Rithöfundasambandið fordæmir ljóta aðför að æru rithöfunda og fréttafólks

„Það er með öllu ólíð­andi að stund­aðar séu ofsóknir, njósnir og skæru­hern­aður gegn frétta­mönnum, rit­höf­undum og öðrum sem taka þátt í opin­berri umræðu í sam­fé­lag­inu,“ segir í ályktun RSÍ.

Aðal­fundur Rit­höf­unda­sam­bands Íslands (RSÍ) for­dæmir þá „ljótu aðför að mál- og tján­ing­ar­frelsi sem og æru rit­höf­unda og frétta­fólks sem opin­ber­ast hefur síð­ustu daga í fréttum af Samherja og þeim vinnu­brögðum sem þar eru stunduð“.

Þetta kemur fram í ályktun sam­bands­ins sem finna má á vef­síðu þess en aðal­fund­ur­inn var hald­inn í gær.

Kjarninn greindi meðal ann­ars frá því um síð­ustu helgi að lög­mað­ur­inn og almanna­tengsla­ráð­gjaf­inn Þorbjörn Þórð­ar­son hefði flett upp eignum rit­höf­und­ar­ins Hall­gríms Helga­sonar í bæði fast­eigna­skrá og öku­tækja­skrá til þess að kom­ast að því hvort rétt væri að hann ætti Tesla-bif­reið, sem reyndar er í eigu nágranna hans. Hug­myndin hefði verið að nota Teslu-eign­ina gegn honum á opin­berum vett­vangi. Hall­grímur sagði í sam­tali við Kjarnann að honum hefði brugðið er hann komst að því að njósnað hefði verið um sig með þessum hætti.

[links]Í ályktun RSÍ segir að það sé með öllu ólíð­andi að stund­aðar séu ofsóknir, njósnir og skæru­hern­aður gegn frétta­mönnum, rit­höf­undum og öðrum sem taka þátt í opin­berri umræðu í sam­fé­lag­inu.

„Eitt af hlut­verkum Rit­höf­unda­sam­bands Íslands er að standa vörð um tján­ing­ar­frelsið og verja frelsi og heiður rit­list­ar­innar. Félags­menn líta það því alvar­legum augum þegar stór­fyr­ir­tæki og stjórn­endur þess, sem hafa hagn­ast gríð­ar­lega á því að nýta sam­eig­in­legar auð­lindir þjóð­ar­innar, nota fé og mannauð til að ráð­ast gegn og gera til­raunir til að grafa undan skrif­andi stéttum, svo sem rit­höf­undum og fjöl­miðla­fólki, og þar með lýð­ræð­inu sem grund­vall­ast á frjálsri og óheftri umræðu,“ segir í álykt­un­inni.

Þá for­dæmir aðal­fundur RSÍ einnig til­raunir Samherja til að hafa áhrif á for­ystu í Blaða­manna­fé­lagi Íslands og stjórn­mála­hreyf­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár