Eigandi Arnarlax greiðir út 48 milljarða króna arð

Arð­greiðslan út úr eig­anda Arnarlax á Bíldudal nærri tvö­fald­að­ist á milli áranna 2023 og 2024. Um er ræða eitt stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki heims og er aðeins pínu­lít­ill hluti starf­sem­innar á Íslandi. Arnarlax lenti í erf­ið­leikum á Íslandi í fyrra vegna laxalúsar sem kom upp hjá fyr­ir­tæk­inu.

Norskur eigandi Arnarlax á Bíludal greiðir út 48 milljarða
Norskur eig­andi Arnarlax á Bíludal greiðir út 48 millj­arða Norskur meiri­hluta­eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax greiðir út 48 millj­arða króna arð vegna síð­asta rekstr­ar­árs. Stofn­andi Salmar og stjórn­ar­for­maður er Gustav Witzoe eldri en hann sést hér ásamt syni sínum og nafna sem hann arf­leiddi af hluta­bréf­unum sínum í félag­inu fyrir mörgum árum.

Stærsti hlut­hafi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal greiðir út 48 millj­arða króna arð vegna síð­asta rekstr­ar­árs, 2023. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð frá árs­fundi þessa stærsta hlut­hafa, norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Salmar AS. Árs­fund­ur­inn var hald­inn þann 6. júní síð­ast­lið­inn.

Samkvæmt fund­ar­gerð­inni greiðir fyr­ir­tækið út rúm­lega 3,7 millj­arða norskra króna í arð fyrir síð­asta rekstr­arár eða 35 norskar krónur á hlut. Til sam­an­burðar þá nama arð­greiðslan út úr Salmar AS 20 norskum krónum á hlut fyrir árið 2022 eða rúm­lega 2,1 millj­arði norskra króna. Því er um að ræða nærri 80 pró­sent hækkun á arði á milli ára. 

„Því miður var um að ræða vanda­mál vegna laxalúsar sem leiddi til ógn­ana fyrir vel­ferð fiskanna okkar.“
Björn Hembre,
for­stjóri Arnarlax

Norðmenn langstærstu hluthafarnir

Salmar AS á 52 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi á Bildudal og er þar með meiri­hluta­eig­andi í …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eiríkur Jónsson skrifaði
    Af hverju var fyrirsögnin í Heimikdinni um daginn ekki - Eigendur tryggingafélagsins Varðar greiddu sér 13 milljarða í arð?
    1
  • HB
    Hólmgeir Baldursson skrifaði
    Við athugun á þessu máli kemur í ljós að átt er við norska fyrirtækið SalMar, sem á um 52% í Arnarlax. Hluthafar SalMar ákváðu að greiða 3,7 milljarða norskra króna í arð. Það var sem sé ekkert greitt í arð hjá Arnarlax
    0
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Hvað ætli séu mörg stórfyrirtæki á Íslandi sem eru í erlendri eigu? Og hversu mörg þeirra skyldu greiða eigendum sínu arð, erlendis? Ætla mætti stundum af fréttaflutningi að það séu einungis eigendur laxeldisfyrirtækja greiða eigendum sínum arð. Það gæti verið fróðlegt jafnvel gagnlegt að rýna örlítið út fyrir laxeldisbrúnina.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Spillingin hér á landi er í boði ríkisstjórnar og meðvirkni stjórnarandstöðunnar. Þau bíða eftir að komast sjálf að kjötkötlunum.
    Allir sem hafa heila brú í hausnum sjá hvað þetta er sjúkt, en fíknin og græðgin er skynseminni yfirsterkari. Veit í alvörunni ekki hvers vegna ég er að eyða tíma mínum í að vara ykkur við. Álíka árangursríkt og að reyna að þurrka upp alkahólistann, sem ég hef reynt alla mína ævi og frá 2008 haft réttindi sem slík.👿
    4
  • EVÓ
    Elín Vigdís Ólafsdóttir skrifaði
    Jesús minn !
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár