Transparency á alþjóðavísu tekur undir ákall vegna „skæruliðadeildarinnar“

Alþjóða­sam­tökin Transparency International segja það fram­ferði hóps starfs­manna og ráð­gjafa Samherja sem hefur opin­ber­ast í umfjöll­unum Kjarnans og Stund­ar­innar „óskilj­an­legt“. Aðferð­irnar séu ekki þær sem fyr­ir­tæki sem vilji sanna heil­indi sín beiti.

„Fyrirtæki sem vilja sanna heilindi sín nota ekki undirförular aðferðir gagnvart þeim sem segja frá staðreyndum í þágu almannahagsmuna,“ er haft eftir Daniel Eriksson, framkvæmdastjóra skrifstofu samtakanna í Berlín, í yfirlýsingunni.
„Fyr­ir­tæki sem vilja sanna heil­indi sín nota ekki und­ir­förular aðferðir gagn­vart þeim sem segja frá stað­reyndum í þágu almanna­hags­muna,“ er haft eftir Daniel Eriksson, fram­kvæmda­stjóra skrif­stofu sam­tak­anna í Berlín, í yfir­lýs­ing­unni. Mynd: Af vef Samherja

Alþjóða­sam­tökin Transparency International lýsa yfir miklum áhyggjum af því sem fram hefur komið í umfjöll­unum Kjarnans og Stund­ar­innar und­an­farna daga um starfs­hætti starfs­manna, ráð­gjafa og lög­manna Samherja.

Í yfir­lýs­ingu á vef sam­tak­anna er meðal ann­ars fjallað um það sem fram kom í Kjarn­anum um helg­ina, að starfs­menn Samherja hafi rætt um að safna upp­lýs­ingum um stjórn­ar­menn í Íslands­deild Transparency International til þess að draga úr trú­verð­ug­leika þeirra.

„Fyr­ir­tæki sem vilja sanna heil­indi sín nota ekki und­ir­förular aðferðir gagn­vart þeim sem segja frá stað­reyndum í þágu almanna­hags­muna,“ er haft eftir Daniel Eriksson, fram­kvæmda­stjóra skrif­stofu sam­tak­anna í Berlín, í yfir­lýs­ing­unni.

„Það er óskilj­an­legt að Samherji hafi safnað per­sónu­upp­lýs­ingum til þess að saurga orð­spor Transparency International á Íslandi og ann­arra sjálf­stæðra radda. Ísland þarf þrótt­mikið og varið borg­ara­legt sam­fé­lag til þess að veita valdi aðhald, sama hvar valdið liggur,“ er einnig haft eftir Eriksson.

Alþjóða­sam­tökin Transparency segj­ast standa með Íslands­deild sinni og íslenskum almenn­ingi, en á mánu­dag kall­aði Íslands­deildin eftir „breið­fylk­ingu almenn­ings, félaga­sam­taka, stétt­ar­fé­laga, sam­taka upp­ljóstr­ara, fræða­sam­fé­lags, stjórn­mál­anna og allra þeirra sem vett­lingi geta valdið gegn til­raunum fyr­ir­tæk­is­ins og „skæru­liða“ til að grafa undan sam­fé­lags­sátt­mál­anum og gildum þeim er hann byggir á.“

Transparency International segir í yfir­lýs­ingu sinni í dag að ásak­anir á hendur Samherja þurfi að rann­saka af hálfu yfir­valda — og ef í ljós komi að ásak­anir á hendur fyr­ir­tæk­inu verði stað­festar þurfi að draga fyr­ir­tækið og full­trúa þess til ábyrgðar.[links]

Í umfjöllun Kjarnans á sunnu­dag kom meðal ann­ars fram að Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri hjá Samherja, hefði spurt félaga sína í sam­skipta­miðla­hópnum „PR Namibia“, Þorbjörn Þórð­ar­son, ráð­gjafa Samherja í almanna­tengslum, og Örnu Bryndísi McClure, yfir­lög­fræð­ing Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, að því hverjir væru í for­svari fyrir Íslands­deild sam­tak­anna Transparency International.

Honum var bent á að spyrja: „þmb [Þorstein Má Bald­vins­son] út í þetta fólk. Hann veit allt um ansi mörg þeirra[...]og Jónas út í guðr­unu [Johnsen, for­mann stjórnar Transparency International á Íslandi]. Hann þekkir eitt­hvað út í hennar for­sögu“.

[adspot]

Umræddur Jónas er Sig­ur­geirs­son og rekur Almenna bóka­fé­lagið sem gaf meðal ann­ars út bók­ina Gjald­eyr­is­eft­ir­litið – vald án eft­ir­lits?, þar sem fjallað var með afar nei­kvæðum hætti um rann­sókn Seðla­banka Íslands á Samherja sem hófst árið 2012.

Samherji keypti stórt upp­lag af bók­inni og gaf starfs­fólki sínu í jóla­gjöf. Jónas var upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings fyrir banka­hrun og er giftur Rósu Guð­bjarts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Hafn­ar­firði og odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar. Guðrún Johnsen, sem er doktor í hag­fræði, vann meðal ann­ars að gerð skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, skrif­aði bók um íslenska banka­hrunið, sat í stjórn Arion banka í átta ár, hefur starfað sem efna­hags­ráð­gjafi VR og starfað í aka­demíu í rúm 20 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár