Samherji hótaði Forlaginu málsókn erlendis ef bók um Namibíumálið yrði ekki innkölluð

Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­mál­inu er langt komin og ein­ungis er beðið þess að rétt­ar­beiðnir erlendis verði afgreiddar áður en ákvörðun um sak­sókn verður tekin. Starfs­menn Samherja hót­uðu bóka­út­gef­endum mál­sóknum vegna skrifa um fyr­ir­tækið.

Jón Óttar Ólafsson boðaði framkvæmdastjóra Forlagsins á fund á skrifstofu forstjóra Samherja um miðjan desember 2019.
Jón Óttar Ólafsson boð­aði fram­kvæmda­stjóra For­lags­ins á fund á skrif­stofu for­stjóra Samherja um miðjan des­em­ber 2019.

Jón Óttar Ólafsson, starfs­maður Samherja, sendi tölvu­póst á Egil Örn Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóra útgáf­unnar For­lags­ins, tveimur dögum fyrir jól árið 2019 þar sem hann hót­aði því að Forlagið yrði dregið fyrir dóm í Bret­landi ef það inn­kall­aði ekki bók um Samherja. Frá þessu greinir Egill í Stund­inni í dag, en þar er umfangs­mikil umfjöllun um hið svo­kall­aða Namib­íu­mál Samherja í ljósi þess að 1001 dagur er síðan að málið var fyrst opin­berað, í nóv­em­ber 2019.

Bókin sem Jón Óttar fór fram á að yrði inn­köll­uðu heitir „Ekkert að fela: Á slóð Samherja í Afríku“ og var eftir sama þriggja manna teymið og vann umfjöllun um málið fyrir Kveik á RÚV, þá Aðal­stein Kjart­ans­son, Helga Seljan og Stefán Drengs­son.

Í tölvu­póst­inum sem Jón Óttar sendi sagði meðal ann­ars að Forlagið ætti að inn­kalla bók­ina til að spara sér mik­inn kostnað við mála­ferli í London: „Googlaðu bara English defamation law og hvað mála­flutn­ings­maður QC kostar á klukku­tím­ann. Þetta er ekki hótun ... bara að aðstoða þig að taka upp­lýsta ákvörðun.“

Boðaður á fund á skrifstofu forstjóra Samherja

Áður en tölvu­póst­ur­inn var sendur hafði Jón Óttar tví­vegis komið óboðin, og án þess að eiga skýrt erindi, á skrif­stofur For­lags­ins á Bræðra­borg­ar­stíg. Þar átti hann óform­legt og ómerki­legt spjall við Egil sem fól ekki í sér neinar hót­anir eða annað slíkt, en var að sögn Egils svo ómerki­legt að hann man ekki lengur hvað fór þeirra á milli. Hann hafi þó tengt heim­sóknir Jóns Óttars við ein­hvers­konar taktík sem Samherji væri að beita vegna umfjöll­unar um sig, sem hann botn­aði þó ekk­ert í hver væri.

[adspot]Um miðjan des­em­ber 2019 hafi Jón Óttar svo boðað Egil á fundi á skrif­stofu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, á skrif­stofum fyr­ir­tæk­is­ins í turn­inum við Katrín­ar­tún í Reykja­vík. For­stjór­inn var ekki við­staddur þann fund, ein­ungis Jón Óttar var þar fyrir hönd Samherja, en hann sagði stjórn félags­ins vera að funda á sama tíma í næsta her­bergi.

Á þeim fundi spil­aði Jón Óttar fyrir Egil efni á far­tölvu sem átti að sýna fram á að það sem væri í bók­inni væri lygi. „Og gefa mér þannig, eða öllu heldur For­lag­inu, færi á að inn­kalla bók­ina ellegar myndu þeir fara í mál við okkur.“ Efnið voru mynd­bönd og upp­tökur af Jóhann­esi Stef­áns­syni, upp­ljóstr­ara í Namib­íu­mál­inu, sem áttu að sýna fram á það að hann væri ótrú­verð­ugur sem heim­ild­ar­maður. Egill sagði efnið sýna Jóhannes í ójafn­vægi í sam­heng­islitlu sam­tali sem tengd­ist ekk­ert efni bók­ar­innar. „Mér fannst ein­hvern veg­inn til­gang­ur­inn vera sá að sýna mér hvurs­lags ómenni Jóhannes væri.“ Ekkert í því sem Jón Óttar sýndi honum eða sagði gaf til­efni til að inn­kalla bók­ina.

Sendu áskilnaðarbréf á Þorláksmessu

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir Egill að Jón Óttar hafi haft sam­band nokkrum dögum síðar til að leita svara um hvort bókin yrði inn­kölluð. Þegar honum var sagt að svo yrði ekki segir Egill að Jón Óttar hafi tjáð honum að framundan væru þá fok­dýr rétt­ar­höld. „En ég tók mjög lítið mark á þessu öllu satt að segja og hafði ekki áhyggjur af þessu og hef ekki enn.“

Í tölvu­pósti til Egils sagði Jón Óttar að hann ætti að bera það undir lög­mann sinn hversu dýr mála­rekstur í Bret­landi væri. Í kjöl­farið hót­aði hann að fara í mál við bæði Forlagið og blaða­menn­ina sem skrif­uðu bók­ina. Í tölvu­póst­inum stóð: „Þegar þu nærð á hann [lög­mann­inn] get­urðu spurt hann hvort þu eigir að hafa ahyggjur af þvi að ásak­an­irnar og bókin eru rædd um allt netið a ensku og ég er með kúnna i London. Helgi Seljan og strak­arnir [Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son] verða að sanna i London að þetta sem er i bók­inni er rétt. Það er ekki mitt að sanna að það se rangt. Þeir verða þar fyrir dóm­stólum næstu árin.“

Einnig greint frá því að dag­inn eftir að tölvu­póstur Jóns Óttars barst, á Þor­láks­messu árið 2019, hafi For­lag­inu borist tvö áskiln­að­ar­bréf frá tveimur aðskildum lög­mönnum. Þau voru skrifuð fyrir hönd tveggja yfir­manna Samherja, Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Örnu McClure, sem töldu að rang­færslur um sig væri að finna í bók­inni. Í slíkum bréfum er tekið fram að skjól­stæð­ingar umræddra lög­manna áskilji sér rétt til að sækja ein­hvern rétt. Í Stund­inni er haft eftir Agli að það sé „oft siður að reyna að ter­r­orisera fólk rétt fyrir jól, þannig að þetta kom mér ekk­ert á óvart og tók mig ekki á taugum.“

Egill segir við Stundina að honum hafi fund­ist fram­ferði Jóns Óttars kjána­legt sem full­trúa Samherja. „Að láta sér detta það í hug að það gæti verið skyn­sam­legt bara að fara fram á þetta við mig. Í mínum huga myndi það aldrei gagn­ast mál­stað þeirra, því þeir voru nátt­úr­lega að reyna ein­hvern veg­inn að koma sínum mál­stað á fram­færi með ein­hverjum hætti. Að dúkka upp á bóka­for­lagi vestur í bæ og með þær hug­myndir að við myndum inn­kalla bók. Mér fannst það bara fárán­legt og mér finnst það enn.“

Norskur fræðimaður segir að sér hafi líka verið hótað

Í umfjöllun Stund­ar­innar er einnig greint frá útgáfu ann­arrar bókar sem Samherji reyndi að hafa áhrif á. Þar var um að ræða bók eftir Petter Gottschalk, norskan pró­fessor í við­skipta­fræði, sem skrif­aði bók­ina Financial Crime Issues: Fraud Investigations and Social Control sem var gefin út af af Springer-for­lag­inu. Forlagi sem sér­hæfir sig í útgáfu fræði­bóka. Í bók­inni er kafli um Namib­íu­málið sem heitir „Fishing Rights Corruption“.

[adspot]Gottschalk greinir frá því í Stund­inni að honum hafi borist und­ir­liggj­andi hótun frá Samherja um að útgerð­ar­fyr­ir­tækið myndi leita réttar síns ef því yrði haldið fram í bók­inni að æðstu stjórn­endur Samherja á Íslandi bæru ábyrgð á mútu­greiðslum til áhrifa­manna í Namibíu í skiptum fyrir fisk­veiði­kvóta. Þá hafi Samherji látið norskan almanna­tengil frá PR-fyr­ir­tæk­inu First House hringja í hann og spyrj­ast fyrir um hvenær hann ætl­aði að gefa bók­ina út. „Þeir vildu kom­ast að því hvað ég ætl­aði að skrifa,“ segir Gottschalk við Stundina.

Samherjarannsóknin á Íslandi langt komin

Í umfangs­mik­illi umfjöllun Stund­ar­innar um hvað hafi gerst í Sam­herj­a­mál­inu á þeim 1001 degi síðan það var opin­berað er líka rætt við Ólaf Þór Hauksson hér­aðs­sak­sóknar um rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­inu, en átta manns hið minnsta hafa fengið rétt­­ar­­stöðu sak­­born­ings við yfir­­heyrslur hjá emb­ætt­inu frá því að fyrsta lota þeirra hófst í sum­arið 2020. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már, for­stjóri Sam­herja. Aðrir sem kall­aðir hafa verið inn til yfir­heyrslu og fengið stöðu sak­born­ings við hana eru Ingólfur Pét­­ur­s­­son, fyrr­ver­andi fjár­­­mála­­stjóri Sam­herja í Namibíu, Ingvar Júl­í­us­­son, fjár­­­mála­­stjóri Sam­herja á Kýp­­ur, Arna McClure, yfir­­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­­son, fram­­kvæmda­­stjóri Sam­herja í Namib­­íu, Aðal­­­steinn Helga­­son, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri Sam­herja í Namib­­íu, Jón Óttar Ólafs­­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­­sókn­­ar­lög­­reglu­­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­­­ljóstr­­ar­inn Jóhannes Stef­áns­­son.

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin í Sam­herj­­a­­mál­inu varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­­ar­laga um mút­­­ur. Í fyrr­­nefndu grein­inni segir að hver sem gef­­ur, lofar eða býður opin­berum starfs­­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­­­kall til, í þágu hans eða ann­­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­­manni, erlendum kvið­­dóm­anda, erlendum gerð­­ar­­manni, manni sem á sæti á erlendu full­­trú­a­­þingi sem hefur stjórn­­­sýslu með hönd­um, starfs­­manni alþjóða­­stofn­un­­ar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­­gjaf­­ar­­þingi í erlendu ríki, dóm­­ara sem á sæti í alþjóð­­legum dóm­stóli eða starfs­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lög­­um, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, send­ir, geym­ir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­­lýs­ingum um upp­­runa hans, eðli, stað­­setn­ingu eða ráð­­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

[adspot]Þá eru einnig til rann­­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­­ar­lög­um, sem fjalla um auð­g­un­­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Í Stund­inni er haft eftir Ólafi Þór að rann­sóknin á Íslandi sé langt komin. Líkt og Kjarninn greindi frá í júní er helsta hindrun þess að hægt sé að ljúka rann­sókn á þeim anga Sam­herj­a­máls­ins sem er til rann­sóknar hjá íslenskum rann­sókn­aremb­ættum sú að enn vantar á að fá ýmis­konar gögn frá Namibíu til Íslands. Rétt­ar­beiðni vegna þessa er enn úti­stand­andi og ekki liggur fyrir hvenær hún verður þjón­u­stuð. Fundir með bæði þar­lendum rann­sókn­ar­yf­ir­völd­um, og síðar hátt­settum stjórn­mála­mönn­um, hafa liðkað fyrir því að það gangi hraðar fyrir sig.

Grunur um skattaundanskot upp á hundruð milljóna

Til við­bótar var ráð­ist í rann­sókn á meintum stór­felldum skatta­laga­brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Rík­is­stjórnin lagði það emb­ætti niður og gerði að deild innan Skatts­ins í fyrra.

[links]Kjarn­inn greindi frá því í ágúst 2021 að til­­­­­færsla stærri skatt­rann­­­sókna hafi setið föst, og ekki kom­ist yfir til hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara frá því að lög um nið­­­ur­lagn­ingu skatt­rann­­­sókn­­­ar­­­stjóra tóku gildi. Ástæðan var sú að innan emb­ætt­anna var ótti við að rann­­­sókn mála gæti skemmst á tækn­i­­­legum for­­­sendum ef for­m­­­legar verk­lags­­­reglur lægju ekki fyr­­­ir.

Í kjöl­far umfjöll­unar Kjarn­ans um málið voru for­m­­legar verk­lags­­reglur settar og við það losn­­aði sá tappi sem mynd­­ast hafði milli emb­ætt­anna og mál sem höfðu verið á bið mán­uðum saman gátu færst í áfram­hald­andi rann­­sókn hjá hér­­aðs­sak­­sókn­­ara. Á meðal þeirra er skatta­hluti Sam­herj­­a­­máls­ins sem færð­ist yfir í sept­­em­ber 2021.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að meðal þess sem þar hafi verið til skoð­unar sé hvort raun­veru­­­legt eign­­­ar­hald á allri Sam­herj­­­a­­­sam­­­stæð­unni sé hér­­­­­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars­staðar en hér sé þar með stór­­­felld skatta­snið­­­ganga. Þar er um að ræða mög­u­­leg brot á svo­­kall­aðri CFC lög­­­gjöf sem verið hefur í gildi hér­­­lendis frá árinu 2010.

Í Stund­inni er greint frá því að skatta­yf­ir­völd á Íslandi telji að Samherji hafi komið sér undan því að greiða skatta upp á mörg hund­ruð millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár