Samherjasamstæðan átti eigið fé upp á tæpa 160 milljarða króna um síðustu áramót

End­ur­skoð­endur Samherja Holding gera ekki lengur fyr­ir­vara við árs­reikn­ingi félags­ins vegna óvissu um „mála­rekstur vegna fjár­hags­legra upp­gjöra sem tengj­ast rekstr­inum í Namib­íu.“ Félagið hagn­að­ist um 7,9 millj­arða króna í fyrra.

Helstu eigendur Samherja Holding eru Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Helstu eig­endur Samherja Holding eru Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Samsett

End­ur­skoð­endur Samherja Holding, félags sem heldur utan um þorra erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, hafa und­ir­ritað árs­reikn­ing félags­ins án fyr­ir­vara. Í árs­reikn­ingi Samherja Holding vegna árs­ins 2020 var fyr­ir­vari gerður við árs­reikn­ing­inn vegna óvissu „um mála­rekstur vegna fjár­hags­legra upp­gjöra sem tengj­ast rekstr­inum í Namib­íu.“ Sá fyr­ir­vari var gerður bæði af stjórn Sam­herja Holding og end­ur­skoð­anda félags­ins.

Í til­kynn­ingu á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnarsem birt var í dag eru birtar valdar upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingi Samherja Holding. Reikn­ingnum sjálfum hefur enn sem komið er ekki verið skilað inn til árs­reikn­ing­ar­skrár Skatts­ins, en slíkt á að gera fyrir lok ágúst­mán­aðar ár hvert.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Samherji Holding hafi hagn­ast um 7,9 millj­arða króna á árinu 2021, ef miðað er við gengi evru í lok síð­asta árs. Eignir félags­ins voru 95,3 millj­arðar króna og eigið féð 64,8 millj­arðar króna. Syst­ur­fé­lagið Samherji hf. átti eigið fé upp á 94,3 millj­arða króna í lok síð­asta árs og því á sam­stæðan, sem fram til 2018 var eitt fyr­ir­tæki, sam­an­lagt 159,1 millj­arð króna í eignir umfram skuldir.

Helstu eignir Samherja Holding eru fyr­ir­tæki á sviði veiða, vinnslu og sölu sjáv­ar­af­urða í Evrópu og Norður-Ameríku. Þá hefur Samherji Holding einnig fjár­fest í flutn­inga­starf­semi og er stærsti hlut­haf­inn í Eimskip með 32,79 pró­sent eign­ar­hlut.

Skipt upp í tvennt 2018

Á árinu 2018 gerð­ist það að Sam­herja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­­­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­­­em­ber 2017.

Eftir það er þorri inn­­­­­­­­­lendrar starf­­­­­sem­i Sam­herja og starf­­­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­­­sem­i og hluti af fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­starf­­­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf.

[adspot]Sam­herji Holding er að upp­­i­­­­stöðu í eigu for­stjóra Samherja, Þor­­­steins Más Bald­vins­son­ar, Helgu S. Guð­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­konu hans og Krist­jáns Vil­helms­­­son­­­ar, útgerð­­ar­­stjóra Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unn­­ar.

Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Bald­vin Þor­­­steins­­­son, sonur Þor­­­steins Más og Helgu, hafi verið falið að leiða útgerð­­­ar­­­starf­­­semi Sam­herja í Evr­­­ópu, sem fer fram í gegnum Sam­herja Holding. Til að vera nákvæm­ari þá fer hún fram í gegnum dótt­ur­fé­lagið Alda Seafood Holding BV. Í árs­reikn­ingi Samherja Holding fyrir árið 2020 segir að í des­em­ber það ár hafi félagið öll önnur hluta­bréf sín í CR Cuxhavener Reederei GmbH, Icefresh GmbH, Nergård Invest Samherji AS, Onward Fishing Company Limited, Sæbóli fjár­fest­inga­fé­lagi ehf. og Seagold Limited inn sem hluta­fjár­fram­lag í Alda Seafood Holding BV, sem er í 100 pró­sent eigu Samherja Holding.

Fjár­­­­­­­fest­inga­­­­fé­lagið Sæból hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­­­­ur­­­­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­­­­festi á Kýp­­­­ur. Þau félög héldu meðal ann­­­­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­­­­íu, þar sem sam­­­­stæðan og stjórn­­­­endur hennar eru grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­­­­ast yfir ódýran kvóta.

Auk þess á Sæból þrjú dótt­ur­fé­lög í Færeyjum, þar á meðal Spf Tindhólm.

Hinn hluti Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, Samherji hf., var að uppi­stöðu í eigu sömu aðila og eiga Samherja Holding um ára­tuga­skeið. Það breytt­ist 15. maí 2020. Þá birt­ist til­­kynn­ing á heima­­síðu Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar um að Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, Helga S. Guð­­munds­dóttir og Krist­ján Vil­helms­­son væru að færa næstum allt eign­­ar­hald á Sam­herja hf. til barna sinna. Sú til­færsla átti sér þó form­lega stað á árinu 2019.

Hagn­aður Sam­herja hf. á árinu 2021 nam alls 17,8 millj­örðum króna í sam­an­burði við 7,8 millj­ónir á árinu 2020.

Eignir Sam­herja hf í árs­lok 2021 námu 128 millj­örðum króna og eigið fé 94,3 millj­örð­um.

Umfangsmikil rannsókn sem fer brátt að ljúka

Sam­herji og lyk­il­starfs­fólk innan sam­stæðu fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra frá lokum árs 2019. Auk þess er málið í rann­sókn og ákæru­með­ferð í Namibíu.

[links]Hér­lendis hófst rann­sókn eftir að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu að grunur væri á að Sam­herji hefði greitt mút­ur, meðal ann­ars til hátt­settra stjórn­mála­manna, til að kom­ast yfir fisk­veiði­kvóta í Namibíu og Angóla. Á sama tíma voru birtar upp­lýs­ingar sem bentu til þess að Sam­herji væri mögu­lega að stunda stór­fellda skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætt­i.

Átta manns hið minnsta hafa fengið rétt­­­ar­­­stöðu sak­­­born­ings við yfir­­­heyrslur hjá emb­ætt­i hér­aðs­sak­sókn­ara vgna máls­ins. Á meðal þeirra er Þor­­steinn Már, for­­stjóri Sam­herja. Aðrir sem kall­aðir hafa verið inn til yfir­­heyrslu og fengið stöðu sak­­born­ings við hana eru Ingólfur Pét­­­ur­s­­­son, fyrr­ver­andi fjár­­­­­mála­­­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Ingvar Júl­í­us­­­son, fjár­­­­­mála­­­stjóri Sam­herja á Kýp­­­ur, Arna McClure, yfir­­­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­­­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Sam­herja í Namib­­­íu, Aðal­­­­­steinn Helga­­­son, fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóri Sam­herja í Namib­­­íu, Jón Óttar Ólafs­­­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­­­sókn­­­ar­lög­­­reglu­­­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­­­­­ljóstr­­­ar­inn Jóhannes Stef­áns­­­son.

Í umfjöllun Stund­arinnar um rann­sókn­ina fyrr í þessum mán­uði var haft eftir Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara að rann­sóknin á Íslandi væri langt kom­in. Líkt og Kjarn­inn greindi frá í júní er helsta hindrun þess að hægt sé að ljúka rann­­sókn á þeim anga Sam­herj­­a­­máls­ins sem er til rann­­sóknar hjá íslenskum rann­­sókn­­aremb­ættum sú að enn vantar á að fá ýmis­­­konar gögn frá Namibíu til Íslands. Rétt­­ar­beiðni vegna þessa er enn úti­stand­andi og ekki liggur fyrir hvenær hún verður þjón­u­st­uð. Fundir með bæði þar­­lendum rann­­sókn­­ar­yf­­ir­völd­um, og síðar hátt­­settum stjórn­­­mála­­mönn­um, hafa liðkað fyrir því að það gangi hraðar fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár