Spurði hvort sjávarútvegsráðherra hefði áhyggjur af „áróðurs- og rógsherferð“ Samherja

Þing­maður Pírata leit­að­ist við að fá svör frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra varð­andi nýja Sam­herj­a­málið á þingi í dag. Hann sagð­ist hafa áhyggjur af því ef „eitt­hvað óeðli­legt“ væri í gangi.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag hvort honum fynd­ist ekk­ert athuga­vert við það að hann sæti í þessu emb­ætti á meðan Samherji „stundar sínar for­dæma­lausu árásir á alla sem voga sér að gagn­rýna fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins“. Kristján Þór brást illa við fyr­ir­spurn­inni og gagn­rýndi þing­mann­inn fyrir að „vanda um sið­ferði ann­arra þing­manna“.

Þing­mað­ur­inn hóf fyr­ir­spurn sína á því að vísa í frétta­flutn­ing Kjarnans og Stund­ar­innar þar sem upp­lýst hefði verið að starfs­menn Samherja hefðu „með vit­und og vilja fram­kvæmda­stjóra Samherja staðið í njósnum um rit­höf­unda, stjórn­ar­fólk í sam­tökum gegn spill­ingu, plottað um hvernig megi hræða vitni frá því að vitna gegn þeim í saka­máli og farið í her­ferðir gegn fjöl­miðla­fólki bæði hér og í Færeyjum. Þar að auki reynd­ust skæru­liðar Samherja hafa áhrif á for­manns­kjör í stétt­ar­fé­lagi blaða­manna og próf­kjöri Sjálf­stæð­is­manna þar sem leitað er að arf­taka hæstv. ráð­herra í odd­vita­sæti. Allt þetta ger­ist auð­vitað í kjöl­farið á upp­ljóstrun Kveiks um veru­lega vafa­sama við­skipta­hætti Samherja í Namibíu og víðar sem nú eru til rann­sóknar í minnst fjórum löndum og til með­ferðar fyrir dóm­stólum í Namibíu.“

[adspot]

Rifjaði Þór­hildur Sunna það upp að ráð­herr­ann hefði hringt í Þorstein Má Bald­urs­son, aðal­eig­anda Samherja, til að spyrja hvernig honum liði eftir að Kveiks­þátt­ur­inn frægi fór í loftið. Sagði hún að sím­talið hefði vakið furðu margra og hefði ráð­herr­ann þurft að útskýra hvað vakti fyrir honum sem hann gerði með eft­ir­far­andi hætti í Kast­ljósi stuttu síðar: „Ef sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur ekki áhyggjur af því ef þetta stóra fyr­ir­tæki er ekki að koma fram með þeim hætti sem menn telja eðli­legt þá finnst mér bara sjálf­sagður hlutur að ýta á eftir því að það standi við þær skuld­bind­ingar sem það hefur gagn­vart sam­fé­lag­inu.“

[links]Spurði hún því með vísan í þessi orð ráð­herr­ans hvort hann hefði áhyggjur af þeirri áróð­urs- og rógs­her­ferð sem fyr­ir­tækið hefði rekið að und­an­förnu gegn fjöl­miðlum, félaga­sam­tökum og jafn­vel nánum sam­starfs­mönnum hans á þingi. „Telur hæst­virtur ráð­herra að Samherji standi við þær skuld­bind­ingar sem fyr­ir­tækið hefur gagn­vart sam­fé­lag­inu eða ætlar hann að ýta á eftir því? Ætlar ráð­herra að bregð­ast við og þá hvernig?“

Málið ekki borið inn á borð ráðherra

Kristján Þór svar­aði og sagð­ist vilja taka það strax fram að fyrstu við­brögð hans við hinu svo­kall­aða Sam­herj­a­máli og Namib­íu­skjöl­unum þegar það kom upp, hefðu verið þau að gera kröfu um að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins stigju fram og gerðu hreint fyrir sínum dyrum. „Það voru mín fyrstu við­brögð og mér þykir það eðli­legt í ljósi þeirrar stærðar og mik­il­vægis sem þetta fyr­ir­tæki hefur og hefur haft í íslenskri sjáv­ar­út­vegs­sögu.“

Sagðist hann hafa áhyggjur af því ef það væri eitt­hvað óeðli­legt í gangi, með hvaða hætti fyr­ir­tæki blanda sér í stjórn­mála­bar­áttu ein­stakra stjórn­mála­flokka, verka­lýðs­fé­laga og svo fram­vegis.

„Ein­stak­lingum er þetta að sjálf­sögðu full­kom­lega heim­ilt hvar og hvenær sem þeir kjósa og vilja. En ef fyr­ir­tæki taka með ein­beittum hætti ákvörðun um að fara að beita sér með slíkum hætti er það að allra mati og flestra mati ekki ásætt­an­legt. Að því leyti til get ég tekið undir áhyggjur hátt­virts þing­manns af því að ef það er að verða lenska að fyr­ir­tæki sem þykir að sér sótt fari að beita sér með þeim hætti sem þar um ræðir.

Að öðru leyti hefur þetta mál ekki borið inn á mitt borð. Eins og ég hef áður nefnt, meðal ann­ars á opnum fundi með hátt­virtum þing­manni haustið 2019, þekki ég að sjálf­sögðu fullt af starfs­fólki Samherja og hef ekk­ert nema gott eitt um það að segja og hef átt við það hin bestu sam­skipti alla tíð,“ sagði ráð­herr­ann.

Spurði hvort ráðherra gæti setið áfram í embætti

Þór­hildur Sunna sagð­ist ekki vera að spyrja hann „um neina lensku“. Hún væri að spyrja um til­greint dæmi sem fyrir lægi um afskipti, um óeðli­leg afskipti Samherja af blaða­mönnum, stétt­ar­fé­lögum, próf­kjöri og sam­fé­lags­sátt­mál­anum.

Vitnaði hún aftur í orð ráð­herr­ans úr Kast­ljós­svið­tal­inu forðum þar sem hann sagði: „Hvað yrði sagt ef ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála hefði yfir höfuð enga skoðun á því að þetta stóra fyr­ir­tæki sem allir hafa taugar til, ef hann reyndi ekki að ýta á það að menn svör­uðu ekki þeim ávæn­ingi sem bor­inn yrði á þá og væri í gangi?“

Sagðist hún velta því fyrir sér hvað ætti að segja við þessu. „Hvað eigum við að segja um sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sem hefur ekk­ert um þetta risa­vaxna mál að segja sökum æpandi van­hæfis? Finnst hæst­virtum ráð­herra virki­lega ekk­ert athuga­vert við það að hann sitji í þessu emb­ætti á meðan Samherji stundar sínar for­dæma­lausu árásir á alla sem voga sér að gagn­rýna fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins? Setur það emb­ættið ekki niður að hafa þar mann sem getur ekki beitt sér, getur ekki tjáð sig með neinum mark­verðum hætti um fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins?“ spurði hún.

Gagnrýndi þingmanninn fyrir að „vanda um siðferði annarra þingmanna“

Kristján Þór steig aftur í pontu og sagð­ist áður hafa farið yfir hæfi sitt til að taka á mál­efnum Samherja, meðal ann­ars með Þórhildi Sunnu. „Sem fer nú ekki mjög vel að vera að vanda um sið­ferði ann­arra þing­manna. Þetta er fyrsti og eini þing­mað­ur­inn sem hefur fengið ákúrur fyrir það að brjóta þær siða­reglur sem Alþingi sjálft hefur sett sér. Fyrsti og eini þing­mað­ur­inn sem hefur fengið þá ákúru.

Þannig að ég mót­mæli því að menn beri ekki eitt­hvert skyn­bragð á hæfi sitt til að takast á við mál sem koma upp, hvort heldur sem það varðar Samherja eða ein­hver önnur fyr­ir­tæki. Það geri ég, og ég lýsi því yfir hátt og í heyranda hljóði á opnum fundi nefnd­ar­innar með hvaða hætti ég met hæfi mitt hverju sinni þegar slík mál koma upp,“ sagði hann að lokum.

Þess skal getið að Þór­hildur Sunna er ekki sú eina sem brotið hefur siða­reglur að mati siða­nefndar Alþingis en Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hafa einnig brotið fyrr­nefndar reglur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár