„Áhrifin á ásýnd íslensks sjáv­ar­út­vegs eru gríð­ar­leg innan lands sem utan“

Sumum þing­mönnum þótti fullt til­efni til að ræða orð­spors­á­hættu Íslands vegna Sam­herj­a­máls­ins á þingi í dag, en öðrum ekki. Þing­maður Við­reisnar sagði þögn um fram­gang rann­sókn­ar­innar vera æpandi og þing­maður Flokks fólks­ins sagði málið „101 í mútum“ .

Bjarni Jónsson er þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi.
Bjarni Jónsson er þing­maður VG í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn bæði stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu lýstu yfir áhyggjum af orð­spori Íslands og íslensks sjáv­ar­út­vegs vegna Namib­íu­máls Samherja í sér­stakri umræðu sem efnt var til á Alþingi í dag. Bjarni Jónsson þing­maður Vinstri grænna gerði inni­hald ræðu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins á fundi SFS á þriðju­dag að umtals­efni í því sam­hengi.

„Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi kusu að gera for­stjóra Samherja að and­liti sam­tak­anna á dag­skrá sinni á þriðju­dag­inn sem helguð var degi sjáv­ar­út­vegs­ins. Þar lýsti hann ótta sínum og félaga sinna yfir því að veiði­heim­ildir til smærri útgerða og strand­veiða ógn­uðu stöðu eigin fyr­ir­tækis og tengdra aðila á erlendum mörk­uðum. Hvað með orð­spors­á­hættu Íslands vegna fram­ferðis stór­fyr­ir­tækja á erlendri grund og alþjóð­legrar glæpa­rann­sóknar sem ekki hefur verið til lykta leidd og hér er rædd?“ spurði Bjarni.[links]

Í ræðu sinni sagði Bjarni að útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins væru mik­il­væg þjóð­ar­bú­inu en að á sama tíma blasti við „sá kaldi raun­veru­leiki að stór­út­gerðin hefur rakað til sín meg­in­þorra veiði­heim­ilda í land­inu og skelfur nú yfir til­vist smærri fjöl­skyldu­fyr­ir­tækja og ein­yrkja sem halda uppi búsetu á stöðum sem stór­út­gerðin hefur skilið eftir í sárum“.

„Í hvert skipti sem mál­pípur stór­út­gerð­ar­innar ryðj­ast fram í fjöl­miðlum eða miðlum í eigin eigu erum við minnt á mik­il­vægi þess að virða rétt sjáv­ar­byggð­anna og tryggja betur byggða­festu afla­heim­ilda og koma í veg fyrir að smærri sjáv­ar­byggðir séu rúnar lífs­björg­inni með upp­söfnun fárra auð­manna og fyr­ir­tækja á veiði­rétt,“ sagði Bjarni og bætti því við að það yrði að grípa til aðgerða til að „vinda ofan af sam­þjöppun afla­heim­ilda, rekja saman tengda aðila til sam­ræmis við það sem ann­ars staðar ger­ist.“

„Þannig tel ég að við treystum heil­brigða við­skipta­hætti og gagn­sæi innan lands sem utan. Hver sem nið­ur­staðan í því máli sem hér er rætt verður er ljóst að áhrifin á ásýnd íslensks sjáv­ar­út­vegs eru gríð­ar­leg innan lands sem utan, bæði til langs tíma og skamms. Það er óásætt­an­legt að orð­spor heillar greinar sé undir vegna ein­stakra fyr­ir­tækja sem byggja við­ur­væri og auð­æfi sín á sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar,“ sagði Bjarni í ræðu sinni, í þess­ari sér­stöku umræðu, sem Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata hóf.

Erlendir fjárfestar horfi til spillingarvarna

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar sagði að orð­spor Íslands skipti öllu þegar kæmi að efna­hag rík­is­sjóðs og láns­hæf­is­mati hans, sem og alþjóð­legum við­skiptum. „Það er okkur mik­il­vægt að fá hingað til lands erlendar fjár­fest­ingar enda mark­að­ur­inn smár og okkur nauð­syn­legt að fá inn stærri aðila,“ sagði Helga Vala og bætti við að þegar erlendir fjár­festar hug­leiddu komu inn á mark­að­inn hér­lendis skoð­uðu þeir nokkra þætti; stöð­ug­leika gjald­mið­ils, stöð­ug­leika í stjórn­málum, fjár­mála­kerfið, virkt rétt­ar­kerfi og spill­ing­ar­varnir.

„Eins og fram hefur komið hafa full­trúar nefndar OECD um mútur verið undr­andi og áhyggju­fullir yfir hæga­gangi rann­sóknar á Sam­herj­a­mál­inu og meintum mútu­greiðslum full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Þetta eru skilj­an­legar áhyggjur enda hafa á sama tíma borist fregnir af mála­rekstri, fryst­ingu eigna og gæslu­varð­haldi sam­starfs­að­ila meintra ger­enda á vegum Samherja í Namibíu á meðan lítið hefur spurst til rann­sóknar máls hér á landi. Sagði hér­aðs­sak­sókn­ari á sínum tíma að hraði rann­sóknar væri í beinu sam­hengi við það fjár­magn sem stjórn­völd skammta emb­ætt­inu, van­fjár­mögnun bitni ein­fald­lega á máls­hraða,“ sagði Helga Vala einnig, í ræðu sinni.

Dráttur rannsóknarinnar ekki góður fyrir neinn

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður Vinstri grænna sagði í sinni ræðu að þróun máls­ins væri „síst til þess fallin að efla traust á stofn­unum eða á útgerð­inni sem slíkri“ og að það væri hennar skoðun að mik­il­vægt væri að „efla traust á svo sam­fé­lags­legra mik­il­vægri atvinnu­grein.“

„Í mínum huga er mjög mik­il­vægt að svo viða­mik­illi rann­sókn á fyr­ir­tæki sem hefur jafn veiga­mikla stöðu í einni af grunn­stoðum íslensks athafna­lífs og nýtir sér sam­eig­in­legar auð­lindir lands­ins sé sinnt af kost­gæfni. Ég tek hins vegar undir að sá dráttur sem orðið hefur á rann­sókn­inni er ekki góður fyrir neinn og alls ekki orð­spor lands­ins,“ sagði Bjarkey.

[adspot]

Hún bætti því einnig við að kunn­ug­leg birt­ing­ar­mynd sam­fé­lags mik­il­vægis útgerð­ar­innar, „sú sem flest okkar kann­ast við og ekki síst við sem búum á lands­byggð­unum“, væri hversu miklu máli útgerðin skiptir og hefur skipt í nær­sam­fé­lag­inu í áranna rás og hversu sam­tvinnuð áhrif fyr­ir­tækj­anna eru við félags­líf, íþróttir og menn­ingu. „En mik­il­vægi útgerð­ar­innar í nær­sam­fé­lag­inu þýðir líka ákveðin ítök, þar sem oftar en ekki er um að ræða stærsta vinnu­stað­inn sem stendur undir meira eða minna vel­flestum störfum þess og fyr­ir­tækin eru síður en svo hafin yfir gagn­rýni,“ sagði Bjarkey.

Þing­mað­ur­inn bætti því við að hún gerði meiri kröfur til fyr­ir­tækja sem nýta sam­eig­in­lega auð­lindir lands­manna, „sér í lagi þar sem þau greiða afar lágt afgjald fyrir, að þau sýni ríka sam­fé­lags­lega ábyrgð“.

„Að end­ingu vil ég segja að það að sama fyr­ir­tæki hegði sér með öðrum hætti erlendis en hér heima er for­kast­an­legt, enda ætti mann­virð­ing að vera í for­grunni allra athafna og þátt­töku fyr­ir­tækja hvar sem þau eru starf­andi í heim­inum,“ sagði Bjarkey að lokum.

Þögnin æpandi

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar að engin ástæða væri til þess að ætla að sá far­vegur sem rann­sókn máls­ins væri í hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara væri ekki eins og hann ætti að vera.

„En að því sögðu þá er það svo að hér er um að ræða risa­vaxið spill­ing­ar­mál, lík­lega það stærsta ein­staka í Íslands­sög­unni. Það er svo­lítið sér­stakt að það hafi ekki verið gefið neitt upp í ferl­inu um stöðu mála, þ.e. hvar málið er statt, hvernig miðar og svo fram­vegis vegna þess að slík upp­lýs­inga­gjöf er sann­ar­lega ekki brot á neinum reglum sem varða rann­sókn mála né heldur neitt óeðli­legt. Þögnin getur orðið hins vegar svo ærandi að hún ein og sér verður óeðli­leg,“ sagði Hanna Katrín.

Leyfum dómstólum að dæma – um „101 í mútum“

Rétt eins og dóms­mála­ráð­herra lýstu töldu þó sumir þing­menn sem kvöddu sér hljóðs í umræð­unni óeðli­legt með öllu að verið væri að ræða rann­sókn máls­ins í þess­ari sér­stöku umræðu á Alþingi.

Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagði í umræð­unni að þegar stjórn­mála­menn reyndu með beinum eða óbeinum hætti að hafa áhrif á störf ákæru­valds í ein­stökum málum værum við „komin inn á hættu­legar brautir“ og sagði „áhyggju­efni“ að þing­menn ræddu rann­sókn ákveð­ins saka­máls í þingsalnum.

„Pólitísk afskipti af ákvörð­unum sem þessum eru til þess fallin að stund­ar­hags­munir stjórn­mála­manna ráða ákvörð­unum. Ég hins vegar treysti sak­sókn­ara. Ég veit að hann stendur rétt að rann­sókn saka­mála og í þessu til­felli mun hann standa rétt að rann­sókn svo­kall­aðs Sam­herj­a­máls, kom­ast að réttri nið­ur­stöðu og ef til­efni er til láta þá sæta ábyrgð ef lög hafa verið brotin,“ sagði Óli Björn.

[adspot]

„Það sætir furðu að við séum yfir höfuð að ræða þetta mál hér í dag. Leyfum frekar þeim sem sam­kvæmt lögum er falið að rann­saka þetta mál og dóm­stólum lands­ins að dæma ef til þess kemur,“ sagði Ingi­björg Isaksen þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, sem sagð­ist jafn­framt ekki fara vel á því að alþing­is­menn tjáðu sig úr ræðu­stól um mál sem væru í rann­sókn.

Í ræð­unni á undan hafði Eyjólfur Ármanns­son þing­maður Flokks fólks­ins kallað Namib­íu­málið „skóla­bók­ar­dæmi um mútur til opin­berra starfs­manna í þriðja heim­inum“ – „101 í mútum [...] eða meintum mútu­greiðslum“ og einnig fett fingur út í það að í ræðu sinni hefði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra talað um „póli­tískan“ vinnu­hóp innan OECD.

„Ég bara veit ekki hvað hæst­virtur ráð­herra á við með því að emb­ætt­is­maður innan OECD sé póli­tískur. Ég hef tekið sjálfur þátt í starfi OECD vegna aðgerða gegn pen­inga­þvætti og ég get full­yrt það við hæst­virtan ráð­herra og þing­heim að þar eru vinnu­brögð á hæsta stand­ardi sem til­heyrir og OECD er ein öfl­ug­asta stofnun hvað varðar gæði stjórn­sýslu og vinnu­brögð sem til eru í heim­inum,“ sagði Eyjólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár