Umfjöllun Kjarnans um Skæruliðadeild Samherja verðlaunuð fyrir rannsóknarblaðamennsku

Tveir blaða­menn Kjarnans hlutu í dag Blaða­manna­verð­launin fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins 2021 fyrir umfjöllun um Skæru­liða­deild Samherja.

Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður Kjarnans, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans.
Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður Kjarnans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans. Mynd: Bára Huld Beck

Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður Kjarnans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, hlutu Blaða­manna­verð­laun Íslands (BÍ) í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku fyrir frétta­skýr­inga­röð um óeðli­lega hags­muna­gæslu svo­kall­aðrar Skæru­liða­deildar Sam­herja. Verð­laun­in voru af­hent í fé­lags­heim­ili blaða­manna í Síðu­múla 23 í dag.

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar segir að frétta­skýr­ingar Kjarn­ans hafi sýnt „hvernig full­trúar þessa stór­fyr­ir­tækis reyndu til að mynda að hafa áhrif á for­manns­kjör í stétt­ar­fé­lagi blaða­manna og kjör á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í heima­kjör­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins. Frétta­skýr­ing­arnar gáfu greina­góða mynd af óvönd­uðum með­ölum fjár­sterks fyr­ir­tækis í hags­muna­bar­áttu þess.“

Þetta er í fjórða sinn sem blaða­menn Kjarnans hljóta verð­launin en Kjarninn, sem var stofn­aður 2013, hefur hlotið til­nefn­ingu til Blaða­manna­verð­laun­anna á hverju ári sem hann hefur starfað.

Aðalsteinn Kjartansson hlaut Blaðamannaverðlaunin 2021

Blaða­manna­verð­launin eru veitt í fjórum flokkum. Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, hlaut Blaða­manna­verð­laun árs­ins. Hann fjall­aði einnig um skæru­liða­deild Samherja en var til­nefndur fyrir „vand­aða og afhjúp­andi umfjöllun um fjölda mála, svo sem grein­ingu á eignum og eigna­tengslum íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem dráttur var á hjá ráðu­neyti mála­flokks­ins, rann­sókn lög­reglu­yf­ir­valda á Samherja, og um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja, auk aflandsleka í svo­nefndum Pand­óru­skjölum.“

[links]Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar segir einnig að skrif Aðal­steins hafa haft áhrif á sam­fé­lagið og almenna sam­fé­lags­um­ræðu.

Umfjöllun Sunnu Karenar Sig­ur­þórs­dóttur, frétta­manns á Stöð 2, um til­efn­is­lausar lífsloka­með­ferðir af hálfu læknis á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja fékk verð­laun fyrir umfjöllun árs­ins. Sunna Karen hóf umfjöllun um mál­ið, fylgdi því eftir og varp­aði ljósi á umfang þess. Málið er til rann­sóknar hjá lög­reglu, sem og hjá land­lækni og í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar var ákveðið að lækn­ir­inn skyldi ekki lengur starfa í beinum tengslum við sjúk­linga.

Ásdís Ásgeirs­dótt­ir, blaða­maður á Morg­un­blað­in­u, hlaut blaða­manna­verð­launin fyrir við­tal árs­ins við Óla Björn Pét­urs­son. Í við­tal­inu greinir hann frá grófu kyn­ferð­is­of­beldi sem hann varð fyrir á ung­lings­aldri. Í umsögn dóm­efnar segir: „Frá­sögnin er slá­andi en afar upp­lýsandi og sækir á les­and­ann sem fær raunsanna lýs­ingu á því hvernig ung­lingur er ginntur af barn­a­níð­ingi. Honum var haldið með hót­unum og ofbeldi en tekst svo að losa sig og end­ur­heimta líf sitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár