Vilja breiðfylkingu gegn tilraunum Samherja til að grafa undan samfélagssáttmálanum

Íslands­deild Transparency International segir að fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar sem sanna vilja sak­leysi sitt stundi ekki ofsóknir gagn­vart þeim sem rann­saka og upp­lýsa um meintar mis­gjörðir. Það geri Samherji hins vegar.

Atli Þór Fanndal er framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International.
Atli Þór Fanndal er fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Transparency International. Mynd: Aðsend

Íslands­deild Transparency International, sam­taka sem berj­ast gegn spill­ingu, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kallað er eftir því að að spornað verði við fram­gangi Samherja, undir fram­kvæmda­stjórn Þor­steins Más Bald­vins­sonar, sem opin­ber­ast hafi almenn­ingi enn frekar í umfjöllun Kjarnans og Stund­ar­innar um hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild“ Samherja á und­an­förnum dögum.

Samtökin, sem eru á meðal þeirra sem „skæru­liða­deildin“ safn­aði upp­lýs­ingum um og vildi beita sér gegn, kalla eftir „breið­fylk­ingu almenn­ings, félaga­sam­taka, stétt­ar­fé­laga, sam­taka upp­ljóstr­ara, fræða­sam­fé­lags, stjórn­mál­anna og allra þeirra sem vett­lingi geta valdið gegn til­raunum fyr­ir­tæk­is­ins og „skæru­liða“ til að grafa undan sam­fé­lags­sátt­mál­anum og gildum þeim er hann byggir á. Það er okkar allra að standa vörð um lýð­ræðið, sam­fé­lagið og tján­ing­ar­frelsið, hvert á sínu sér­sviði.“

Í yfir­lýs­ing­unni segir að Samherji hafi á engum tíma­punkti sýnt vilja til umbóta eftir að Namib­íu­mál fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem grunur er um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti, kom upp heldur þvert á móti varið fé og vinnu­stundum í að grafa undan eft­ir­lits­stofn­unum, blaða­mönnum og þar með sam­fé­lag­inu öllu. Skýrsla norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, sem Samherji lét vinna um málið og lof­aði að birta, hefur enn ekki verið birt opin­ber­lega rúmu ári eftir að hún var til­búin og reglum um stjórn­ar­hætti og reglu­vörslu sem fyr­ir­tækið til­kynnti um mitt ár 2020 hefur ekki verið fylgt eftir.

Segja að Björgólfur verði að víkja

Íslands­deildin segir að fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar sem sanna vilja sak­leysi sitt stundi ekki ofsóknir gagn­vart þeim sem rann­saka og upp­lýsa um meintar mis­gjörðir. „Fyr­ir­tæki sem hafa ekk­ert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu sam­fé­lagi og almanna­heill. Fyr­ir­tæki sem eru með­vituð um almanna­hag þurfa ekki „skæru­liða­deild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið““.

[adspot]Stjórn­mála­menn og sér­stak­lega stjórn­ar­liðar geti ekki lengur komið sér undan því að takast á við hið póli­tíska og kerf­is­læga umhverfi sem umber svona fram­göngu árum saman. Annað hvort eru þeir með almenn­ingi í bar­átt­unni gegn spill­ingu eða á móti með þögn, með­virkni, aðgerð­ar­leysi og seina­gangi við að koma upp nútíma­legum spill­ing­ar­vörnum milli stjórn­sýslu og við­skipta­lífs. „Stjórn­málin geta ekki lengur litið undan.“

Í febr­úar síð­ast­liðnum var greint frá því að Björgólfur Jóhanns­son væri hættur sem annar for­stjóri Samherja, en hann tók við því starfi í kjöl­far þess að Namib­íu­málið var opin­berað. Samhliða var Björgólfur kjör­inn for­maður hlít­ing­ar­nefndar Samherja en sú nefnd hefur yfir­um­sjón með reglu­vörslu og stjórn­ar­háttum innan sam­stæðu Samherja. Björgólfur átti að stjórna skrán­ingu og form­legri inn­leið­ingu slíkra reglna ásamt öðrum ráð­gjafa­störfum fyrir Samherja eftir því sem til­efni verður til.

Íslands­deild Transparency International segir að Björgólfur sé ekki fær um for­mennsku í þeirri nefnd, en fyrir liggur að hann var í beinum sam­skiptum við hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild“ og hafði vit­neskju um að minnsta kosti hluta þess sem hún gerði. Í yfir­lýs­ingu deild­ar­innar segir að ef hlít­ing­ar­nefndin eigi að hafa hlut­verk umfram það að vera neð­an­máls­lína í frétta­til­kynn­ingu liggur í augum uppi að nefndin verði kölluð saman til að und­ir­búa opin­bera birt­ingu á umfangi og eðli aðgerða fyr­ir­tæk­is­ins und­an­farin ár í bar­átt­unni gegn upp­ljóstr­unum og rann­sóknum á starf­semi Samherja er varða þau mál sem fjallað hefur verið um. „Augljóst er eftir upp­ljóstr­anir und­an­far­inna daga að Björgólfur er ekki fær um for­mennsku nefnd­ar­innar eigi störf hennar á annað borð að vera trú­verðug.“

Íslands­deildin kallar einnig eftir því að öll stétt­ar­fé­lög í land­inu for­dæmi til­raunir Samherja til að hafa áhrif á for­manns­kjör í Blaða­manna­fé­lagi Íslands, sem Kjarninn opin­ber­aði á laug­ar­dag.

Vildu safna upplýsingum um stjórn deildarinnar

Í umfjöllun Kjarnans sem birt­ist í gær var greint frá því að Íslands­deild Transparency International hafi sent frá sér til­kynn­ingu í síð­asta mán­uði vegna fram­gangs Samherja í tengslum við frétta­flutn­ing og eft­ir­lits með starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þar stóð meðal ann­ars: „Fyr­ir­tækið hefur fjár­magnað áróð­urs­þætti til birt­inga, fjár­magnað bóka­skrif í áróð­ur­stil­gangi og haldið úti for­dæma­lausu túlk­un­ar­stríði á sög­unni. Jafnvel á nefnd­ar­fundum Alþingis hafa full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins sýnt af sér hegðun sem engum er sæm­andi. Í Namib­íu­mál­inu hefur fyr­ir­tækið brugð­ist við með sams­konar hætti og raunar gefið í. Full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins hafa ógnað og njósnað um ein­stak­linga sem fjallað hafa um málið, kostað áróð­urs­mynd­bönd til almenn­ings þar sem hreinum og klárum ósann­indum er haldið fram og ítrekað hafa verið leið­rétt. Fram­ganga fyr­ir­tæk­is­ins getur ekki talist innan eðli­legra marka.“

[links]Í umfjöllun Kjarnans kom fram að Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri hjá Samherja, hefði spurt félaga sína í sam­skipta­miðla­hópnum „PR Namibia“, Þorbjörn Þórð­ar­son, ráð­gjafa Samherja í almanna­tengslum, og Örnu Bryndísi McClure, yfir­lög­fræð­ing Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, í kjöl­far þess að til­kynn­ingin birt­ist hverjir væru í for­svari fyrir Íslands­deild sam­tak­anna Transparency International. Honum var bent á að spyrja: „þmb [Þorstein Má Bald­vins­son] út í þetta fólk. Hann veit allt um ansi mörg þeirra[...]og Jónas út í guðr­unu [Johnsen, for­mann stjórnar Transparency International á Íslandi]. Hann þekkir eitt­hvað út í hennar for­sögu“. Umræddur Jónas er Sig­ur­geirs­son og rekur Almenna bóka­fé­lagið sem gaf meðal ann­ars út bók­ina Gjald­eyr­is­eft­ir­litið – vald án eft­ir­lits?, þar sem fjallað var með afar nei­kvæðum hætti um rann­sókn Seðla­banka Íslands á Samherja sem hófst árið 2012. Samherji keypti stórt upp­lag af bók­inni og gaf starfs­fólki sínu í jóla­gjöf. Jónas var upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings fyrir banka­hrun og er giftur Rósu Guð­bjarts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Hafn­ar­firði og odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar. Guðrún Johnsen, sem er doktor í hag­fræði, vann meðal ann­ars að gerð skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, skrif­aði bók um íslenska banka­hrunið, sat í stjórn Arion banka í átta ár, hefur starfað sem efna­hags­ráð­gjafi VR og starfað í aka­demíu í rúm 20 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár