Samherji biðst afsökunar á starfseminni í Namibíu: „Við gerðum mistök“

For­stjóri Samherja skrifar undir afsök­un­ar­beiðni sem birt­ist í á heil­síðu í tveimur dag­blöðum í dag. Þar segir að „ámæl­is­verðir við­skipta­hættir“ hafi fengið að við­gang­ast í starf­semi útgerðar Samherja í Namibíu.

Afsökunarbeiðnin sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun. Undir hana skrifar Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Afsök­un­ar­beiðnin sem birt­ist í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í morgun. Undir hana skrifar Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Samsett

Í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í dag eru birtar heil­síðu­aug­lýs­ingar frá Samherja með fyr­ir­sögn­inni „Við gerðum mis­tök og biðj­umst afsök­unar“. Um er að ræða bréf sem fjallar um starf­semi útgerð­ar­innar í Namibíu og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, skrifar undir bréfið.

Þar segir að „ámæl­is­verðir við­skipta­hættir“ hafi fengið að við­gang­ast í starf­semi útgerðar Samherja í Namibíu. Veik­leikar hafi verið í stjórn­skipu­lagi og lausa­tök sem ekki áttu að líð­ast. „Við brugð­umst ekki við eins og okkur bar. Þetta hefur valdið upp­námi hjá starfs­fólki okkar, fjöl­skyldum, vinum, sam­starfs­að­ilum, við­skipta­vinum og víða í sam­fé­lag­inu. Við hörmum þetta og biðj­umst ein­læg­lega afsök­unar.“

Þor­steinn Már seg­ist líka gera það per­sónu­lega sem for­stjóri og einnig fyrir hönd félags­ins. „Við viljum ekki láta við það sitja að biðj­ast afsök­unar heldur draga lær­dóm af þessum mis­tökum og tryggja að ekk­ert slíkt ger­ist aftur. Í því skyni höfum við gripið til viða­mik­illa ráð­staf­ana. Frá upp­hafi hefur það verið meg­in­mark­mið okkar að fram­leiða hágæða sjáv­ar­af­urðir í sátt við umhverfið með ríka áherslu á sjál­bærni og góða umgengni við auð­lindir sjávar. Við viljum halda því áfram og horfa fram á veg­inn. Mistök okkar í Namibíu eru ekki síst okkur sjálfum mikil von­brigði. Við munum ekki láta slíkt henda aftur.“

Sex með réttarstöðu grunaðs

Sam­herj­a­málið komst í hámæli eftir að þáttur Kveiks sem opin­ber­aði starf­semi Samherja í Namibíu fór í loftið í nóv­em­ber 2019 en umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Al Jazeera og Wikileaks.

[adspot]Í mál­inu er grunur er að um mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Málið er til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatta­yf­ir­völdum hér­lendis. Það er einnig til rann­sóknar í Namibíu þar sem fjöl­margir ein­stak­lingar hafa verið ákærðir. Í Færeyjum hefur Samherji þegar greitt mörg hund­ruð milljón króna í van­gold­ina skatta og meint skatta­snið­ganga fyr­ir­tæk­is­ins þar hefur verið til­kynnt til lög­reglu.

Þor­steinn Már er á meðal þeirra sex ein­stak­linga sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á starf­semi Samherja.

Hinir fimm sem kall­aðir hafa verið inn til til yfir­heyrslu og fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana eru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Samherja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árnason, fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, Aðal­steinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, og Jóhannes Stef­áns­son.

Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu um tíma en lék lyk­il­hlut­verk í því að upp­ljóstra um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um málið.

Sögðust hafa gengið of langt

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Samherji biðst afsök­unar á atferli sínu.

[links]Í yfir­lýs­ingu sem birst á vef fyr­ir­tæk­is­ins í lok síð­asta mán­aðar, eftir að Kjarninn og Stundin höfðu opin­berað starf­semi svo­kall­aðrar „skæru­liða­deildar“ Samherja, sagði að ljóst væri að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“.

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki var útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið sé að biðj­ast afsök­unar á.

Í yfir­lýs­ing­unni sagði einnig að stjórn­endum og starfs­fólki Samherja hafi þótt umfjöllun og umræða um fyr­ir­tækið á und­an­förnum árum „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum.“ Þegar svo sé – og „vegið að starfs­heiðri með ósann­gjörnum hætti á opin­berum vett­vangi“ – geti reynst erfitt að bregð­ast ekki við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár