SFS telja mikilvægt að Samherji axli ábyrgð á eigin ákvörðunum og athöfnum

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi segja það ekki ætlun sína að refsa aðild­ar­fyr­ir­tækjum sem gangi gegn því sem kveðið sé á um í stefnu um sam­fé­lags­á­byrgð.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdstjóri SFS.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir er fram­kvæmd­stjóri SFS. Mynd: RÚV/Skjáskot

„Samherji hefur birt afsök­un­ar­beiðni vegna fram­ferðis stjórn­enda og starfs­manna í tengslum við umfjöllun fjöl­miðla um áður­greint mál. Við­ur­kennt var að vikið var af braut. SFS telja mik­il­vægt að fyr­ir­tækið axli ábyrgð á eigin ákvörð­unum og athöfnum, stuðli að gagn­sæjum starfs­háttum og góðum sam­skiptum. Á þeim for­sendum er unnið á vett­vangi SFS og sam­tökin gera sömu kröfu til sinna félags­manna.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein sem birt­ist í dag á vef Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) sem eng­inn er þó skrif­aður fyrir.

Ætla ekki að refsa Samherja

Í grein­inni segir að um nokk­urt skeið hafi verið fjallað um ýmsa þætti er tengj­ast starf­semi, starfs­mönnum og stjórn­endum Samherja. Í fyrri yfir­lýs­ingum SFS vegna þess­ara mála hafi afstaða sam­tak­anna verið afdrátt­ar­laus og í grein­inni segir að hún sé óbreytt. Í kjöl­farið er vísað í tvær yfir­lýs­ingar sem birt­ust á heima­síðu SFS, 14. nóv­em­ber og 19. nóv­em­ber 2019, í kjöl­far umfjöll­unar um starf­semi Samherja í Namibíu.

[adspot]Í grein­inni segir að SFS geri þá kröfu að félags­menn í sam­tök­unum fylgi lögum, bæði hér heima og erlendis, og við­hafi góða við­skipta- og stjórn­ar­hætti. Fyr­ir­tæki innan vébanda SFS hafi markað sér stefnu í sam­fé­lags­á­byrgð sem grund­vall­ist á heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þróun. „Með því að setja sér stefnu í sam­fé­lags­á­byrgð hafa fyr­ir­tæki varðað leið­ina og þau eru við upp­haf þeirrar leiðar. Rétt er að halda til haga að flest þeirra upp­fylla nú þegar marga þætti í stefn­unni. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er ekki, frekar en aðrir geirar atvinnu­lífs­ins, full­kom­inn. Þar getur mönnum orðið á. En stefnan hvetur menn til gagn­rýnnar hugs­unar, til þess að huga og gæta að breytni sinni og fram­komu í sam­fé­lag­inu og bæta úr þar sem þarf. Stefnan er ekki vöndur – heldur leið­bein­ing.“

Ein­stakar ákvarð­anir fyr­ir­tækja geti gengið gegn því sem kveðið er á um í stefnu um sam­fé­lags­á­byrgð. Það sé ekki ætl­unin að SFS refsi hlut­að­eig­andi fyr­ir­tæki.„ Í slíkum aðstæðum er stefnan einmitt mjög mik­il­væg – hún er leið­ar­ljós fyr­ir­tækja aftur inn á rétta braut.“

Sögðu stjórnendur hafa gengið „of langt“

Samherji sendi frá sér yfir­lýs­ingu um liðna helgi þar sem sagði að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“. Enginn var skrif­aður fyrir yfir­lýs­ing­unni.

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki var útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið væri að biðj­ast afsök­unar á.

[links]Í yfir­lýs­ing­unni sagði einnig að stjórn­endum og starfs­fólki Samherja hefði þótt umfjöllun og umræða um fyr­ir­tækið á und­an­förnum árum „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum.“ Þegar svo sé – og „vegið að starfs­heiðri með ósann­gjörnum hætti á opin­berum vett­vangi“ – geti reynst erfitt að bregð­ast ekki við.

Samherji vís­aði til fjöl­miðlaum­fjöll­unar um þau sam­skipta­gögn fyr­ir­tæk­is­ins sem Kjarninn og Stundin hafa undir höndum og fjallað um und­an­farna viku í fréttum og frétta­skýr­ingum. Fyr­ir­tækið segir að „þau orð“ og „sú umræða sem þar var við­höfð“ hafi verið „óheppi­leg“.

„Þarna var um að ræða per­sónu­leg sam­skipti á milli starfs­fé­laga og vina sem eng­inn gerði ráð fyrir að yrðu opin­ber,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja, en fyr­ir­tækið hafn­aði því að svara spurn­ingum Kjarnans um það sem kemur fram í gögn­unum á þeim grund­velli að gögn­unum hefði verið stolið.

Í svari sem Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður á Lex, sendi fyrir hönd Samherja síð­degis fimmtu­dag­inn 20. maí kom fram að fyrir lægi að þau gögn sem umfjöllun Kjarnans byggði á hefðu feng­ist með inn­broti í síma og tölvu Páls Stein­gríms­sonar, starfs­manns Samherja.

Páll hefði kært inn­brotið og með­ferð gagn­anna til lög­reglu og það biði lög­reglu­rann­sóknar. „Hvorki Samherji hf. né fyr­ir­svars­menn félags­ins munu fjalla um inn­tak gagna sem aflað hefur verið með refsi­verðum hætti. Með því væri verið að ljá umfjöllun vægi sem hún á ekki skilið. Fyr­ir­spurnum yðar verður því ekki svarað,“ sagði í svari lög­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár