Katrín: Svona gera menn einfaldlega ekki

For­sæt­is­ráð­herra segir að aðilar sem eru í for­ystu fyrir jafn stórt fyr­ir­tæki og Samherja beri ábyrgð gagn­vart sam­fé­lagi sínu – en fram­ganga þeirra sýni það ekki. Hún sé óboð­leg, óeðli­leg og eigi ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur að fram­ganga Samherja sé alger­lega óboð­leg, óeðli­leg og eigi ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði hana meðal ann­ars hvort hún teldi að lýð­ræð­inu staf­aði ógn af vinnu­brögðum Samherja.

Logi hóf mál sitt á því að vekja athygli á frétta­flutn­ingi Kjarnans og Stund­ar­innar um svo­kall­aða „skæru­liða­deild“ Samherja sem væri „til í að beita alls kyns með­ulum til að koma höggi á fólk sem þau telja and­stæð­inga sína“.

„Hópurinn ræðir meðal ann­ars sín á milli að beita sér í kosn­ingum í stétt­ar­fé­lagi, veltir því sama fyrir sér varð­andi próf­kjör ein­stakra stjórn­mála­flokka, kort­leggur ummæli blaða­manna, lista­manna, emb­ættis- og stjórn­mála­manna og beitir sér gegn þeim. Ég geri ráð fyrir því að for­sæt­is­ráð­herra hafi fylgst með þessu og fyllst óhug eins og margir lands­menn. Við skulum hafa það á hreinu að hér er ekki um að ræða ein­angrað til­vik endi­lega heldur fyr­ir­bæri sem er nýtt og aðferð sem er nýtt víðar í grófri sér­hags­muna­gæslu,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Telur hann að bregð­ast verði við þróun sem skekkir atvinnu­lífið, bjagar umræð­una, veikir stjórn­málin og grefur undan lýð­ræð­inu. „Við þurfum að bregð­ast við áður en það verður of seint. Það verður hins vegar ekki gert með því að veikja Sam­keppn­is­eft­ir­litið, leggja niður skatt­rann­sókn­ar­stjóra eða draga kerf­is­bundið tenn­urnar úr eft­ir­lits­stofn­unum. Það verður gert með því að styrkja þær. Það verður gert með vand­aðri laga­setn­ingu og það verður gert með nýrri stjórn­ar­skrá sem tryggir rétt fjöld­ans.“

Spurði hann Katrínu hvort hún teldi að lýð­ræð­inu staf­aði ógn af vinnu­brögðum af þessu tagi. „Telur hún að þau geti veikt eft­ir­lits­stofn­anir og fjöl­miðla og leitt til þess að sér­hags­munir verði settir ofar almanna­hags­munum? Og síð­ast en ekki síst: Er hún til­búin að styðja breyt­ingar á auð­linda­á­kvæði sínu í ljósi þess­ara frétta þannig að tíma­bind­ing allrar nýt­ing­ar­samn­inga verði áskilin?“

Finnst eðlilegt að þingið taki umræðu um auðlindaákvæði „á réttum vettvangi sem er í nefndinni“

Katrín svar­aði og þakk­aði Loga fyrir að vekja máls á þess­ari fram­göngu Samherja. „Ég held að við hátt­virtur þing­maður séum algjör­lega sam­mála um að þessi fram­ganga er auð­vitað alger­lega óboð­leg, óeðli­leg og á ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Þannig er það. Við þurfum að átta okkur á því að aðilar sem eru í for­ystu fyrir jafn stórt fyr­ir­tæki og þarna er um að ræða bera ábyrgð gagn­vart sam­fé­lagi sínu og þetta er ekki að bera ábyrgð gagn­vart sam­fé­lag­inu. Svona gera menn ein­fald­lega ekki.“

[links]Spurði hún í fram­hald­inu hvað væri hægt að gera og hvað hefði verið gert. „Ég held að þegar við lesum um atburða­rás eins og þá sem við höfum verið að lesa hvað varðar til­raunir til að hafa áhrif á kjör í Blaða­manna­fé­lagi Íslands þá sé full ástæða til þess að skoða stöðu þeirrar stéttar í fjöl­miðla­lögum. Ég minni á það að þegar fjöl­miðla­lögin voru sam­þykkt á sínum tíma, 2011, var gert ráð fyrir heild­ar­end­ur­skoðun þeirra innan til­tek­ins tíma og þar voru gerðar ákveðnar breyt­ingar hvað varðar rétt­ar­stöðu blaða­manna. En hlut­irnir breyt­ast hratt.

Annað atriði sem ég hef nefnt eru skoð­ana­aug­lýs­ingar, sem eru þá ekki aug­lýs­ingar stjórn­mála­flokka því að um flokk­ana gilda aðrar reglur heldur aug­lýs­ingar þar sem marg­hátt­aðir hags­muna­að­ilar nýta þann miðil til að koma við­horfum á fram­færi. Það er því mjög margt sem ber að skoða en ég held að við megum heldur ekki gleyma því hvað við höfum verið að gera því að við höfum verið að stíga mjög mik­il­væg skref; lög um vernd upp­ljóstr­ara, lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum, ný upp­lýs­inga­lög. Allar miða þessar breyt­ingar að því að efla gagn­sæi og gagn­sæi er und­ir­staða þess að við séum með öfl­ugt lýð­ræð­is­sam­fé­lag,“ sagði hún.

Hvað varðar auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá þá sagði Katrín að það mál væri núna til með­ferðar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. „Ég hef litið svo á að orða­lag þessa ákvæðis sé skýrt, þ.e. að heim­ild­irnar verði ekki afhentar með var­an­legum hætti sem merkir þá að þær eru tíma­bundnar eða upp­segj­an­legar. En mér finnst bara eðli­legt að þingið núna taki þá umræðu á réttum vett­vangi sem er í nefnd­inni.“

Spurði hvort ráðherra hefði meiri áhyggjur af ægivaldi evrópskra knattspyrnuliða en ofurrisa í sjávarútvegi

Logi steig aftur í pontu og sagð­ist hafa kosið að ráð­herra svar­aði skýrar, hvort hún væri til­búin til að fall­ast á tíma­bundnar heim­ildir skil­yrð­is­laust.

„Fyrr í vetur voru hug­myndir evr­ópskra stór­liða í knatt­spyrnu um 15 liða ofur­keppni þar sem liðin þurftu ekki að ótt­ast að falla úr keppni en nutu alls pen­inga­á­vinn­ings­ins. Einn af þeim sem steig fram og gagn­rýndi svona fyr­ir­komu­lag var einmitt hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra, en sami for­sæt­is­ráð­herra vill núna festa í sessi ein­hvers konar ofur­deild nokk­urra sjáv­ar­út­vegs­risa með því að leggja fram auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá sem gerir ekki ráð fyrir tíma­bundnum nýt­ing­ar­samn­ingum. Hefur ráð­herra meiri áhyggjur af ægi­valdi nokk­urra evr­ópskra knatt­spyrnu­liða en þess­ara ofurrisa í sjáv­ar­út­vegi? Eða vill hún styðja breyt­ingar sem miða að því að áskilja tíma bind­ingar í stjórn­ar­skrá?“ spurði þing­mað­ur­inn.

Mikilvægt að ræða þetta með málefnalegum hætti

Katrín kom í pontu í annað sinn og sagði að henni fynd­ist þing­mað­ur­inn falla í sömu gryfju og sá aðili „sem nú rekur miklar skoð­ana­aug­lýs­ingar gegn þessu frum­varpi og heldur þar því fram að ég vilji afhenda stór­út­gerð­inni nýt­ing­ar­heim­ildir var­an­lega“.

Hún sagði að Logi vissi vel að það væri ekki það sem stæði í því ákvæði sem væri til umfjöll­unar, heldur væri einmitt verið að und­ir­strika að þessar heim­ildir yrðu ekki afhentar með var­an­legum hætti.

„Það þýðir að þær eru ann­að­hvort tíma­bundnar eða upp­segj­an­legar. Á það sama að gilda um allar nýt­ing­ar­heim­ildir óháð gerð auð­lindar? Það er kannski stóra spurn­ingin sem við stöndum frammi fyrir þegar um er að ræða til að mynda land­gæði sem yfir­leitt eru afhent til einnar aldar í senn en þó ekki var­an­lega. Þetta er það sem við höfum auð­vitað rætt mikið.“

Fram kom í máli Katrínar að henni fynd­ist mik­il­vægt að hægt væri að ræða þetta með mál­efna­legum hætti og ekki leggj­ast í það að halda því fram að hún væri að ganga erinda stór­fyr­ir­tækis í sjáv­ar­út­vegi. „Því að það er ekki sann­gjarnt og ekki rétt og ekki satt, þó að ein­hverjir aðilar kjósi að birta slíkt í skoð­ana­aug­lýs­ingum. Ég minni á að Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi leggj­ast auð­vitað alfarið gegn frum­varp­inu og vænt­an­lega er ein­hver ástæða fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár