Fjármagnsskortur stendur ekki í vegi fyrir áframhaldandi rannsókn á Samherja

Útistand­andi rétt­ar­beiðni í Namibíu er stærsta hindrun þess að hægt sé að ljúka rann­sókn á Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða. Skortur á fjár­munum er ekki ástæða þess að ákvörðun um ákæru hefur ekki verið tekin, tveimur og hálfu ári eftir að rann­sókn hófst.

Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, og Þorsteinn Már Baldvinsson hittust nokkrum sinnum. Sá fyrrnefndi hefur verið ákærður í Namibíu og sá síðarnefndi er með stöðu sakbornings í rannsókn á Íslandi.
Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Þor­steinn Már Bald­vins­son hitt­ust nokkrum sinnum. Sá fyrr­nefndi hefur verið ákærður í Namibíu og sá síð­ar­nefndi er með stöðu sak­born­ings í rann­sókn á Íslandi. Mynd: Skjáskot

Það er ekki skortur á fjár­magni sem tefur rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á meintum brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Heim­ildir Kjarnans herma þvert á móti að rann­sókn máls­ins sé vel á veg komin og að nýlegir fundir með rann­sak­endum og öðrum yfir­völdum í Namibíu hafi skilað umtals­verðum árangri við að skil­greina hvað hvor aðili fyrir sig muni halda áfram að rann­saka og eftir atvikum leggja til að ákært verði fyrir. Slíkir fundir hafa staðið til lengi en hafa ítrekað frest­ast, meðal ann­ars vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þeir fóru svo fram í maí í höf­uð­stöðvum Europol í Hollandi og hér­lendis í byrjun júní þegar namibísk sendi­nefnd, sem inni­hélt meðal ann­ars aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herr­ann Netumbo Nandi-Ndaitwah, heim­sótti Ísland.

Íslenskir rann­sak­endur hafa, sam­hliða eigin rann­sóknum á mál­inu, leikið stórt hlut­verk við að aðstoða yfir­völd í Namibíu, meðal ann­ars með ýmis konar gagna­öflun og sinnt rétt­ar­beiðnum þaðan.

Helsta hindrun þess að hægt sé að ljúka rann­sókn á þeim anga Sam­herj­a­máls­ins sem er til rann­sóknar hjá íslenskum rann­sókn­aremb­ættum er sú að enn vantar á að fá ýmis­konar gögn í hina átt­ina, þ.e. frá Namibíu til Íslands. Rétt­ar­beiðni vegna þessa er enn útistand­andi og ekki liggur fyrir hvenær hún verður þjón­u­stuð. Fundir með bæði þar­lendum rann­sókn­ar­yf­ir­völdum, og síðar hátt­settum stjórn­mála­mönnum, hafa liðkað fyrir því að það gangi hraðar fyrir sig.

Hörð gagnrýni OECD sem óskar eftir svörum

Drago Kos, yfir­maður vinnu­hóps OECD gegn mút­um, sagði í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 og Vísis í síð­ustu viku að ótrú­legt væri að horfa á íslensk stjórn­völd draga lapp­irnar í tengslum við rann­sókn á mútu­greiðslum Sam­herja í Namib­íu. Stjórn­völd í Namibíu dragi vagn­inn í mál­inu og það væri nán­ast vand­ræða­legt fyrir Ísland.

[adspot]Það valdi jafn­framt áhyggjum að íslenskir rann­sókn­ar­blaða­menn hafi verið boð­aðir í yfir­heyrslur af hálfu lög­reglu með rétt­ar­stöðu grun­aðra. Vinnu­hóp­ur­inn líti á blaða­menn sem banda­menn í bar­átt­unni gegn spill­ingu og raunar ótrú­legt að eitt­hvað þessu líkt hafi átt sér stað á Íslandi, að lög­reglan hafi farið á eftir blaða­mönnum í stað þeirra grun­uðu. Eðli­legt væri að fyr­ir­tæki sem liggi undir grun reyni að beina athygl­inni ann­að, en að með ólík­indum sé að lög­reglu­yf­ir­völd spili með.

Vegna þessa, sem og vegna þess að tvö og hálft ár eru liðin frá afhjúpun Sam­herj­a­skjal­anna án þess að nokkuð hafi komið fram af hálfu íslenskra yfir­valda um fram­gang rann­sókn­ar­inn­ar, hyggst vinnu­hóp­ur­inn óska eftir svörum frá íslenskum yfir­völd­um. Kos sagði það einnig ótrú­legt að emb­ætti sak­sókn­ara í vel­meg­un­ar­landi eins og Íslandi væri van­fjár­magnað. „Stjórn­völd verða að finna fjár­magn og veita emb­ætt­inu allt sem það þarf til að klára málið eins fljótt og hægt er.“

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans voru full­trúar hér­aðs­sak­sókn­ara á fundum með starfs­fólki vinnu­hóps OECD gegn mútum fyrr á þessu ári, án þess að nokkrar athuga­semdir á borð við þær sem hér að ofan eru raktar hafi verið settar fram.

Átta manns hið minnsta hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara frá því að fyrsta lota þeirra hófst í sum­arið 2020. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Aðrir sem kall­aðir hafa verið inn til yfir­heyrslu og fengið stöðu sak­born­ings við hana eru Ingólfur Pét­urs­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Sam­herja í Namibíu,Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Aðal­steinn Helga­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Jón Óttar Ólafs­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son.

Mút­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­ganga

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin í Sam­herj­a­mál­inu varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­ar­laga um mút­ur. Í fyrr­nefndu grein­inni segir að hver sem gef­ur, lofar eða býður opin­berum starfs­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­kall til, í þágu hans eða ann­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­manni, erlendum kvið­dóm­anda, erlendum gerð­ar­manni, manni sem á sæti á erlendu full­trúa­þingi sem hefur stjórn­sýslu með hönd­um, starfs­manni alþjóða­stofn­un­ar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­gjaf­ar­þingi í erlendu ríki, dóm­ara sem á sæti í alþjóð­legum dóm­stóli eða starfs­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lög­um, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, send­ir, geym­ir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­lýs­ingum um upp­runa hans, eðli, stað­setn­ingu eða ráð­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

Þá eru einnig til rann­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­ar­lög­um, sem fjalla um auðg­un­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Stórfelld skattarannsókn

Til við­bótar var ráð­ist í rann­sókn á meintum stór­felldum skatta­laga­brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Rík­is­stjórnin lagði það emb­ætti niður og gerði að deild innan Skatts­ins í fyrra.

Kjarninn greindi frá því í ágúst 2021 að til­­­færsla stærri skatt­rann­­sókna hafi setið föst, og ekki kom­ist yfir til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara frá því að lög um nið­­ur­lagn­ingu skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra tóku gildi. Ástæðan var sú að innan emb­ætt­anna var ótti við að rann­­sókn mála gæti skemmst á tækn­i­­legum for­­sendum ef for­m­­legar verk­lags­­reglur lægju ekki fyr­­ir.

Í kjöl­far umfjöll­unar Kjarn­ans um málið voru form­legar verk­lags­reglur settar og við það losn­aði sá tappi sem mynd­ast hafði milli emb­ætt­anna og mál sem höfðu verið á bið mán­uðum saman gátu færst í áfram­hald­andi rann­sókn hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Á meðal þeirra er skatta­hluti Sam­herj­a­máls­ins sem færð­ist yfir í sept­em­ber 2021.

[links]Heim­ildir Kjarn­ans herma að meðal þess sem þar hafi verið til skoð­unar sé hvort raun­veru­­legt eign­­ar­hald á allri Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unni sé hér­­­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars­staðar en hér sé þar með stór­­felld skatta­snið­­ganga. Þar er um að ræða mögu­leg brot á svo­kall­aðri CFC lög­gjöf sem verið hefur í gildi hér­lendis frá árinu 2010.

CFC stendur fyrir Controlled For­­­eign Corporation, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­­­ríkjum í eigu, eða undir stjórn íslensks eig­anda, hvort sem sá eig­andi er félag eða ein­stak­l­ing­­­ur. Lögin kveða meðal ann­­­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­­­rík­­­i. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­­­­svæðum eiga að skila sér­­­­­­­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­­­­ar­­­­gerð þar sem meðal ann­­­­ars eru sund­­­­ur­lið­aðar tekj­­­­ur, skatta­­­­legar leið­rétt­ing­­­­ar, arðsút­­­­hlutun og útreikn­ingur á hlut­­­­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­­­­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Hagn­aður af Namib­íu­út­gerð Sam­herja var fluttur til félags á eyj­unni Mári­tíus og þaðan til lág­skatt­rík­is­ins Kýp­ur, þar sem Sam­herji átti fjöl­mörg félög en var með nán­ast enga eig­in­lega starf­semi. Þaðan fóru þeir síðan inn á banka­reikn­inga sam­stæð­unn­ar, sam­kvæmt því sem fram kom í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar og fleiri miðla sem birt var í nóv­em­ber 2019

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár