Áhyggjuefni að íslensk yfirvöld dragi lappirnar í Samherjamálinu

Yfir­maður vinnu­hóps OECD gegn mútum segir það með ólík­indum að lög­reglu­yf­ir­völd á Íslandi hafi spilað með Samherja og boðað blaða­menn í yfir­heyrslur með rétt­ar­stöðu sak­born­inga.

Kos segir yfirvöld í Namibíu draga vagninn í rannsókn á Samherjamálinu.
Kos segir yfir­völd í Namibíu draga vagn­inn í rann­sókn á Sam­herj­a­mál­inu. Mynd: Samherji

Drago Kos, yfir­maður vinnu­hóps OECD gegn mútum, segir ótrú­legt að horfa á íslensk stjórn­völd draga lapp­irnar í tengslum við rann­sókn á mútu­greiðslum Samherja í Namibíu. Stjórn­völd í Namibíu dragi vagn­inn í mál­inu og það sé nán­ast vand­ræða­legt fyrir Ísland.

[links]Í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 og Vísis sagði Kos það jafn­framt valda áhyggjum að íslenskir rann­sókn­ar­blaða­menn hafi verið boð­aðir í yfir­heyrslur af hálfu lög­reglu með rétt­ar­stöðu grun­aðra. Vinnu­hóp­ur­inn líti á blaða­menn sem banda­menn í bar­átt­unni gegn spill­ingu og raunar ótrú­legt að eitt­hvað þessu líkt hafi átt sér stað á Íslandi, að lög­reglan hafi farið á eftir blaða­mönnum í stað þeirra grun­uðu. Eðlilegt sé að fyr­ir­tæki sem liggi undir grun reyni að beina athygl­inni annað, en að með ólík­indum sé að lög­reglu­yf­ir­völd spili með.

Vegna þessa, sem og vegna þess að tvö og hálft ár eru liðin frá afhjúpun Sam­herj­a­skjal­anna án þess að nokkuð hafi komið fram af hálfu íslenskra yfir­valda um fram­gang rann­sókn­ar­innar, hyggst vinnu­hóp­ur­inn óska eftir svörum frá íslenskum yfir­völdum.

Við umfjöllun Stöðvar 2 var upp­lýs­inga óskað um rann­sókn­ina frá Hér­aðs­sak­sókn­ara, sem sagði málið vinn­ast ágæt­lega þrátt fyrir skort á fjár­magni, og sagði Kos það ótrú­legt að emb­ætti sak­sókn­ara í vel­meg­un­ar­landi eins og Íslandi væri van­fjár­magnað. „Stjórn­völd verða að finna fjár­magn og veita emb­ætt­inu allt sem það þarf til að klára málið eins fljótt og hægt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár