Hafa sent formlegt erindi til ÖSE til að óska eftir kosningaeftirliti í haust

Þing­maður Pírata segir aðgerðir gegn fjöl­miðla­fólki geta komið niður á kosn­ingum og að það sé stór­hættu­legt að „fjár­sterkt útgerð­ar­fyr­ir­tæki beiti sér með þessum hætti gegn gervöllu gang­verki lýð­ræð­is­ins“.

Þing­flokkur Pírata hefur sent form­legt erindi til ÖSE þar sem kallað er eftir því að stofn­unin skipu­leggi kosn­inga­eft­ir­lit í haust. Frá þessu greindi Andrés Ingi Jónsson, þing­maður flokks­ins, í þing­ræðu í dag. Andrés sagði að í full­trúar lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE hefðu fundað með ýmsum hér á landi í síð­ustu viku til þess að meta þörf­ina á kosn­inga­eft­ir­liti í kom­andi alþing­is­kosn­ingum sem fara munu fram í sept­em­ber.

„Sjálfur sat ég tvo fundi. Þar lýsti ég áhyggjum af stöðu fjöl­miðla, sér­stak­lega í ljósi þess sem við þá vissum, hvernig Samherji hefur und­an­farna mán­uði beitt sér gegn Helga Seljan vegna frétta um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu,“ sagði Andrés. „Slíkar aðgerðir geta hæg­lega haft kælandi áhrif á gagn­rýna fjöl­miðla sem aftur hefur nei­kvæð áhrif á mögu­leika okkar til að tryggja frjálsar og sann­gjarnar kosn­ingar.“

Andrés sagði stöð­una hafa gjör­breyst síðan að umræddir fundir voru haldnir og vís­aði í kjöl­farið í umfjöllun Kjarnans og Stund­ar­innar um hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild“ Samherja. Auk þess sem hún hefði beitt sér gegn ein­stökum blaða­mönnum og fjöl­miðlum hefði hún reynt að hafa áhrif á val for­manns Blaða­manna­fé­lags­ins og á próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins. [links]

„Þetta er grafal­var­leg staða. Í kosn­ingum sem munu meðal ann­ars snú­ast um eign­ar­hald þjóð­ar­innar á fisk­veiði­auð­lind­inni þá er stór­hættu­legt að fjár­sterkt útgerð­ar­fyr­ir­tæki beiti sér með þessum hætti gegn gervöllu gang­verki lýð­ræð­is­ins beiti hagn­að­inum af þess­ari sömu auð­lind í her­ferðir gegn póli­tískum and­stæð­ingum, opin­berri umræðu og frjálsum frétta­flutn­ingi,“ sagði Andrés.

Hann sagð­ist vænta þess að for­seti þings­ins sem og aðrir flokkar muni taka undir með þing­flokki Pírata, „enda er það hagur allra jafnt innan sem utan þess­ara veggja, að kosn­ing­arnar fram undan lit­ist ekki af and­lýð­ræð­is­legum afskiptum eins og þeim sem við höfum fengið að kynn­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár