Þingmenn Framsóknarflokksins vilja tryggja að laxeldi verði ekki í eigu örfárra aðila

Sjö þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem miðar að því að tak­marka sam­þjöppun eign­ar­halds á lax­eld­is­leyfum og skoða hvort tak­marka eigi eign­ar­hald erlendra aðila á lax­eld­is­leyfum.

Flutningsmenn tillögunnar eru hlynntir laxeldi á Íslandi en telja þýðingarmikið að greinin verði ekki í eigu örfárra aðila
Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru hlynntir lax­eldi á Íslandi en telja þýð­ing­ar­mikið að greinin verði ekki í eigu örfárra aðila Mynd: Norska hafrannsóknarstofnunin

Í þings­á­lykt­urn­ar­til­lögu um eign­ar­hald í lax­eldi, sem sjö þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins standa fyrir, er farið fram á að mat­væla­ráð­herra verði falið að skipa starfs­hóp sem hafi það að mark­miði að koma með til­lögur um hvernig tak­marka megi sam­þjöppun eign­ar­halds á lax­eld­is­leyfum og skoða hvort tak­marka eigi eign­ar­hald erlendra aðila á lax­eld­is­leyfum. Lagt er til að starfs­hóp­ur­inn skili nið­ur­stöðum sínum til ráð­herra sem leggo þær fyrir Alþingi næsta haust, eigi síðar en 30. sept­em­ber.

Sjö af þrettán þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins eru flutn­ings­menn til­lög­unnar, þau Halla Signý Krist­jáns­dóttir, Þórarinn Ingi Pét­urs­son, Ágúst Bjarni Garð­ars­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, Ingi­björg Isaksen og Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir.

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að eign­ar­hald lax­eld­is­fyr­ir­tækja hér á landi hafi þró­ast með þeim hætti að mikil sam­þjöppun hefur orðið sem geti leitt til þess að fáein fyr­ir­tæki verði alls­ráð­andi. „Í þessum rekstri sem öðrum er stærð­ar­hag­kvæmni mik­ils­verð en við ákveðna stærð verða til óæski­leg áhrif, m.a. á atvinnu­ör­yggi þeirra sem starfa í grein­inni,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Hugsanlegt að einn aðili eignis öll gild rekstrarleyfi

Lög um fisk­eldi setja ekki skorður við fram­sali á rekstr­ar­leyfum í lax­eldi, en fram­sal, leiga og veð­setn­ing á rekstr­ar­leyfum er þó háð sam­þykki Mat­væla­stofn­unar. Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að hugs­an­legt sé að einn aðili eign­ist öll gild rekstr­ar­leyfi og stýri þannig allri fram­leiðslu á eld­is­fiski og seiða­eldi í sjó og á landi. „Við það skap­ast sú hætta að einn aðili stjórni stórum land­svæðum með þeim afleið­ingum að sam­fé­lög, sveit­ar­stjórnir og stjórn­völd eigi meira undir honum en góðu hófi gegnir,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Flutn­ings­menn til­lög­unnar segja mik­il­vægt að horfa til nágranna­ríkj­anna í þessum efnum og benda til að mynda á að í fisk­eld­is­lögum í Færeyjum eru ákvæði sem banna það að lög­að­ili eign­ist meira en helm­ing útgef­inna lax­eld­is­leyfa. Þar er einnig að finna ákvæði um að eng­inn lög­að­ili, sem er ekki búsettur í Færeyjum, geti átt meira en 20 pró­sent af atkvæð­is­bærum hlutum í fyr­ir­tækjum sem hafa lax­eld­is­leyfi. Þá hafi verið rætt um það í Noregi að leiða sam­bæri­leg ákvæði í lög.

Brýnt að athuga hvort takmarka eigi eignarhald erlendra aðila

Lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi eru í meiri­hluta­eigu útlend­inga og útlit er fyrir veru­lega sam­þjöppun á því eign­ar­haldi, að því er segir í grein­ar­gerð­inni. Tak­mark­anir á eign­ar­haldi erlendra aðila í fisk­eldi er ekki að finna í íslenskum lögum og telja flutn­ings­menn til­lög­unnar brýnt að athuga hvort tak­marka beri slíkt eign­ar­hald erlendra aðila.

Í því sam­hengi benda þau á að í lögum um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri er ákvæði um að fisk­veiðar í íslenskri efna­hags­lög­sögu séu ein­göngu heim­ilar fyr­ir­tækjum sem eru ekki í eigu erlendra aðila að meira leyti en 25 pró­sent, sé miðað við hlutafé eða stofnfé. Telja flutn­ings­menn­irnir mik­il­vægt að kannað verði hvort setja þurfi sam­bæri­legar reglur að því er snertir lax­eldi.

Þing­mönn­unum sjö þykir áríð­andi að tryggt verði með laga­setn­ingu að lax­eldi á Íslandi verði ekki í eigu örfárra aðila, að fjöl­breytni ríki í grein­inni og að eign­ar­hald verði stað­bundið. Þing­menn­irnir eru hlynntir lax­eldi á Íslandi en telja þýð­ing­ar­mikið að greinin verði ekki í eigu örfárra aðila. „Laxeldi á Íslandi verður að vaxa og dafna í sátt við umhverfi og sam­fé­lag,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár