„Ég lít á þetta sem alvarlega aðför að kjöri formanns í fag- og stéttarfélagi“

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands telur að aðgerðir starfs­manna og ráð­gjafa Samherja um að hafa áhrif á for­manns­kjör í félag­inu í síð­asta mán­uði hafi ekki ein­ungis beinst gegn henni heldur líka gegn mót­fram­bjóð­anda hennar.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands. Mynd: Aðsend

„Ég lít á þetta sem alvar­lega aðför að kjöri for­manns í fag- og stétt­ar­fé­lagi sem er algjör­lega ólíð­andi. Aðgerð­unum sem þarna er lýst er ætlað að koma í veg fyrir lýð­ræð­is­legt val á for­manni. Þetta eru aðgerðir sem bein­ast ekki ein­ungis gegn mér heldur einnig mót­fram­bjóð­anda mínum [Heimi Má Pét­urs­syni, frétta­manni á Stöð 2] því ég treysti mér að full­yrða að hann hafi ekki haft neina hug­mynd um þessa atlögu að mér. Né heldur hefði hann verið henni sam­þykkur enda þekki ég hann að því einu að vera stað­fastur og heið­ar­legur prinsipp­maður.“

[links]Þetta segir Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands. Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í dag að gögn sem hann hefur undir höndum, og sýna sam­skipti starfs­manna og ráð­gjafa Samherja, sýna að þeir reyndu að hafa áhrif á nið­ur­stöðu for­manns­kjörs í Blaða­manna­fé­lagi Íslands. Ástæða þess að hóp­ur­inn taldi nauð­syn­legt að grípa inn í for­manns­kjör í stéttar- og fag­fé­lagi blaða­manna á Íslandi var sú að hann taldi að um yfir­töku RÚV á félag­inu væri að ræða og að það yrði í kjöl­farið notað gegn Samherja.
„Það er grafal­var­legt og algjör­lega ólíð­andi að sam­fé­lags­lega mik­il­vægt fyr­ir­tæki á borð við Samherja geri til­raun til þess að hafa áhrif á nið­ur­stöðu í for­manns­kjöri Blaða­manna­fé­lags Íslands. Ég tel engar líkur á því að þessi til­raun þeirra til að hafa áhrif á for­manns­kjörið hafi skilað árangri því blaða­menn, sama á hvaða miðli þeir starfa, eru upp til hópa prinsipp­fastir og heið­ar­legir. Á íslenskum fjöl­miðlum starfar mikið hug­sjóna­fólk sem hefur metnað fyrir starf­inu sínu og fag­inu og myndi aldrei láta undan þrýst­ingi sem þessum. Það breytir því þó ekki að til­raunin sjálf er í eðli sínu mjög alvar­leg og vekur upp spurn­ingar um hvernig stéttin og sam­fé­lagið allt geti brugð­ist við í ljósi þess hvaða aðferðum hags­muna­öfl eru farin að beita til þess að stýra umræð­unni í land­inu.“

Vekur upp spurningar um hvernig samfélagið allt þurfi að bregðast við

Sigríður segir að þessi aðför Samherja veki einnig upp spurn­ingar um hvernig sam­fé­lagið allt þurfi að bregð­ast við árásum á blaða­menn og fjöl­miðla í ljósi þess að fjöl­miðlar standa nú veik­ari fótum en áður til þess að veita nauð­syn­lega mót­spyrnu. „Það er ekki einka­mál fjöl­miðl­anna sjálfra hve rekstr­ar­grund­völl­ur­inn hefur veikst, heldur varðar það sam­fé­lagið allt því grund­völlur lýð­ræð­is­ins eru frjálsir, óháðir fjöl­miðlar sem geta veitt stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum nauð­syn­legt aðhald. Ísland hefur færst neðar á lista Blaða­manna án landamæra (RSF) um fjöl­miðla­frelsi og er staðan hér metin tölu­vert lak­ari en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Sú þróun er sann­ar­lega ekki í þágu sam­fé­lags­ins en mögu­lega hags­muna­afl­anna sem hafa hag af því að um þau sé ekki fjallað með gagn­rýnum hætti.“

Varðandi þær ávirð­ingar sem fram koma í máli hóps­ins um ákvörðun Sigríðar um að bjóða sig fram til for­mennsku í Blaða­manna­fé­lagi Íslands og kosn­inga­bar­átt­una vil Sigríður taka það fram að engar hóp­skrán­ingar áttu sér stað í félagið í aðdrag­anda kosn­ing­anna, hvorki fyrir hvatn­ingu hennar né mót­fram­bjóð­anda hennar, Heimis Más. „Það getur fram­kvæmda­stjóri og stjórn vottað. Kosn­inga­bar­átta okkar beggja var lág­stemmd, heið­ar­leg og mál­efna­leg og ég lít á mig sem for­mann allra félaga í Blaða­manna­fé­lagi Íslands, sama á hvaða miðli þeir starfa, enda höfum við öll sömu hags­muna að gæta, að vernda stétt­ina og tryggja að hér starfi sjálf­stæðir, frjálsir fjöl­miðlar í þágu lýð­ræð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár