Þorbjörg Sigríður: „Skoðanir og árásir eru óskyldir hlutir“

Umræða um aðgerðir Samherja snýst ekki um skoð­ana­frelsi heldur hvernig „hags­muna­hópar beita völdum sínum til að reyna að hafa óeðli­leg áhrif,“ að mati þing­manns Við­reisnar. Fjár­mála­ráð­herra segir Samherja hafa ​gengið óeðli­lega fram með sínum afskiptum.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Bjarni Benediktsson ræddu skæruliðadeild Samherja á þingi í dag.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son ræddu skæru­liða­deild Samherja á þingi í dag. Mynd: Kjarninn/Samsett

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, sagði aðgerðir Samherja sem fjallað hefur verið um í vik­unni ekki snú­ast um skoð­ana­frelsi heldur það hvernig hags­muna­hópar beiti völdum sínum til þess að hafa óeðli­leg áhrif í sam­fé­lag­inu. Þetta kom fram í fyr­ir­spurn Þor­bjargar til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í þing­inu í dag. Þorbjörg vakti máls á aðgerðum skæru­liða­deildar Samherja vegna við­tals við Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kast­ljósi í gær.

„Í gær sat þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kast­ljósi þar sem hann sagði, eða mátti á honum skilja, að það væri ekk­ert við vinnu­brögð Samherja að athuga. Hann tal­aði um aðgerðir skæru­liða­deild­ar­innar sem skoð­anir en þetta mál snýst auð­vitað ekki um skoð­ana­frelsi heldur það hvernig hags­muna­hópar beita völdum sínum til að reyna að hafa óeðli­leg áhrif í sam­fé­lag­inu bak við tjöldin. Að svipta þessar aðgerðir og starfs­hætti öllu sam­hengi er hættu­legt,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

Hún sagði að þegar um árásir eða ofsóknir væri að ræða væru ekki tvær hliðar á málum. „Hér eru ger­endur og hér eru þolendur. skot­skífan eru fjöl­miðlar í land­inu en um leið allur almenn­ingur. skoð­anir og árásir eru óskyldir hlutir og þetta dregur upp dökka mynd,“ sagði Þorbjörg Sigríður og spurði fjár­mála­ráð­herra í kjöl­farið hvort hann sæi sam­hengi hlut­anna í aðgerðum Samherja og „hvort hann sjái ekki hvers eðlis þessar aðgerðir Samherja eru.“

Ætlar ekki að „gera upp fréttir gærkvöldsins“

Bjarni sagði það vera alvar­legt ef að fyr­ir­tæki teldu sig vera í þeirri stöðu að geta hlut­ast til um for­manns­kjör í Blaða­manna­fé­lag­inu eða á öðrum slíkum vett­vangi, hvort sem væri í stjórn­málum eða ann­ars staðar. „Við förum þá leið í Sjálf­stæð­is­flokknum að halda próf­kjör. Við hleypum öllum flokks­mönnum að það kemur í veg fyrir að menn geti beitt óeðli­legum þrýst­ingi nema að menn hafi enga stjórn á því hvaða fjár­munir eru settir í ein­stök fram­boðs­mál,“ sagði Bjarni.

Bjarni sagði að það væri ekki í hans verka­hring að upp­lýsa þing­menn um það hvað honum fynd­ist um skoð­anir ann­arra þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Það eru nóg tæki­færi fyrir hátt­virtan þing­mann til að ræða við þá undir störfum þings­ins eða ann­ars staðar, ég veit ekki hvar sú umræða á best heima. En en ég horfði ekki á Kast­ljóss­þátt­inn og er ekki mættur hingað í dag til þess að gera upp fréttir gær­kvölds­ins eða ein­hverja við­tals­þætti í Rík­is­út­varp­inu,“ sagði Bjarni.

„Ég er mættur hér sem fjár­mála­ráð­herra og hef tjáð mig um það mjög skýrt að ég tel að Samherji hafi gengið óeðli­lega fram í þessu máli með sínum afskiptum.“

Skæruliðadeildin reyndi að hafa áhrif á prófkjör

[links] Líkt og Kjarninn hefur fjallað um ræddu með­limir hinnar svoköll­uðu skæru­liða­deildar Samherja um próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þau Arna Bryndís McClure og Páll Stein­gríms­son voru sam­mála um að þau vildu ekki að Njáll Trausti Frið­berts­son yrði odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu. Páll greindi Örnu meðal ann­ars frá því að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, vildi ekki sjá Njál í odd­vita­sæti list­ans.

Arna segir Páli að „eng­inn“ vilji fá Njál í fyrsta sætið og Páll lofar að ræða málið við nokkra áhrifa­menn innan flokks­ins. Arna og Páll ræða svo meðal ann­ars saman um það að reyna að „koma saman not­hæfum lista fyrir kjör­dæmið.“ Af þeim fram­bjóð­endum sem tví­menn­ing­arnir raða á sinn lista end­aði ein­ungis einn ein­stak­lingur í fram­boði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Svo því virð­ist sem lítið hafi gengið hjá Örnu og Páli við að hafa áhrif á fram­boðs­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár