Samherji segist hafa gengið „of langt“

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji segir í yfir­lýs­ingu að „of langt“ hafi verið gengið í við­brögðum stjórn­enda félags­ins við „nei­kvæðri umfjöllun“ um fyr­ir­tækið og biðst „afsök­unar á þeirri fram­göngu.“

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji segir, í yfir­lýs­ingu sem birst á vef fyr­ir­tæk­is­ins í dag, ljóst að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“.

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ segir í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki er útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið sé að biðj­ast afsök­unar á.

Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að stjórn­endum og starfs­fólki Samherja hafi þótt umfjöllun og umræða um fyr­ir­tækið á und­an­förnum árum „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum.“ Þegar svo sé – og „vegið að starfs­heiðri með ósann­gjörnum hætti á opin­berum vett­vangi“ – geti reynst erfitt að bregð­ast ekki við.

Umræða „skæruliðadeildarinnar“ hafi verið „óheppileg“

Samherji vísar til fjöl­miðlaum­fjöll­unar um þau sam­skipta­gögn fyr­ir­tæk­is­ins sem Kjarninn og Stundin hafa undir höndum og fjallað um und­an­farna viku í fréttum og frétta­skýr­ingum. Fyr­ir­tækið segir að „þau orð“ og „sú umræða sem þar var við­höfð“ hafi verið „óheppi­leg“.[links]

„Þarna var um að ræða per­sónu­leg sam­skipti á milli starfs­fé­laga og vina sem eng­inn gerði ráð fyrir að yrðu opin­ber,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja, en fyr­ir­tækið hafn­aði því að svara spurn­ingum Kjarnans um það sem kemur fram í gögn­unum á þeim grund­velli að gögn­unum hefði verið stolið.

Í svari sem Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður á Lex, sendi fyrir hönd Samherja síð­degis fimmtu­dag­inn 20. maí kom fram að fyrir lægi að þau gögn sem umfjöllun Kjarnans byggði á hefðu feng­ist með inn­broti í síma og tölvu Páls Stein­gríms­sonar, starfs­manns Samherja.

Páll hefði kært inn­brotið og með­ferð gagn­anna til lög­reglu og það biði lög­reglu­rann­sóknar. „Hvorki Samherji hf. né fyr­ir­svars­menn félags­ins munu fjalla um inn­tak gagna sem aflað hefur verið með refsi­verðum hætti. Með því væri verið að ljá umfjöllun vægi sem hún á ekki skilið. Fyr­ir­spurnum yðar verður því ekki svarað,“ sagði í svari lög­manns­ins.

[adspot]

Yfirlýsingin frá Samherja í heild sinni:

Und­an­farin mörg ár hefur mikið verið fjallað um ýmis mál­efni er tengj­ast starf­semi Samherja. Samherji hefur á að skipa mjög hæfu starfs­fólki á mörgum stöðum á land­inu og í heim­inum. Þetta starfs­fólk hefur verið í for­ystu við upp­bygg­ingu eins öfl­ug­asta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins og í fremstu röð í harðri sam­keppni á alþjóða­vísu. Bæði stjórn­endum og starfs­fólki hefur sviðið þessi umfjöllun og umræða um fyr­ir­tækið og störf sín enda þykir þeim umfjöll­unin hafa verið ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum.

Í slíkum aðstæðum, þegar vegið er að starfs­heiðri með ósann­gjörnum hætti á opin­berum vett­vangi, þá getur reynst erfitt að bregð­ast ekki við. Í fjöl­miðlum að und­an­förnu hefur verið fjallað um sam­skipti fólks sem skipt­ist á skoð­unum og ræddi hvernig best væri að bregð­ast við þessum aðstæðum. Þarna var um að ræða per­sónu­leg sam­skipti á milli starfs­fé­laga og vina sem eng­inn gerði ráð fyrir að yrðu opin­ber. Það breytir því þó ekki að þau orð og sú umræða sem þar var við­höfð voru óheppi­leg.

Þá hafa stjórn­endur Samherja brugð­ist harka­lega við nei­kvæðri umfjöllun um félagið og ljóst að of langt hefur verið gengið í þeim við­brögðum. Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár