noregi og Færeyjum. Þess má geta að Norðmenn voru búnir að stunda arð­bært fisk­eldi í um 40 ár áður en umræða um auð­linda­skatt hófst þar í landi. Að sama skapi hófst lax­eldi í Færeyjum laust fyrir árið 1980 en skatt­heimtu í núver­andi mynd var ekki komið á fyrr en fyrir 9 árum. Fær­eyskum og norskum eld­is­fyr­ir­tækjum var því veitt ára­tuga­langt svig­rúm til fjár­fest­inga, upp­bygg­ingar og mark­aðs­setn­ingar áður en ráð­ist var í sér­tæka skatt­heimtu. Hefur sú ákvörðun verið þjóð­unum til heilla og skilað sér í yfir­burða­stöðu þeirra í lax­eldi á heims­vísu og stór­auknum gjald­eyr­is­tekjum.“

Rík­is­stjórn Noregs til­kynnti 28. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að hún ætli að leggja auð­linda­skatt á eld­is­fisk. Samkvæmt til­lögum á hann að vera 40 pró­sent af tekjum að frá­dregnum útgjöldum við að afla tekn­anna, sem er til að mynda fjár­fest­inga­kostn­aður. Búist er við að skatt­tekjur vegna þessa verði um 50 millj­arðar íslenskra króna á næsta ári en um er að ræða við­bót­ar­tekjur fyrir norska rík­is­sjóð­inn, þar sem um nýjan skatt­stofn er að ræða.

Á Íslandi er eng­inn auð­linda­skattur lagður á eldi. Hér á landi kosta fram­leiðslu­leyfi og lax­eld­isk­vóti sem fram­leið­endur fá frá íslenska rík­inu ekk­ert. Í nýlegri umfjöllun Stund­ar­innar er rifjað upp að árið norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki, sem hafa fram­leiðslu­leyfi fyrir 65 þús­und tonnum hér á landi, hefðu þurft að greiða 169 millj­arða króna fyrir þau leyfi í Noregi.

Í annarri frétt Stund­ar­innar sem birt var í þess­ari viku er haft eftir Kjartan Ólafs­soni, stjórn­ar­for­manni Arnarlax, að afleið­ingar skatt­heimtu á eld­is­laxi í Noregi minntu á upp­haf Íslands­byggðar. Þar átti hann við að norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki séu að flýja skatt­heimt­una þar í landi og komi til Ís­lands í leit að hag­stæð­ara skattaum­hverfi fyri iðn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár