Blaðamenn með stöðu sakbornings fyrir að skrifa fréttir um „skæruliðadeild Samherja“

Lög­reglan á Norð­ur­landi hefur boðað að minnsta kosti þrjá blaða­menn í yfir­heyrslu fyrir meint brot á lögum um frið­helgi einka­lífs­ins.

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, og Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður mið­ils­ins, hafa fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi, sem er stað­sett á Akureyri, á meintu broti á frið­helgi einka­lífs­ins. Þeim var greint frá þessu sím­leiðis í dag og þeir boð­aðir í yfir­heyrslu hjá rann­sókn­ar­lög­reglu­manni emb­ætt­is­ins sem mun gera sér ferð til Reykja­víkur til að fram­kvæma hana.

[links] Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, er sömu­leiðis með stöðu sak­born­ings í mál­inu og hefur einnig verið boð­aður í yfir­heyrslu. Þá var greint frá því á vef RÚV í kvöld að Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, hafi einnig verið boðuð í yfir­heyrslu.

Sak­ar­efnið sem blaða­mönn­unum er gefið að sök er að hafa skrifað fréttir um „skæru­liða­deild Samherja“ upp úr sam­skipta­gögnum. Í hegn­ing­ar­lögum segir að hver sá sem „brýtur gegn frið­helgi einka­lífs ann­ars með því að hnýs­ast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heim­ild­ar­leysi skjölum, gögnum, myndefni, upp­lýs­ingum eða sam­bæri­legu efni um einka­mál­efni við­kom­andi, hvort heldur sem er á staf­rænu eða hlið­rænu formi, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári, enda sé hátt­semin til þess fallin að valda brota­þola tjóni.“

Engin þekkt dæmi eru fyrir því að lög­regla ákærði blaða­menn fyrir slík brot fyrir að skrifa fréttir upp úr gögnum. Hins vegar eru fjöldi for­dæma fyrir því hér­lendis sem erlendis að fjöl­miðlar birti trún­að­ar­gögn sem eiga erindi við almenn­ing.

Það var, og er, skýr nið­ur­staða ábyrgð­ar­manna Kjarnans að hluti þeirra gagna sem umfjöll­unin byggði á ætti sterkt erindi og því eru almanna­hags­munir af því að fjalla um þau með ábyrgum hætti.

„Skæruliðadeild“ opinberuð

Í maí 2021 birtu Kjarn­inn og Stundin röð frétta­skýr­inga sem byggðu á gögnum sem sýndu hvernig stjórn­­end­­ur, starfs­­fólk og ráð­gjafar Sam­herja höfðu lagt á ráðin um að ráð­­ast gegn nafn­­greindum blaða­­mönn­um, lista­­mönn­um, stjórn­­­mála­­mönn­um, félaga­­sam­­tökum og ýmsum öðrum til að hafa af þeim æruna, trú­verð­ug­­leik­ann eða lífs­við­­ur­vær­ið.

[adspot]Í umfjöll­un­inni kom fram að Sam­herji gerði út hóp fólks sem kall­aði sig „skæru­liða­deild Sam­herja“. Hlut­verk þess var meðal ann­ars að njósna um blaða­menn, greina tengsl þeirra, safna af þeim mynd­um, og skipu­­leggja árásir á þá. Þá var einnig opin­berað að starfs­­menn og ráð­gjafar Sam­herja reyndu að hafa áhrif á for­­manns­­kjör í stétta- og fag­­fé­lagi blaða­­manna á Íslandi, að starfs­menn Sam­herja hefðu sett sig í sam­band við fær­eyskan rit­­stjóra til að rægja fær­eyska blaða­­menn kerf­is­bund­ið, lagt á ráðin um að draga úr trú­verð­ug­­leika rit­höf­undar sem gagn­rýndi fyr­ir­tæk­ið, með því að fletta upp eignum hans.

Kjarn­inn greindi frá því að skýr vilji hefði verið til staðar innan Sam­herja til að skipta sér að því hverjir myndu leiða lista Sjálf­­stæð­is­­flokks í heima­­kjör­­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins og að starfs­­menn Sam­herja hefðu verið með áætl­­­anir um víð­tæka gagna­­söfnun um stjórn félaga­­sam­­taka sem berj­­ast gegn spill­ingu. Kjarn­inn greindi líka frá því hvernig Sam­herji hugð­ist bregð­­ast við gagn­rýni frá sitj­andi seðla­­banka­­stjóra á stríðs­­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins gegn nafn­­greindu fólki.

Þetta ferli stóð yfir frá því að umfjöllun Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Wikileaks og Al Jazeera um Sam­herja og atferli fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu birt­ist í nóv­em­ber 2019 og þangað til að frétta­skýr­inga­röð Kjarn­ans fór í loft­ið.

Athæfi Sam­herja for­dæmt víða

Við­brögðin við umfjöll­un­inni voru mik­il. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist telja fram­göngu Sam­herja alger­­lega óboð­­lega, óeðli­­lega og ætti ekki að líð­­ast í lýð­ræð­is­­sam­­fé­lagi. „Við þurfum að átta okkur á því að aðilar sem eru í for­ystu fyrir jafn stórt fyr­ir­tæki og þarna er um að ræða bera ábyrgð gagn­vart sam­­fé­lagi sínu og þetta er ekki að bera ábyrgð gagn­vart sam­­fé­lag­inu. Svona gera menn ein­fald­­lega ekki.“

Krist­ján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sagð­ist hafa áhyggjur af því ef það væri eitt­hvað óeðli­­legt í gangi, með hvaða hætti fyr­ir­tæki blanda sér í stjórn­­­mála­bar­áttu ein­stakra stjórn­­­mála­­flokka, verka­lýðs­­fé­laga og svo fram­­veg­­is. „​​Ef fyr­ir­tæki taka með ein­beittum hætti ákvörðun um að fara að beita sér með slíkum hætti er það að allra mati og flestra mati ekki ásætt­an­­leg­t.“

Þing­maður Pírata, Andrés Ingi Jóns­son, sagði aðgerðir gegn fjöl­miðla­fólki geta komið niður á kosn­ingum og að það væri stór­hættu­legt að „fjár­sterkt útgerð­ar­fyr­ir­tæki beiti sér með þessum hætti gegn gervöllu gang­verki lýð­ræð­is­ins“. Þing­flokkur hans sendi form­legt erindi til ÖSE vegna máls­ins og kall­aði eftir því að stofn­unin myndi skipu­leggja kosn­inga­eft­ir­lit á Íslandi í þing­kosn­ing­unum sem fram fóru í haust.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði að hann teldi að Sam­herji hefði „gengið óeðli­­lega fram í þessu máli með sínum afskipt­u­m.“

Alvar­leg aðför

Sig­ríður Dögg Auð­uns­dótt­ir, for­­maður Blaða­­manna­­fé­lags Íslands, sagði að hún liti á fram­ferðið sem alvar­­legri aðför að kjöri for­­manns í fag- og stétt­­ar­­fé­lagi „sem er algjör­­lega ólíð­and­i“. Þessi aðför Sam­herja veki einnig upp spurn­ingar um hvernig sam­­fé­lagið allt þurfi að bregð­­ast við árásum á blaða­­menn og fjöl­miðla í ljósi þess að fjöl­miðlar stæðu nú veik­­ari fótum en áður til þess að veita nauð­­syn­­lega mót­­spyrnu.

Alþjóða­­sam­tökin Transparency International lýstu yfir miklum áhyggjum af því sem fram hefur komið í umfjöll­unum Kjarn­ans og Stund­­ar­inn­ar. „Fyr­ir­tæki sem vilja sanna heil­indi sín nota ekki und­ir­­förular aðferðir gagn­vart þeim sem segja frá stað­­reyndum í þágu almanna­hags­muna.“

Aðal­­fundur Rit­höf­unda­­sam­­bands Íslands for­­dæmdi þá „ljótu aðför að mál- og tján­ing­­ar­frelsi sem og æru rit­höf­unda og frétta­­fólks sem opin­ber­­ast hefur síð­­­ustu daga í fréttum af Sam­herja og þeim vinn­u­brögðum sem þar eru stund­uð“.

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sögðu í yfir­lýs­ingu telja það „mik­il­vægt að fyr­ir­tækið axli ábyrgð á eigin ákvörð­unum og athöfn­um, stuðli að gagn­­sæjum starfs­háttum og góðum sam­­skipt­­um. Á þeim for­­sendum er unnið á vett­vangi SFS og sam­tökin gera sömu kröfu til sinna félags­­­manna.“

Sam­herji biðst afsök­unar

Sam­herji sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins 30. maí 2021. Þar sagði að ljóst væri að stjórn­­endur félags­­ins hafi gengið „of lang­t“ í við­brögðum við „nei­­kvæðri umfjöllun um félag­ið [...] Af þeim sökum vill Sam­herji biðj­­ast afsök­unar á þeirri fram­­göng­u.“

Nokkrum vikum síð­ar, 22. júní, voru birtar heil­­síð­u­aug­lýs­ingar frá Sam­herja með fyr­ir­­sögn­inni „Við gerðum mis­­tök og biðj­umst afsök­un­­ar“. Um var að ræða bréf sem fjallar um starf­­semi útgerð­­ar­innar í Namibíu og Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, for­­stjóri Sam­herja og einn þeirra sem er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Sam­herj­a­mál­inu, skrif­aði undir bréf­ið.

Þar sagði einnig að „ámæl­is­verðir við­­skipta­hætt­ir“ hefði fengið að við­­gang­­ast í starf­­semi útgerðar Sam­herja í Namib­­íu. Veik­­leikar hefði ver­ið í stjórn­­­skipu­lagi og lausa­­tök sem ekki áttu að líð­­ast. „Við brugð­umst ekki við eins og okkur bar. Þetta hefur valdið upp­­­námi hjá starfs­­fólki okk­­ar, fjöl­­skyld­um, vin­um, sam­­starfs­að­il­um, við­­skipta­vinum og víða í sam­­fé­lag­inu. Við hörmum þetta og biðj­umst ein­læg­­lega afsök­un­­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár