Segja stjórnvöld gefa erlendum stórfyrirtækjum auðlindir Íslands

80 þús­und frjóir laxar eru taldir hafa sloppið úr kvíum Arnarlax á Vest­fjörðum. Villti laxa­stofn­inn á Íslandi telur aðeins um 50 þús­und laxa. Um er að ræða „grafal­var­legt umhverf­isslys“.

Um 80 þúsund eldislaxar sluppu úr einni kví Arnarlax í Arnarfirði síðasta sumar.
Um 80 þús­und eld­is­laxar sluppu úr einni kví Arnarlax í Arn­ar­firði síð­asta sumar. Mynd: Arnarlax

„Er stefna stjórn­valda að þurrka út villtan lax á Íslandi og þar með hlunn­indi og ferða­þjón­ustu í lax­veiðiám fyrir ofsa­gróða norskra sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækja? Af hverju eru íslensk stjórn­völd að gefa erlendum stór­fyr­ir­tækjum auð­lindir okkar?“ Þannig spyr fjöldi sam­taka og fyr­ir­tækja sem skora á mat­væla­ráð­herra að stöðva lax­eldi í opnum sjó­kvíum áður en það verði um seinan. Kallað er eftir „trú­verð­ugri áætlun sem miðar að því að banna alfarið lax­eldi í sjó­kvíum hér við land“.

[adspot]

Nýverið lagði Mat­væla­stofnun 120 millj­óna króna stjórn­valds­sekt á sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax er upp komst að fyr­ir­tækið gat ekki gert grein fyrir örlögum yfir 80 þús­und laxa sem sleppt hafði verið í kví fyr­ir­tæk­is­ins í Arn­ar­firði. Ljóst þykir að þeir hafi sloppið út í nátt­úr­una. Sakar MAST Arnarlax um að hafa brotið gegn skyldu til að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á honum.

[links]Við slátrun úr sjó­kví 11 við Haganes í Arn­ar­firði í októ­ber varð ljóst að fyr­ir­tækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta.

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í októ­ber 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en nú í októ­ber, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reynd­ist fjöld­inn sem kom upp úr kvínni hins vegar vera aðeins 18.315 laxar.

Hófst þá rann­sókn MAST sem leiddi í ljós mis­ræmi í fóð­ur­gjöf miðað við upp­gef­inn fjölda fiska í kvínni. Veruleg frá­vik höfðu orðið í fóð­ur­gjöf í umræddri kví frá því í júní í fyrra „sem hefði átt að vekja sterkar grun­semdir fyr­ir­tæk­is­ins um að eitt­hvað alvar­legt væri á seyði,“ sagði í til­kynn­ingu MAST um málið.

Í ágúst í fyrra var til­kynnt um gat á umræddri kví og þá sagt að það hefði ekki verið á henni við eft­ir­lit um mán­uði fyrr.

Arnarlax svarar fyrir sig

For­svars­menn Arnarlax svör­uðu þess­ari ákvörðun MAST með því að til­kynna að þeir hyggð­ust kæra hana á þeim for­sendum að „öllum við­bragðs­ferlum fyr­ir­tæk­is­ins, sem og lögum og reglum, hafi verið fylgt til hins ítrasta“. Í til­kynn­ingu sögðu for­svars­menn­irnir að þeim þætti „mjög miður“ að lax hefði sloppið og að fyr­ir­tækið muni draga lær­dóm af „þessu óhappi“.

Samtökin og fyr­ir­tækin sem sent hafa stjórn­völdum áskorun vegna slyss­ins benda á að villti laxa­stofn­inn á Íslandi telji um 50 þús­und laxa. Slysa­slepp­ingin, þar sem um 80 þús­und frjórir norskir eld­is­laxar hafi sloppið út í nátt­úr­una, sé „grafal­var­legt umhverf­isslys“ sem muni hafa „alvar­leg erfða­fræði­leg áhrif“ á villta laxa­stofna á Íslandi. Slysa­slepp­ingin sé enn fremur stað­fest­ing þess „að fögur fyr­ir­heit fyr­ir­tækja í sjó­kvía­eldi eru fölsk og opin­berar hún einnig skeyt­ing­ar­leysi fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart hags­munum nátt­úr­unnar þegar ákveðið er að mót­mæla sekt­ar­greiðsl­unni“.

[adspot]

Samtökin benda á að erfða­mengun villtra stofna í kjöl­far slysa­slepp­inga er óaft­ur­kræft umhverf­isslys. Ekki standi villtum laxa­stofnum þó aðeins ógn af sjó­kvía­eldi því iðn­að­ur­inn skilji einnig eftir sig mengun á hafs­botni. Þá stafi öðrum villtum stofnum ógn af lúsa­fári og sjúk­dómum. Enn­fremur sé ímynd óspilltrar nátt­úru Íslands í hættu.

Orðspor Íslands svert

Á Íslandi eru rúm­lega 2.250 lög­býli sem treysta á tekjur frá lax­veiðiám og skapar lax­veiðin marg­falt fleiri störf en sjó­kvía­eldi mun nokkurn tíma gera, segir í áskorun sam­tak­anna og fyr­ir­tækj­anna. Efna­hags­legt virði lax- og sil­ungs­veiða nemi 13,5 millj­örðum króna árlega. „Slysa­slepp­ingar sem þessi rýra verð­mæti þeirra nátt­úru­legu auð­linda sem fjöl­skyldur á lands­byggð­inni treysta á.“ Orðspor Íslands sem upp­runa­lands hrein­leika sé einnig svert. „Ætla stjórn­völd að gera sömu mis­tök og aðrar þjóðir sem ala frjóan og fram­andi lax í opnum sjó­kvíum?“

Skorað er á mat­væla­ráð­herra að stöðva lax­eldi í opnum sjó­kvíum áður en það verði um seinan. „Það er ljóst að ef stjórn­völd hafa raun­veru­legan áhuga á að vernda villta laxa­stofna og nátt­úru Íslands, þá þarf að stöðva fisk­eldi í opnum sjó­kvíum.“ Á meðan verið sé að stunda sjó­kvía­eldi á Íslandi þurfi að gera það eftir allra ströng­ustu stöðlum og er bent á svo­nefnda NASCO-staðla í því sam­hengi. Skorað er á mat­væla­ráð­herra að inn­leiða þessa staðla og „gefa engan afslátt af þeim á meðan verið er að stunda þessa meng­andi starf­semi í fjörðum lands­ins“.

Einnig er skorað á ferða­mála­ráð­herra að vernda þau 2.250 lög­býli sem treysta á lax­veiði­hlunn­indi sem séu auk þess „ómet­an­legur partur af ferða­þjón­ustu lands­ins“.

Samtökin og fyrirtækin sem skrifa undir áskorunina eru:

NASF á Íslandi, Lands­sam­band Veiði­fé­laga, Icelandic Wildlife Fund, Laxinn Lifi, Land­vernd, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Ungir Umhverf­is­sinnar, Lax-á, Veiði­fl­ugur, Veiðivön, Höklar, Six Rivers Project, Stóra-Laxá, Fuss, Laxá á Ásum, Starir, Mið­fjarð­ará, Eleven Experience, Norðurá, Stanga­veiði­fé­lag Reykja­víkur (SVFR), Hreggnasi, Vatns­dalsá, Veiði­fé­lagið, Fish Partner og Flugu­búllan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár