Arnarlax getur ekki gert grein fyrir afdrifum tugþúsunda laxa – „Vítavert aðgæsluleysi“

Mat­væla­stofnun hefur lagt stjórn­valds­sekt á lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax upp á 120 millj­ónir króna fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski.

Verið getur að tugþúsundir laxa hafi sloppið úr kvíum Arnarlax síðasta sumar.
Verið getur að tug­þús­undir laxa hafi sloppið úr kvíum Arnarlax síð­asta sumar. Mynd: Norska Hafrannsóknarstofnunin

Aðeins 18.315 laxar reynd­ust vera í kví lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax í Haganesi í Arn­ar­firði er slátrað var upp úr henni í októ­ber. Samkvæmt skrán­ingu hafði tæp­lega 133 þús­und löxum verið sleppt í kvína. Því er ljóst að fyr­ir­tækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta. Þeir hafa lík­lega sloppið úr kvínni og gæti sá atburður hafa átt sér stað í fyrra­sumar.

[adspot]

Mat­væla­stofnun hefur því ákveðið að sekta Arnarlax um 120 millj­ónir króna „fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski,“ líkt og segir í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í októ­ber 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en nú í októ­ber, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reynd­ist fjöld­inn sem upp kom hins vegar vera aðeins 18.315 laxar.

Í ágúst í fyrra til­kynnti Arnarlax um að gat hefði fund­ist á einmitt þess­ari kví. Þá voru við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins í sam­ræmi við kröfur sem gerðar eru um slíka atburði að mati Mat­væla­stofn­unar. Tugir laxa úr kvínni veidd­ust svo í ám við Arn­ar­fjörð, m.a. í Mjólká, skammt frá virkj­un­inni.

En þegar tölur úr slátr­un­inni í októ­ber lágu fyrir og ljóst var að ekki var hægt að gera grein fyrir afdrifum rúm­lega 80 þús­und laxa, hóf MAST strax rann­sókn og krafði Arnarlax meðal ann­ars um skýr­ingar á mis­ræmi í fóð­ur­gjöf miðað við upp­gef­inn fjölda fiska í kvínni.

Kom þá í ljós að veru­leg frá­vik höfðu orðið í fóð­ur­gjöf í kví 11 frá því í júní 2021, eða tveimur mán­uðum áður en til­kynnt var um gat á kvínni síð­ast­liðið sumar, „sem hefðu átt að vekja sterkar grun­semdir fyr­ir­tæk­is­ins um að eitt­hvað alvar­legt væri á seyði,“ segir MAST.

Alvarlegt brot

Samkvæmt 1. gr. laga um fisk­eldi eru mark­mið lag­anna meðal ann­ars þau að stuðla að ábyrgu fisk­eldi og tryggja verndun villtra nytja­stofna og telur Mat­væla­stofnun að um alvar­legt brot sé að ræða, bæði út frá umfangi og hættu fyrir villta nytja­stofna og líf­ríki, sem og að um er ræða brot sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri stjórn og innra eft­ir­liti fyr­ir­tæk­is­ins. Mat­væla­stofnun telur aðgæslu­leysi Arnarlax hafi verið víta­vert og afleið­ingar þess mjög alvar­legar.

Samkvæmt sömu lögum getur Mat­væla­stofnun lagt stjórn­valds­sekt á þá aðila sem brjóta gegn skyldu um að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski, hvort sem umrædd brot megi rekja til ásetn­ings eða gáleysis. Jafn­framt segir í lög­unum að við ákvörðun sektar skuli m.a. tekið til­lit til alvar­leika brots, hvað það hafi staðið lengi og þeirra hags­muna sem eru í húfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár